Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 62
62 Helgarblað 15. desember 2017
Topp 10
jólagjafa-
hugmyndir
fyrir herra
Plötuspilari, armband, rakvél eða
kannski ferð til útlanda?
plöTuspilari
Bara einn svona plötuspil-
ari og svo þarftu ekki að
hugsa meira um jólagjafir
eftir það því auðvitað
fær hann bara vínylplötur
það sem eftir er. Þessi
smekklegi spilari er fram-
leiddur af Lenco en hann
kemur með innbyggðum
formagnara og USB tengi.
Viðarkassinn er úr hnotu.
Fæst: Í verslunni Rafland
Verð: 49.990 kr.
BeinT í mark
Beint í mark er spurninga-
spil um fótbolta. Spurn-
ingarnar eru styrkleika-
skiptar sem auðveldar
öllum að spila með – só-
fasérfræðingum jafnt sem
öðrum! Á meðal þeirra
sem gefa spilið út er Jó-
hann Berg Guðmundsson,
landsliðsmaður Íslands og
leikmaður Burnley í ensku
úrvalsdeildinni.
Fæst: Í helstu verslunum
sem selja spil og bækur og
á heimasíðu Beint í mark.
Verð: 7.490 kr.
heyrnarTól frá Bose
Það eru allir ólmir í heyrnartólin frá BOSE þessa dagana.
Þessi heita BOSE QC 35 og eru þau þráðlaus með hágæða
hljóðútilokun sem dregur mjög úr öllum umhverfishljóðum.
Fæst: Meðal annars hjá Nýherja Verð: 44.900 kr.
hann fékk kindle
en hún fékk ...
Kindle lesbrettið er ótrúlega skemmtileg og
gagnleg gjöf fyrir fólk sem hefur gaman
af því að lesa. Hægt er að kaupa bæði
innlendar og erlendar bækur á netinu og
eftir örfáar sekúndur er hægt að byrja að
lesa. Kindle Paperwhite lesbrettið er útbúið
góðum skjá sem gefur skýran og auðles-
anlegan texta, hvort sem er í kolniðamyrkri
uppi í rúmi eða í sólbaði á ströndinni.
Fæst: Meðal annars hjá Macland á Laugavegi
Verð: 24.990 kr.
salTkrisTalslampi
Birtan frá þessum lömpum er ákaflega notaleg.
Svo er talað um að þeir jafni útgeislun frá skjám
og raftækjum og geri þannig inniveruna örlítið
heilnæmari – hvað svo sem er nú til í því.
Fæst: Í versluninni Steinasteinn Verð: 7.690 kr.
philips rakvél
Hönnuð til að raka og snyrta hár líkamans, tilvalin fyrir
bringu, maga, bak, fætur, axlir og undir hendur. Wet&Dry
má nota í sturtu / 8 klst. hleðsla gefur 50 mín. notkun.
Fæst: Meðal annars hjá Elko Verð: 8.995 kr.
hamragarðar
jakkapeysa
Hamragarðar, jakkapeysan
frá Farmers Market er hlý og
kósí. Hún er 80 prósent ull
og 20 prósent pólýester (fyrir
teygjanleikann). Á henni eru
tveir hliðarvasar og tölur úr
ekta lambshorni.
Fæst: Hjá Farmers Market
Verð: 26.900 kr.
ferð Til
úTlanda
Hvað með að gefa inneign
í ferð til útlanda? Eða
bara sirka tvo flugmiða?
(akkúrat, mjög lúmskt).
Hjá flugfélögunum er
hægt að fá gjafabréf fyrir
hvaða upphæð sem er. Ef
flugmiðinn (eða miðarnir)
kosta minna en sem nemur
andvirði gjafabréfsins
verður restin að inneign
hjá flugfélaginu.
Fæst: Meðal annars hjá
WOW Air og Icelandair
Verð: Hvað viltu borga?
armBand frá sign
Það fer flestum karlmönnum vel að bera fallegt arm-
band. Þessi glæsilegi gripur er framleiddur af íslenska
fyrirtækinu SIGN og kemur úr línu sem þau kalla Eldur
og ís. Þetta er leðurarmband með ródíum-húð og
festingarnar eru úr sterling-silfri.
Fæst:Í versluninni SIGN í Hafnarfirði Verð:19.900 kr.
legend nighT ilmur
Þýska merkið Montblanc er best þekkt fyrir skriffæri í hæsta
gæðaflokki og varla er hægt að gleðja góðan mann meira
en að gefa honum fallegan penna frá Montblanc, nema þá
ef góður ilmur skyldi fylgja með. Nýjasti ilmurinn frá þessu
vandaða merki heitir Legend night. Seiðandi og kynþokka-
fullur ilmur sem kemur í flösku er minnir á koníakspela.
Fæst: í Lyf og heilsu. Verð: 5.690 (30ml)