Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 33
fólk - viðtal 33Helgarblað 15. desember 2017 námið á hilluna. Vilhjálmur og Þórhildur, kona hans, hófu sam- band aðeins 16 ára gömul. Fyrir átti hún eitt barn sem hún eignað- ist ári áður. Þórhildur er frá Suður- eyri við Súgandafjörð. Þau kynntu- st árið 1982 og eignuðust sitt fyrsta barn saman árið 1984. Aðeins 26 ára voru börnin orðin fjögur. „Það sem hefur hjálpað mér gríðarlega í mínu starfi í dag er að þekkja það af eigin raun hvern- ig það er að reyna að láta enda ná saman mánuð til mánaðar,“ seg- ir Vilhjálmur. „Ég hef alla tíð ver- ið verkamaður og þurft að berj- ast fyrir því að eiga ofan í mig og mína. Ég þekki nákvæmlega þá stöðu sem alltof margir eru í að vera orðinn auralaus þegar það eru fimm til tíu dagar í mánaða- mót. Það er ein skelfilegasta til- finning sem þú lendir í fyrir utan fráföll og veikindi, að eiga ekki fyrir reikningum sínum eða mat. Þetta þekktum við á sínum tíma, með öll okkar börn.“ Lýðheilsumál Á þessum tíma var ekki rekstrar- grundvöllur fyrir því að Þórhild- ur myndi fara á vinnumarkaðinn. Laun hennar hefðu þá öll farið í að greiða fyrir dagvistun barnanna. Vilhjálmur var því lengi eina fyrir- vinnan. „Það er mér hulin ráðgáta hvernig við komumst í gegnum þessi ár. Að sama skapi verður mér oft hugsað til þeirra sem eru í þessum sporum. Það er lýðheilsu- mál að vera hér með launakjör með þeim hætti að fólk hafi tæki- færi til að ná endum saman.“ Þótt blaðamaður sé nokkuð yngri en Vilhjálmur man hann þá tíð þegar dugði að vera með eina fyrirvinnu. Í dag, ef sambýlisfólk vinnur bæði láglaunastarf, dugar það oft ekki til að reka heimili. „Þetta var svo allt, allt öðru- vísi í gamla daga. Við fórum í bíó á sunnudögum og þá var það djús í brúsa og popp í poka sem var poppað heima og tekið með í kvik- myndahúsið. Tímarnir eru svo breyttir frá því í gamla daga.“ Úr Akraborg í verkalýðsstörf Hvernig kom það til að þú endað- ir í þessu starfi, að vera verkalýðs- foringi? „Það má rekja til þess tíma er Akraborgin var lögð niður. Þar var ég háseti í fimm ár,“ svarar Vil- hjálmur og bætir við að hann hafi alla tíð haft gríðarlegan áhuga á samfélagsmálum. „Þetta var árið 1998 og voru Hvalfjarðargöngin opnuð það sama ár. Starfsmenn Akraborgar- innar gengu fyrir í starfið í gjald- skýlinu í Hvalfirði og við feng- um allir vinnu þar. Ég óskaði eftir því að gengið yrði frá launakjör- um í gjaldskýlinu á þann hátt að þau yrðu mannsæmandi. Okkur var lofað að launakjör yrðu borin undir okkur áður en við tækjum til starfa. Skömmu áður en við áttum að hefja störf fréttum við að búið væri að ganga frá kjarasamningi sem var fyrir neðan allar hellur.“ Tekjufallið fyrir hásetana á Akraborginni var um 40 til 50 prósent. Mönnum var vitan- lega brugðið. Á þessari stundu kviknaði áhugi á verkalýðsmál- um fyrir alvöru í brjósti Vilhjálms. Vilhjálmur komst í stjórn og trún- aðarráð Verkalýðsfélags Akraness, en um svipað leyti stóðu yfir mik- il innanhússátök. Vilhjálmur fór fram á að fá að skoða bókhald og fleiri gögn félagsins. Því var hafn- að. Vilhjálmur vildi ekki una því og fór með málið fyrir dóm. Sigr- aði hann bæði í héraði og Hæsta- rétti sem heimilaði að Vilhjálmur ætti rétt á að skoða gögn félagsins. Í kjölfarið varð slík óeining innan félagsins að Alþýðusamband Ís- lands tók félagið yfir og skipaði til- sjónarmann. „Það var stillt upp tveimur list- um, ég stillti upp einum og þeir sem höfðu verið við völd öðrum. Ég og minn listi unnum þá bar- áttu og við tókum við 19. nóvem- ber 2003. Við höfum verið hér síð- an og að mínu mati náð að gera marga góða hluti. Það hefur verið byggt upp félag sem er sterkt fjár- hagslega og telur rúmlega þrjú þúsund félagsmenn.“ Hefur aldrei neinn lagt í að fara á móti þér? „Nei, það hefur enginn gert og vonandi er það vegna þess að fé- lagsmenn eru sáttir við okkar störf sem förum með stjórn félags- ins,“ svarar Vilhjálmur, en kveðst harðákveðinn í að færa sig um set í starfi missi hann neistann. „Þá mun ég stíga til hliðar en ég hef enn brennandi áhuga á starfinu. Það er fátt sem veitir mér meiri ánægju en að tilkynna félags- mönnum þegar við höfum haft betur eða náð árangri í að lagfæra kjör fólks. Frá þeim tíma sem við tókum við höfum við innheimt yfir 520 milljónir vegna kjarasamn- ingsbrota. Hafi ég verið í vafa um tilvist stéttarfélaga þá hvarf sá vafi eins og dögg fyrir sólu eftir að ég tók við starfinu vegna þess að leik- urinn, vinnuveitandi gegn starfs- manni, er svo ójafn.“ Er eitthvað mál sem hefur kom- ið inn á borð til þín á þessum árum sem stendur upp úr? „Mér er minniststætt mál sem kom upp í fyrra. Það voru hjón sem misstu son sinn eftir að hann hafði svipt sig lífi. Þar gat ég sett mig í þeirra spor. Ég reyndi að lið- sinna þeim eftir fremsta megni og lét þau fá gjafakort til að nýta fyr- ir jólin. Það eitt og sér linaði auð- vitað ekki þjáningar þessa fólks en ég veit að þetta kom sér vel fyrir unnustu mannsins og barn þeirra. Þetta var ekki stórt en það snart mig þakklætið. Það eru líka litlu hlutirnir sem skipta máli. Þarna gat ég líka notað mína sáru lífs- reynslu til góðs. Ég þekki það af eigin raun að missa barn. Enginn getur ímyndað sér sársaukann nema að hafa upplifað það á eig- in skinni. Þú jafnar þig aldrei en þú lærir að lifa með því.“ Þegar Vilhjálmur er spurður um mál þar sem hann hefði vilj- að ná betri árangri æsist hann all- ur upp. Keppnisskapið er mikið og réttlætistilfinning ... Það er af nægu að taka. Verkalýðsbarátta er eilífðarverkefni. „Lágmarkslaun á Íslandi eru 280 þúsund krónur sem er langt undir viðmiðum sem velferð- arráðuneytið hefur gefið út sem neysluviðmið. Það er okkur í verka- lýðsbaráttunni, samtökum at- vinnulífsins og raun samfélaginu öllu til ævarandi skammar, að vera með launakjör sem duga ekki fyr- ir þeim framfærsluviðmiðum sem hafa verið gefin út. Það er ég ósátt- astur við. Þá er illa gert af stjórn- völdum á hverjum tíma fyrir sig að voga sér að taka 53 þúsund krónur í skatta af lágmarkslaunum upp á 280 þúsund. Það er algjörlega sturl- að á sama tíma og ráðuneytið segir að þú þurfir ráðstöfunartekjur upp á 350 til 400 þúsund til að ná end- um saman,“ segir Vilhjálmur. Hon- um finnst erfitt að horfast í augu við það að ekki hafi tekist betur að slá skjaldborg utan um þá sem standa höllustum fæti í samfélaginu. Hinir ríku verja verðtryggingu Það verður ekki hjá því komist að ræða verðtrygginguna við verka- lýðsforingjann. Það má heyra gleðitón í rödd Vilhjálms en svo breytist tónninn snögglega. Vil- hjálmur kveðst berjast fyrir afnámi verðtryggingar og lækkun vaxta á meðan hann standi uppréttur. Að hans mati valda verðtrygging og vextir mestum ójöfnuði á Ís- landi og auðvelt sé að útskýra það. Vilhjálmur situr beggja megin borðsins og stýrir félagi með digra sjóði og á því auðveldara með að sjá hin hryllilegu áhrif sem þetta hefur á alþýðu landsins. „Þegar verðbólgan hækkar um ákveðna X tölu, þá detta kannski inn á okkar reikninga tvær, þrjár milljónir, þá þegar neysluvísitalan hækkar mest á milli mánaða. Ég geri mér grein fyrir hvaðan þess- ir peningar koma. Þeir koma frá mínum eigin félagsmönnum og þeim sem skulda fjármálastofn- unum. Þess vegna veit ég að fjár- málaöflin, þeir sem eiga pen- ingana, fjármálaelítan vill ekki undir nokkrum kringumstæðum afnema verðtrygginguna vegna þess að verðtrygging er ekkert annað en vextir sem skilar auknu magni til þeirra ríku.“ Húsnæðisliður „Ég hef líka barist fyrir öðru sem skiptir gríðarlega miklu máli. Það er að svokallaður húsnæðisliður sé inni í lögum um vexti og verð- tryggingu. Þetta þekkist ekki í neinum löndum sem við erum að bera okkur saman við. Bara á síð- ustu 12 mánuðum, svo fólk átti sig á þessu, ef húsnæðisliðurinn væri ekki inni þá hefðu verðtryggðar skuldir lækkað um 43 milljarða, en vegna þess að húsnæðisliðurinn er inni þá hækkuðu skuldirnar um 36 milljarða. Þetta er mismunur upp á um 80 milljarða sem er ver- ið að færa frá skuldsettum heimil- um til þeirra sem eiga fjármagnið,“ segir Vilhjálmur og bætir við að um sé að ræða tölur sem myndu duga fyrir nýjum spítala. „Þetta eru sturlaðar tölur. Það voru all- ir stjórnmálaflokkar, heyrðist mér, fyrir síðustu kosningar sem vildu taka húsnæðisliðinn út.“ Vilhjálmur bendir á að í nýjum stjórnarsáttmála sé nú talað um að taka húsnæðislið til skoðunar. „Þetta breytist alltaf eftir kosn- ingar, þá á að fara skoða. Það er líka svo auðvelt að standa við það. Það er svo auðvelt að skoða hlutina og gera svo ekki neitt.“ Að mati Vilhjálms þarf að breyta tveimur atriðum í lögum um vexti og verðtryggingu, taka húsnæð- islið út og afnema verðtryggingu og það þurfi að ráðast í strax. Bæt- ir Vilhjálmur við og er mikið niðri fyrir að löngu tímabært sé að stjórnvöld taki stöðu með almenn- ingi í landinu og hætti skefjalausu dekri við fjármálaöflin í landinu. Eru það ekki fjármálaöflin sem stjórna landinu en ekki stjórn- málamennirnir? „Það liggur fyrir. Það er eins og stjórnmálamenn á hvaða tíma sem er þori ekki almennilega að fara gegn þessum öflum,“ segir Vilhjálmur og tekur nýlega bónusa sem dæmi. Frétt um að stjórn- endur Klakka hefðu samþykkt að greiða sér himinháa bónusa hefur vakið reiði. „Þar er verið að afhenda 550 milljónir til 9 einstaklinga, um 60 milljónir á mann, og þetta fyrir- tæki tengdist Exista, Lýsingu sem fóru í þrot á sínum tíma og skildu eftir sig blóðuga slóð hjá þúsund- um Íslendinga,“ segir Vilhjálmur. Nú fýkur verulega í verkalýðsfor- ingjann sem segir með öllu ólíð- andi að misbjóða siðferðis- og réttlætiskennd þjóðarinnar með þessum hætti. „Við Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, ætlum að mótmæla þessu klukkan 13.00 og þenja flautur fyrir utan skrif- stofur félagsins. Við mótmælum þessu siðrofi sem menn virðast ætla að ástunda enn og aftur.“ Vilhjálmur og Ragnar eru miklir mátar og hafa þekkst í átta ár, eða allt frá því að Ragnar fór að skipta sér af verkalýðsmálum. Þeir búa yfir svipaðri sýn í pólitík. Það vakti mikla athygli þegar Ragnar sigr- aði í formannskosningu VR. Ragn- ar og Vilhjálmur eiga það sameig- inlegt að hafa farið gegn ríkjandi stjórn og sigrað. Vilhjálmur barðist við varaforseta Alþýðusambands- ins á Akranesi. „Það er ævintýralegt hvernig Ragnar komst til valda. Hann sigr- aði þessa risa með forystu Alþýð- usambandsins á móti sér. En það skiptir ekki öllu máli hvort mað- ur sé innundir hjá forystunni, það eru félagsmennirnir, að fá fólkið til að styðja sig.“ Enn og aftur eru lífeyrissjóðir að koma við sögu þegar berast tíð- indi af bónusum. Það fauk í ykkur Ragnar við þessi tíðindi, ekki satt? „Heldur betur. Lífeyrissjóðirnir teygja anga sína nánast inn í hvert einasta fyrirtæki á landinu. Það gerir það að verkum að samkeppn- isstaða á olíumarkaði, fjarskipta- markaði og flutningageira verð- ur engin þegar lífeyrissjóðir eiga orðið nánast 50 prósent eða meira í þessum fyrirtækjum. Þetta bitnar á okkur sjálfum, sjóðsfélögum og vöruverð hækkar.“ Þá bendir Vilhjálmur á að sjóðirnir eigi einnig stóran hlut í Gamma og Heimavöllum. „Sjóðirnir eru komnir úti um allt sem gerir það að verkum að húsnæði og leiguverð hefur snarhækkað. Hvert fer það? Nú, beint út í vísitöluna sem við fáum í bakið í hækkun á höfuðstól ís- lenskra lána.“ Vilhjálmur bætir við að fast- eignasjóðirnir hafi sett ungt fólk í húsnæðisvanda. Fólk býr jafn- vel heima þar til það er komið á fertugsaldur og þá eru fjölmörg dæmi um að fullorðnir einstak- lingar taki sig saman í að Trúir á líf eftir dauðann „Ég vil trúa því að ég finni fyrir hon- um, það sé líf eftir dauðann Verkamaður „Ég þekki nákvæmlega þá stöðu sem allt of margir eru í, að vera orðinn auralaus þegar það eru fimm til tíu dagar í mánaðamót,“ segir Vilhjálmur. Mynd Sigtryggur Ari Óttar með syni sínum Vilhjálmur missti son sinn, Óttar, vorið 2014.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.