Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Side 35
Betri borgarar 3Helgarblað 10. nóvember 2017 KYNNINGARBLAÐ Frægasti borgarinn í Eyjum og fleira góðmeti Gott, BáRustíG 11, VestmANNAeYjum Gott er rómaður veitinga­staður í Vestmanna­eyjum sem leggur áherslu á heilsusamlegan og ferskan mat fyrir fjölskylduna. á fjöl­ breyttum matseðli staðarins er meðal annars að finna nokkra hamborgararétti og það er ljóst að hamborgararnir á Gott eru enginn skyndibiti, heldur veglegar og gómsætar máltíðir með fersku hráefni og ýmiss konar sérstöðu í innihaldi og matreiðslu. Þarna má fyrstan nefna bragðsterkan Gott kjúklinga­ borgara sem margir telja vera frægasta og vinsælasta borgarann í Vestmannaeyj­ um og sumir hika ekki við að telja hann vera í hópi fræg­ ustu hamborgara landsins. Að sögn eigenda Gotts er ótrúlega algengt að fólk taki með sér þennan kjúklinga­ borgara til Reykjavíkur og brottfluttir eyjamenn sækja mikið í hann þegar tækifæri gefst. Kjötið í borgaranum er ferskar íslenskar kjúklingabr­ ingur sem eru maríneraðar í sólarhring í tandoori­kryddi fyrir eldun. Þá gerir staðurinn sína eigin tandoori­sósu sem er ómissandi hluti af þess­ um rétti. einnig er í réttinum heimagert aioli, pikklaður laukur, tómatur og heimagert guacamole. eldfellsborgarinn, sem kenndur er við eldfell í Vest­ mannaeyjum, er líka einstakt hnossgæti. Kjötið er sérvalið að norðan og er fituhlutfall 30% í kjötinu sem er fáheyrt. Þetta er því afar matarmikill borgari, 150 gramma. Kjötið er aldrei drýgt með soja eða öðru viðbótarhráefni, þetta er bara hreint og ferskt nautakjöt. Reykti osturinn með borgaranum er einstakur því hann er sérreyktur í ofni á staðnum. eigendur gripu til þess ráðs eftir að hafa prófað alla reykta osta á landinu – án þess að finna bragðið sem þeir sóttust eftir. truffluborgarinn hefur líka sérstöðu eins og aðrir réttir á Gott en í honum er sérvalin truffluolía og trufflur frá ítalíu. Gott býður líka upp á safarík­ an grænmetisborgara sem er mjög vinsæll meðal vegan­ fólks og ferðamenn panta hann oft. meginuppistaðan er svart­ baunir, rauðrófur, sætkartöflur og ýmsar ferskar kryddjurtir. Allir hamborgararnir á Gott eru í sérstöku heimabökuðu spelt­ brauði. Gott er staðsett að Bárustíg 11 í Vestmanna- eyjum og opið er alla daga frá kl. 11 til 21. Kröst-hamborgarinn hefur slegið í gegn – oG eKKI AÐ ástæÐuLAusu Veitingastaðurinn Kröst í mathöllinni á Hlemmi hefur vakið mikla lukku og stefna Böðvars Lemack matreiðslumanns hittir í mark á gestum mathallarinnar: „Við reynum að framreiða heiðarlegan mat á Kröst og leggjum áherslu á rétti úr grillinu. Heitt prótein og kalt meðlæti, ef svo mætti að orði komast, og eins ferskt hráefni og völ er á hverju sinni. Við erum með lítinn en síbreyti­ legan matseðil enda alltaf að reyna að finna út hvað virkar best fyrir þennan matar­ markað,“ segir Böðvar. einn af þeim réttum hjá Kröst sem hafa slegið ræki­ lega í gegn er Kröst­ham­ borgarinn. í Kröst­ham­ borgaranum er kjötið með tveim mismunandi grófleik­ um en það gerir áferðina einstaklega skemmtilega. Hann er borinn fram á dúnmjúku kartöflubrauði með Kröst­sósu sem m.a. inniheldur tómata, per­ ur, púðursykur og eplaedik ásamt leynilegri kryddblöndu. salatið er úr hvítlauk, sell­ eríi og sýrðu majónesi. á hamborgarann fer einnig gott franskt sinnep með hlynsírópi. Böðvar kann vel við sig í mathöllinni á Hlemmi enda stað­ urinn hans fengið af­ skaplega góðar viðtöku og stemn­ ingin í mathöllinni þykir vera afbragð: „íslendingar eru enn í miklum meirihluta gesta, sem er gott vegna þess að það eru fastagestir sem halda stöðunum uppi á meðan ferðamennirnir eru skemmtileg og kær­ komin viðbót,“ segir Böðvar. Staðurinn er opinn sunnudaga til fimmtu- daga frá kl. 11 til 22 og laugardaga frá 11 til 23.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.