Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 59
JólinHelgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ Snyrtimiðstöðin er ein elsta og glæsilegasta snyrtistofa landsins, stofnuð árið 1979 af Rósu Þorvaldsdóttur sem enn starfar við stofuna. Að jafnaði starfa 5–7 manns á stofunni en Snyrtimiðstöð- in er staðsett í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Hjá Snyrtimiðstöðinni starfar einungis fagfólk sem fylgist vel með nýjungum í faginu og vinnur eingöngu með hágæða snyrtivörum. „Við á Snyrtimiðstöðinni höfum ávallt lagt okkur fram um að vera fyrsta flokks snyrti-, nudd- og fótaað- gerðastofa. Hvort sem það er í fag- mennsku, aðstöðu, tækni, eða vörum, þessir þættir eru í stöðugri endurnýj- un,“ segir Rósa Þorvaldsdóttir, stofn- andi Snyrtimiðstöðvarinnar. Í öllum andlits- og líkamsmeðferð- um fylgir húðgreining og ráðleggingar um umhirðu húðar og val á snyrtivör- um. Lögð er áhersla á þægilegt and- rúmsloft, kertaljós og slökunartónlist eru í hverri meðferð. IPL er nútíminn Á Snyrtimiðstöðinni er í boði fjöldi meðferða og meðal annars starfa á stofunni færir tattú-sérfræðingar sem hafa fengið starfsleyfi frá heil- brigðisráðuneytinu. IPL er varanleg háreyðing með Xenon-leifturljósi. Þetta er er örugg, sársaukalaus og fljótleg meðferð (svipað laser). Vinnur best ef hár eru gróf, dökk og húð ljós. Hægt að nota þetta nánast hvar sem er á líkam- anum fyrir bæði konur og karla. „Við erum nýbúin að endurnýja IPL-ljós- tæknitækið okkar. Þetta er að virka mjög vel fyrir margar,“ segir Rósa. „Þetta virkar þannig að liturinn í hárinu dregur í sig hitann frá ljósinu. Hárið ber hitann niður í hársrót á aðeins sekúndubroti og veldur varan- legri eyðingu á hárfrumum í hársekk. Meðferðafjöldi er 6–10 skipti á 4–8 vikna fresti.“ Nánari upplýsingar má fá um meðferðir Snyrtimiðstöðvarinnar á vefsíðunni snyrtimidstodin.is. Fjölbreytt gjafakort sem öll eru frábær í jólapakkann Gjafakort Snyrtimiðstöðvarinnar má fá fyrir hvaða upphæð sem er og getur þiggjandinn ráðstafað inn- eigninni eftir eigin höfði til að fá þá meðferð sem hann langar mest í. Það má líka kaupa gjafakort fyrir tilteknum meðferðum, til dæmis dekurdegi eða hand- og fótsnyrtingu, en ef þiggj- andinn vill eitthvað annað er sjálfsagt að breyta gjafakortinu og láta það ganga upp í aðra meðferð. Gjafa- kortin eru afhent í fallegum gjafapok- um og fylgir gjöf með. Rósa er eigandi fótaaðgerða-, snyrti- og nuddstofunnar Snyrti- miðstöðvarinnar. Þessi rótgróna snyrtistofa er ein sú stærsta á landinu og býður upp á mikið úrval af snyrtimeðferðum og dekurpökkum. Best er að kaupa gjafakort á staðnum, í Snyrtimiðstöðinni, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Síminn er 558 1990. Gjafakort frá Snyrtimiðstöðinni er frábær jólagjöf Gjafakortin frá Snyrtimiðstöðinni eru glæsileg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.