Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 32
32 fólk - viðtal Helgarblað 15. desember 2017 Þ annig kemst Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi að orði þegar hann lýsir æsku sinni á Akranesi. Vil- hjálmur er landskunnur og þekkt- ur fyrir að segja skoðanir sínar tæpitungulaust. Kristjón Kormák- ur ræddi við Vilhjálm um æsku hans á Akranesi, hvernig Akra- borgin spilaði stórt hlutverk í því að hann ákvað að berjast fyrir al- þýðuna og ósvífna fjármálaelítu. Þá opnar Vilhjálmur sig um ótal fundi með Sigmundi Davíð, verð- tryggingu og svo sáran sonarmissi. „Ég vil trúa því að það sé líf eftir dauðann,“ segir Vilhjálmur þegar hann er spurður um andlát Ótt- ars sem féll frá aðeins þrítugur að aldri og skildi eftir sig tvö börn. Alla tíð búið á Akranesi Vilhjálmur er fæddur þann 5. ágúst 1965. Foreldrar hans eru Birgir Jónsson, útgerðarmaður og skipstjóri, og Margrét Vilhjálms- dóttir verslunarstjóri. Vilhjálmur hefur búið á Akranesi alla sína tíð. „Ég á sex systkini og það var líf og fjör hér í gamla daga,“ seg- ir Vilhjálmur, sem er fjórða barn foreldra sinna. Á Vilhjálmur fjóra bræður og tvær systur. Faðir hans stundaði sjóinn og var því mikið um fiskmeti á borðum. „Í dag er ég giftur fjögurra barna faðir og á orðið átta barnabörn. Ég varð því á endanum ríkur maður.“ Samdi ykkur systkinum vel? „Það var ekki mikill ágreining- ur þó auðvitað væri barist um athygli foreldranna. Uppvaxtarár mín voru ánægjuleg. Ég var mik- ið í íþróttum og fótbolta og lék knattspyrnu með ekki ómerkari mönnum en Ólafi Þórðarsyni og Sigga Jóns sem síðar gerðist at- vinnumaður með Arsenal. Það var frábær tími. Hvernig varstu sem barn? „Ég var prakkari. Það þurfti að hafa dálítið mikið fyrir mér og ég var uppátækjasamur. Við get- um nánast fullyrt að ég hafi verið pínu óþekkur,“ segir Vilhjálmur og skellir upp úr. Aðspurður hvort hann sé líkari föður sínum eða móður svarar Vil- hjálmur: „Ég er meira líkur mömmu. Ég var yngstur í nokkur ár, það er alltaf gott, síðan hefur sá gamli æði marga kosti. Það er gott að fá að reyta það besta frá þeim báðum.“ Vilhjálmur segir foreldrahlutverk- ið hafa tekið miklum breytingum frá því að hann var gutti. Í dag eru foreldrar oft gagnrýndir fyrir að eyða litlum tíma með börnum sín- um. Þau séu upptekin í lífsgæða- kapphlaupinu. Þessu er Vilhjálm- ur ósammála og blaðamaður tekur undir það. „Ef við berum þetta saman, þá finnst mér foreldrar í dag veita börnum sínum meiri athygli. Ef við tökum knattspyrnu sem dæmi þá voru örfáir foreldrar að horfa á leiki eða fóru með í keppnisferð. Í dag er þetta gjörbreytt til hins betra og við fylgjum börnum eða barnabörnum á alla leiki.“ Vilhjámur bætir við að sjálf- stæði barna þegar hann var ungur hafi verið mun meira en hjá börn- um í dag. „Ég hef oft hugsað um það, þegar við krakkarnir vorum að leika okkur í fjörunni í stórbrimi, ef ég myndi vita af börnum eða barnabörnum við svipaðar að- stæður, drottinn minn dýri, ég fengi áfall. Það er kraftaverk, þegar hugsað er til baka, að vera lifandi, miðað við það sem við tókum okk- ur fyrir hendur. Við smíðuðum fleka og rérum 200 til 300 metra út á sjó án þess að vera í björgunar- vesti. Svo var staðið á hálum klett- um og veitt. Ég féll nú einu sinni af þeim og var bjargað af fullorðnum manni, en þá var ég sjö, átta ára.“ Þá byrjaði Vilhjálmur snemma að vinna. „Ég byrjaði að beita 12 ára hjá pabba. Síðan var ég kominn á Eyr- ina að vinna í saltfiski. Mína fyrstu vetrarvertíð fór ég 15 ára gamall á sjó. Ég þekki öll þessi hefðbundnu verkamannastörf til sjós. Kynntist konunni 16 ára Vilhjálmur lauk grunnskóla en hætti í menntaskóla. Aðstæður voru slíkar að hann varð að leggja Trúir á líf eftir dauðann Vilhjálmur Birgisson „Við lifðum ekki skort, en það var ekkert ríkidæmi. Við bjuggum í lítilli kjallaraíbúð mín uppvaxtarár. Þröngt máttu sáttir sitja. Við krakkarnir vorum úti að leika okkur frá klukkan átta á morgnana fram á kvöld, niður í fjöru, úti á bryggju. Þá voru engar tölvur. Svo stóð mamma í hurðinni, hrópaði og þuldi nöfn okkar sjö systkinanna til að kalla á okkur í mat.“ Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.