Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 39
KYNNINGARBLAÐHelgarblað 15. desember 2017 Múlinn
Uppfyllir þarfir
ungra barna og
væntingar foreldra þeirra
Petit, Ármúla 23
Við byrjuðum í barnafötunum en höfum viljað þróast í þá átt að verða heildarversl-
un fyrir barnið og erum á góðri leið
með að verða það,“ segir Gunnar
Þór Gunnarsson hjá versluninni Petit,
Ármúla 23, en hann rekur verslunina
ásamt sænskri eiginkonu sinni, linnea
ahle.
Verslunin flutti í Ármúla 23 í nóv-
ember og líst Gunnari mjög vel á nýja
hverfið. „Við finnum fyrir því að fólk
er ánægt með að við séum komin
hingað og með Ármúlann almennt.
Hér áður fyrr var þetta ekki gata sem
maður spáði í sem almenna verslun-
argötu en það er að breytast. Þess-
ar gömlu sérverslanir sem hér eru,
t.d. ljósaverslanirnar, gefa götunni
skemmtilegan karakter. mér sýnist
að múlinn gæti farið að verða það
sem laugavegurinn var áður. Það
gildir líka um okkar kúnnahóp að hann
getur ekki lagt einkabílnum þegar
hann verslar, því þetta er oft fólk með
nýfædd börn eða kasóléttar konur.“
Fötin í Petit koma frá framleið-
endum víða um heim en allir eiga
þeir það sameiginlegt að framleiða
það sem kallað er lífræn föt. Þessi
skilgreining tekur helst til framleiðslu-
ferlisins þar sem lögð er áhersla á
náttúruleg litarefni og að ferlið sé eit-
urefnafrítt. Þetta gerir framleiðsluna
umhverfisvæna og fötin betri.
„Við höfum lagt okkur fram um að
fötin séu raunverulega framleidd á
heilnæman hátt frekar en að fram-
leiðandinn hafi bara krækt í einhvern
stimpil,“ segir Gunnar Þór.
Gunnar Þór á sænska eiginkonu,
linnea ahle, en þau kynntust er hann
bjó í Svíþjóð og var þar atvinnumað-
ur í knattspyrnu. Síðustu árin hefur
Gunnar Þór spilað með Kr og unnið
til margra titla með félaginu. Hann og
linnea eiga þrjú börn en áhuginn á
barnavörum kviknaði þegar þau tóku
að huga að þörfum sinna eigin barna
í þessum efnum. Vegna tengslanna
við Svíþjóð hefur Petit selt mikið af
sænskum vörum í gegnum tíðina en
vörurnar koma þó víða annars staðar
frá, til dæmis frá Hollandi, Ástralíu og
Bandaríkjunum.
„Við glímum við það lúxusvanda-
mál að margir erlendir framleiðendur
hafa samband við okkur og falast
eftir samstarfi. Við vöndum okkur
mikið þegar við veljum vörur til sölu í
búðinni. annars vegar er plássið ekki
ótakmarkað hjá okkur og hins vegar
hafa viðskiptavinir okkar væntingar
sem við verðum að uppfylla.“
auk glæsilegrar verslunar að Ár-
múla 23 rekur Petit vefverslun á vef-
síðunni petit.is. Vörur eru sendar heim
hvert á land sem er og ef keypt er fyr-
ir yfir 10.000 krónur er heimsendingin
frí. að sögn Gunnars Þórs er veltan
heldur meiri af versluninni en vef-
versluninni. „Okkur finnst afskaplega
gott að geta þjónað landsbyggðinni
vel með vefversluninni en jafnframt
því þykir okkur afar vænt um að fá
fólk í búðina og geta leiðbeint því þar
og átt ánægjuleg viðskipti maður á
mann,“ segir Gunnar Þór.
auk barnafata selur Petit meðal
annars rómaða Buugaboo -barna-
vagna, húsgögn í barnaherbergi
og alls konar leikföng fyrir lítil börn.
Verðið er mjög samkeppnisfært en
Gunnar Þór segir að þeim takist að
halda verði niðri með því að vanda
sig mjög við vörusendingar og koma í
veg fyrir að flutningskostnaður verði
of mikill.
Jólagjafir handa yngsta fólkinu og
ungum foreldrum er klárlega að finna
í Petit, Ármúla 23. Þeir sem ekki eiga
leið þangað geta skoðað glæsilegt
úrvalið á petit.is og gert sín innkaup
þar.