Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 15. desember 2017fréttir Á dögunum var íslenskur karl- maður á fimmtugsaldri handtekinn við komu sína til Buenos Aires, höfuðborgar Argentínu. Maðurinn var í fylgd með þarlendri eiginkonu sinni og kom handtakan honum gjörsam- lega í opna skjöldu. Síðar kom í ljós að maðurinn var handtekinn vegna meintra misgjörða íslensks nafna síns gegn argentínskri kærustu sinni. Þeir eru einu mennirnir sem bera þetta tiltekna nafn á Íslandi. „Þetta var ótrúleg tilviljun,“ segir maðurinn, sem lýsir þrautagöngu sinni í viðtali við DV. Rétt er að geta þess að viðmælandinn kemur ekki fram undir réttu nafni enda eru þeir aðeins tveir, nafnarnir. „Þetta eru ekki algeng nöfn, það er ekki eins og ég heiti Jón Jónsson,“ segir mað- urinn, sem við skulum kalla Áka. Kynntust á netinu Áki og argentínsk eiginkona hans ákváðu að verja sumarfríi sínu í að heimsækja fjölskyldu henn- ar í Buenos Aires og ferðast að- eins um Suður-Ameríku. Alls átti ferðalagið að taka rúman mánuð. Þetta var í annað skiptið sem Áki hafði heimsótt argentínsku höfuðborgina. „Við kynntumst í gegnum netið og spjölluðum mikið saman. Síðan ákvað ég að heimsækja hana til Buenos Aires fyrir rúmu ári síðan og dvaldi þar í sex daga. Við héldum áfram góðu sambandi eftir að ég kom heim og hún endurgalt heimsóknina stuttu síðar. Í framhaldinu giftum við okkur og búum núna saman á Íslandi,“ segir Áki. Öryggisvörður beið við land- ganginn Ferðalagið frá Íslandi til Argent- ínu er bæði langt og strangt. „Við vorum búin að ferðast í rúm- lega sólarhring og vorum því afar þreytt þegar flugvélin loks lenti,“ segir Áki. Hann gekk inn land- ganginn frá flugvélinni en kom þá skyndilega auga á öryggis- vörð sem mændi á hann með einhverja pappíra í hendinni. „Hann gengur síðan í veg fyr- ir mig og biður mig um að koma afsíðis með sér,“ segir Áki. Hann var eðlilega mjög undrandi og eiginlega hálfskelkaður. „Ég fór strax að hugsa um hvað í ósköp- unum væri í gangi, hvað ég gæti hafa gert af mér. Datt helst í hug að ég hefði gleymt að borga mini- barinn í síðustu ferð til Buenos Aires,“ segir Áki og brosir. Vildi ekki skrifa undir skjöl sem hann skildi ekki Öryggisvörðurinn talaði litla sem enga ensku og gat því ekki útskýrt neitt fyrir honum. Áki var síðan færður í eins konar yfirheyrslu- herbergi og mátti dúsa þar dá- góða stund þar til lögreglumenn mættu á svæðið. „Konan mín fékk ekki að fylgja mér og var gert að yfirgefa svæðið. Hún fór síð- an út úr flugstöðinni, þar sem tengdaforeldrar mínir biðu eftir okkur, og tilkynnti þeim grátandi að ég hefði verið handtekinn,“ segir Áki. Skömmu síðar komu lög- reglumenn inn í herbergi til Áka með alls konar pappíra sem þeir vildu ólmir að Áki skrifaði undir. „Enska þeirra var mjög takmörk- uð en smám saman komst ég í skilning um að einhver þarlend kona hefði kært mig fyrir eitthvað sem ég vissi ekki hvað var. Ég sá nafnið hennar á blaðinu sem ég átti að kvitta á en skildi ekki mik- ið meira. Það kom auðvitað ekki til greina að skrifa undir einhver plögg án þess að vita hvað kæmi fram í þeim,“ segir Áki. Settur í nálgunar- og farbann Á þessum tímapunkti var hann orðinn smeykur um að enda í argentínsku fangelsi en það eru víst ekki vistlegir staðir. „Mað- ur hefur heyrt hryllingssögur um fangelsi á þessum slóðum og þeir virtust ekkert á leiðinni að sleppa mér. Ég var orðinn mjög hræddur um að þurfa að gista í fangaklefa,“ segir Áki. Til þess kom ekki en alls þurfti Áki að dúsa í varðhaldi í rúmar sex klukkustundir. „Að lokum var mér gert það ljóst að ef ég myndi ekki skrifa undir skjölin þá yrði ég færður í fangelsi. Ég lét loks- ins undan þegar í ljós kom að ég væri að samþykkja nálgunar- bann gegn þessari tilteknu konu sem ég hafði aldrei hitt sem og farbann úr landinu. Þá átti ég að mæta fyrir dómara eftir helgina,“ segir Áki en hann og eiginkona hans höfðu lent á föstudegi í Bu- enos Aires. Hann mat valkostina og ákvað að skrifa undir skjölin. Þá var honum sleppt úr haldi. Fundu nafnann á Facebook „Ég hafði aldrei áhyggjur af því að ég fengi einhvern dóm. Ég hafði aðallega áhyggjur af því hvort málið myndi dragast á langinn enda hreyfist allt opinbera kerfið í Argentínu á snigilshraða. Ég var líka hræddur um að þetta gæti kostað heilan handlegg,“ seg- ir Áki. Hann og argentínska fjöl- skyldan hans höfðu helgina til þess að undirbúa málsvörn sína. Eiginkona hans hafði strax uppi á íslenskum nafna Áka á Face- book og þá kom hið sanna strax í ljós. „Þetta er eini nafni minn samkvæmt þjóðskrá. Við sáum á myndum að hann hafði verið mikið í Argentínu og þar með var ljóst hvar hundurinn lá grafinn,“ segir Áki. Hann prentaði út all- ar mögulegar upplýsingar um manninn og undirbjó sig af kost- gæfni fyrir réttarhöldin. „Tengdafaðir minn hafði sam- band við lögmann sem hann kannaðist við og sá var boðinn og búinn til að aðstoða mig. Mér leist þó ekki á blikuna þegar hann fór að tala um að sækja um að fresta málinu og að kostnaðurinn yrði 2.000 bandarískir dollarar,“ segir Áki, sem ákvað að þiggja ekki þá þjónustu. Á mánudegi mætti Áki ásamt eiginkonu sinni fyrir dóm. Þar voru sakarefnin lesin upp og hann fékk síðan tækifæri til að verja sig. „Málið tók örugglega 2–3 klukkustundir og ég lagði fram alls konar gögn máli mínu til stuðnings,“ segir Áki. Dómarinn skammaðist sín Að hans sögn var greinilegt hvernig dómari málsins fór nán- ast að sökkva niður í stólinn enda öllum ljóst hversu fáránleg- ur málatilbúnaður lögregluyfir- valda var. „Ég fékk loks að fara en var komið í skilning um að kon- an, sem hafði kært nafna minn, þyrfti að mæta á lögreglustöðina, skoða af mér fangamynd og stað- festa að ég væri ekki sá sem hún hafði kært,“ segir Áki. Það hafi síðan átt sér stað daginn eftir og þá loks fékk Áki tilkynningu um að málið væri úr sögunni. Hann varð þó ekki rólegur alveg strax. „Ég krafðist þess að fá opin- bera yfirlýsingu um að ég væri ekki í farbanni og að ég tengdist þessu máli ekkert. Ég var hrædd- ur við að þegar ég færi úr landi þá væri kannski þetta mál ennþá hangandi yfir mér,“ segir Áki. Að hans sögn eyðilagði þessi upp- ákoma þó fyrstu viku ferðarinn- ar til Argentínu en hann og eig- inkona hans reyndu sitt besta til þess að gleyma því og njóta lífs- ins það sem eftir lifði ferðarinn- ar. Málið var þó ekki alveg búið. Nafninn laus allra mála „Eftir að þetta mál kom upp var forvitni okkar vakin á þessum nafna mínum. Eiginkona mín kíkti síðan nokkru síðar inn á Facebook-síðu hans og öskr- aði upp fyrir sig að hann væri kominn til Argentínu,“ segir Áki. Það reyndist vera raunin, þeir nafnarnir voru báðir stadd- ir í Argentínu á sama tíma en sá sem hafði verið sakaður um of- beldi hafði komið talsvert síð- ar. „Það virðist sem svo að mál- ið hafi verið afgreitt sem bull og bara þurrkað út úr réttarkerf- inu þarna úti í Argentínu. Nafni minn gat því komið óáreittur inn í landið á meðan ég óð eld og brennistein fyrir hann. Hann getur þakkað mér það,“ segir Áki og hlær. n Íslendingur handtekinn Í Buenos aires fyrir meint afBrot nafna sÍns „Ótrúleg tilviljun Einu tveir sem heita þessu nafni og voru báðir í tygjum við argentínskar konur Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Frá Buenos Aires Íslendingurinn þurfti að dúsa í varðhaldi í sex klukkutíma við komuna til höfuðborgarinnar og mæta fyrir dómara nokkrum dögum síðar fyrir meintar sakir nafna síns. Krossar á leiði f. 3xD rafhlöður Hvítir Kr. 3.700,- Ármúla 19 · Sími 568 1620 www.gloey.is · gloey@gloey.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.