Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Page 29
Vikublað 10. nóvember 2017 5
KlassíK hönnun Þetta skemmtilega tæki er allt
í senn útvarp, geislaspilari og þráðlaus hátalari fyrir
snjallsíma. Guðrún segist hrifin af þessari hönnun
sem minnir á gamla tíma. Tækið fékk hún í Símabæ
og það kostaði í kringum tuttugu þúsund krónur.
silfur og tennur
Þetta eru útskornar
hvaltennur og innra
eyra úr hval, eða
hlustin. Afi Jóa var
verkstjóri í hvalstöðinni í
gamla daga og skrautið
kemur frá honum.
fallegar flösKur fyrir frú laugu Þessar flöskur
voru lokaverkefni Guðrúnar í náminu. Þær eru hugsaðar
undir olíu sem er seld í lítratali í verslunninni Frú Laugu.
innblásin af Édith Piaf „Þessar könnur gerði ég meðan ég var í náminu. Édith Piaf var lítil, bogin kona sem söng af lífi og sál. Það er of löng saga að segja frá því hvers vegna ég hrífst svona af Piaf. Ég hef alltaf elskað hana.“
Þorri gleðigjafi
Þessi ástralski
fjárhundur er mikill
gleðigjafi á heimilinu.
Þetta er eKKi sjálfstæðisfugl „Við maðurinn minn erum búin að tuða svolítið um þennan örn. Jói minn vildi endilega
kaupa þetta í antíkbúð í Köben enda er hann mikilll Sjálfstæðismaður og erninum svipar til fálkans. Ég er mjög hrifin af þessum
erni, eins og annarri leirlist, þess vegna burðaðist ég jú með þetta heim í handfarangri.“
fjólublátt ljós við rúmið „Maður er að minnsta
kosti átta tíma í senn inni í svefnherbergi á hverjum sól-
arhring. Þess vegna er gott að hafa Tolla á veggnum og
fjólublátt ljós sem lyftir bólinu svolítið upp. Rúmið kemur úr
versluninni Betra Bak og litríka ljósið fylgdi með.“