Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 65
JólinHelgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Ný netverslun með fjölbreytt úrval af
vinsælum snyrtivörum og hraða þjónustu
BeautyBox.is
Vefverslunin Beautybox.is er sérverslun með snyrtivörur sem opnuð var 17. ágúst síð-
astliðinn. Versluninni hefur verið afar
vel tekið og má segja að hún sé í senn
glæný og ört vaxandi. Merkin voru 21
í byrjun en eru nú 27 og bætist ört í
hópinn.
„Fólk kann að meta fjölbreytnina
en auk þess leggjum við mikið upp úr
góðri þjónustu. Pantanir eru sendar
daginn eftir að þær berast og erum
við með heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu þar sem við
keyrum í hús milli 17.30–22.00 á
virkum dögum og milli 12.00–16.00
á laugardögum. Pantanir á lands-
byggðinni eru sendar með Íslands-
pósti. sendingarkostnaðurinn er í
lágmarki og er hann 500 kr. fyrir
pantanir undir 5.000 kr. en frír ef
pantað er fyrir 5.000 kr. eða meira.
Við fáum mikið af alls konar fyrir-
spurnum í gegnum Facebook og
tölvupóst sem við leggjum áherslu á
að svara strax, því þó svo við séum
bara netverslun þá viljum við veita
persónulega þjónustu,“ segir Íris Björk
Reynisdóttir, einn af eigendum versl-
unarinnar.
Beautybox.is býður upp á fjöl-
breytt úrval af þekktum erlendum
snyrtivörumerkjum og vönduðum
íslenskum snyrtivörum. Vefsíðan er
mjög aðgengileg og eru allar upplýs-
ingar á íslensku og það er auðvelt að
leita að efni á síðunni og versla. „Við
leggjum áherslu á að gefa ítarlegar
upplýsingar um allar snyrtivörurnar
á síðunni, notkunarleiðbeiningar og
innihaldslýsingar, en einnig er þeim
skipt upp í flokka svo hægt sé t.d. að
leita að þeim vörum sem eru vegan
eða lífrænar. síðast en ekki síst er
hægt að fylgjast með blogginu okkar
sem við reynum að hafa fróðlegt og
skemmtilegt,“ segir Íris.
Á síðunni eru jólagjafahugmyndir
fyrir fólk á öllum aldri en einnig eru
til sölu gjafabréf á Beautybox.is sem
hægt er að prenta út heima. Bréfin
gilda fyrir valda upphæð og hægt er
að nota þau eins oft og eigandinn vill
á meðan inneign er fyrir hendi.
Íris viðurkennir að það sé tölu-
verð vinna að halda öflugri vef-
verslun gangandi. „en þetta er mjög
skemmtilegt og það hvetur okkur
áfram hvað versluninni hefur verið vel
tekið og fólk kann vel að meta þjón-
ustuna okkar.“
Hægt er að fylgjast með
Beautybox.is á samfélagsmiðlum,
t.d. hér á Facebook (facebook.com/
beautyboxisland) og Instagram
og Snapchat undir @Beautybox.is.
Heimasíðan er www.beautybox.is.