Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Qupperneq 4
4 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
Á
dögunum var íslenskur karl-
maður á fimmtugsaldri
handtekinn við komu sína til
Buenos Aires, höfuðborgar
Argentínu. Maðurinn var í fylgd
með þarlendri eiginkonu sinni og
kom handtakan honum gjörsam-
lega í opna skjöldu. Síðar kom í ljós
að maðurinn var handtekinn vegna
meintra misgjörða íslensks nafna
síns gegn argentínskri kærustu
sinni. Þeir eru einu mennirnir sem
bera þetta tiltekna nafn á Íslandi.
„Þetta var ótrúleg tilviljun,“ segir
maðurinn, sem lýsir þrautagöngu
sinni í viðtali við DV. Rétt er að geta
þess að viðmælandinn kemur ekki
fram undir réttu nafni enda eru þeir
aðeins tveir, nafnarnir. „Þetta eru
ekki algeng nöfn, það er ekki eins
og ég heiti Jón Jónsson,“ segir mað-
urinn, sem við skulum kalla Áka.
Kynntust á netinu
Áki og argentínsk eiginkona hans
ákváðu að verja sumarfríi sínu í
að heimsækja fjölskyldu henn-
ar í Buenos Aires og ferðast að-
eins um Suður-Ameríku. Alls átti
ferðalagið að taka rúman mánuð.
Þetta var í annað skiptið sem
Áki hafði heimsótt argentínsku
höfuðborgina. „Við kynntumst
í gegnum netið og spjölluðum
mikið saman. Síðan ákvað ég að
heimsækja hana til Buenos Aires
fyrir rúmu ári síðan og dvaldi þar í
sex daga. Við héldum áfram góðu
sambandi eftir að ég kom heim
og hún endurgalt heimsóknina
stuttu síðar. Í framhaldinu giftum
við okkur og búum núna saman á
Íslandi,“ segir Áki.
Öryggisvörður beið við land-
ganginn
Ferðalagið frá Íslandi til Argent-
ínu er bæði langt og strangt. „Við
vorum búin að ferðast í rúm-
lega sólarhring og vorum því afar
þreytt þegar flugvélin loks lenti,“
segir Áki. Hann gekk inn land-
ganginn frá flugvélinni en kom
þá skyndilega auga á öryggis-
vörð sem mændi á hann með
einhverja pappíra í hendinni.
„Hann gengur síðan í veg fyr-
ir mig og biður mig um að koma
afsíðis með sér,“ segir Áki. Hann
var eðlilega mjög undrandi og
eiginlega hálfskelkaður. „Ég fór
strax að hugsa um hvað í ósköp-
unum væri í gangi, hvað ég gæti
hafa gert af mér. Datt helst í hug
að ég hefði gleymt að borga mini-
barinn í síðustu ferð til Buenos
Aires,“ segir Áki og brosir.
Vildi ekki skrifa undir skjöl sem
hann skildi ekki
Öryggisvörðurinn talaði litla sem
enga ensku og gat því ekki útskýrt
neitt fyrir honum. Áki var síðan
færður í eins konar yfirheyrslu-
herbergi og mátti dúsa þar dá-
góða stund þar til lögreglumenn
mættu á svæðið. „Konan mín
fékk ekki að fylgja mér og var gert
að yfirgefa svæðið. Hún fór síð-
an út úr flugstöðinni, þar sem
tengdaforeldrar mínir biðu eftir
okkur, og tilkynnti þeim grátandi
að ég hefði verið handtekinn,“
segir Áki.
Skömmu síðar komu lög-
reglumenn inn í herbergi til Áka
með alls konar pappíra sem þeir
vildu ólmir að Áki skrifaði undir.
„Enska þeirra var mjög takmörk-
uð en smám saman komst ég í
skilning um að einhver þarlend
kona hefði kært mig fyrir eitthvað
sem ég vissi ekki hvað var. Ég sá
nafnið hennar á blaðinu sem ég
átti að kvitta á en skildi ekki mik-
ið meira. Það kom auðvitað ekki
til greina að skrifa undir einhver
plögg án þess að vita hvað kæmi
fram í þeim,“ segir Áki.
Settur í nálgunar- og farbann
Á þessum tímapunkti var hann
orðinn smeykur um að enda í
argentínsku fangelsi en það eru
víst ekki vistlegir staðir. „Mað-
ur hefur heyrt hryllingssögur um
fangelsi á þessum slóðum og þeir
virtust ekkert á leiðinni að sleppa
mér. Ég var orðinn mjög hræddur
um að þurfa að gista í fangaklefa,“
segir Áki.
Til þess kom ekki en alls þurfti
Áki að dúsa í varðhaldi í rúmar
sex klukkustundir. „Að lokum var
mér gert það ljóst að ef ég myndi
ekki skrifa undir skjölin þá yrði
ég færður í fangelsi. Ég lét loks-
ins undan þegar í ljós kom að
ég væri að samþykkja nálgunar-
bann gegn þessari tilteknu konu
sem ég hafði aldrei hitt sem og
farbann úr landinu. Þá átti ég að
mæta fyrir dómara eftir helgina,“
segir Áki en hann og eiginkona
hans höfðu lent á föstudegi í Bu-
enos Aires. Hann mat valkostina
og ákvað að skrifa undir skjölin.
Þá var honum sleppt úr haldi.
Fundu nafnann á Facebook
„Ég hafði aldrei áhyggjur af því að
ég fengi einhvern dóm. Ég hafði
aðallega áhyggjur af því hvort
málið myndi dragast á langinn
enda hreyfist allt opinbera kerfið
í Argentínu á snigilshraða. Ég var
líka hræddur um að þetta gæti
kostað heilan handlegg,“ seg-
ir Áki. Hann og argentínska fjöl-
skyldan hans höfðu helgina til
þess að undirbúa málsvörn sína.
Eiginkona hans hafði strax uppi
á íslenskum nafna Áka á Face-
book og þá kom hið sanna strax
í ljós. „Þetta er eini nafni minn
samkvæmt þjóðskrá. Við sáum
á myndum að hann hafði verið
mikið í Argentínu og þar með var
ljóst hvar hundurinn lá grafinn,“
segir Áki. Hann prentaði út all-
ar mögulegar upplýsingar um
manninn og undirbjó sig af kost-
gæfni fyrir réttarhöldin.
„Tengdafaðir minn hafði sam-
band við lögmann sem hann
kannaðist við og sá var boðinn og
búinn til að aðstoða mig. Mér leist
þó ekki á blikuna þegar hann fór
að tala um að sækja um að fresta
málinu og að kostnaðurinn yrði
2.000 bandarískir dollarar,“ segir
Áki, sem ákvað að þiggja ekki þá
þjónustu. Á mánudegi mætti Áki
ásamt eiginkonu sinni fyrir dóm.
Þar voru sakarefnin lesin upp og
hann fékk síðan tækifæri til að
verja sig. „Málið tók örugglega
2–3 klukkustundir og ég lagði
fram alls konar gögn máli mínu
til stuðnings,“ segir Áki.
Dómarinn skammaðist sín
Að hans sögn var greinilegt
hvernig dómari málsins fór nán-
ast að sökkva niður í stólinn
enda öllum ljóst hversu fáránleg-
ur málatilbúnaður lögregluyfir-
valda var. „Ég fékk loks að fara en
var komið í skilning um að kon-
an, sem hafði kært nafna minn,
þyrfti að mæta á lögreglustöðina,
skoða af mér fangamynd og stað-
festa að ég væri ekki sá sem hún
hafði kært,“ segir Áki. Það hafi
síðan átt sér stað daginn eftir og
þá loks fékk Áki tilkynningu um
að málið væri úr sögunni. Hann
varð þó ekki rólegur alveg strax.
„Ég krafðist þess að fá opin-
bera yfirlýsingu um að ég væri
ekki í farbanni og að ég tengdist
þessu máli ekkert. Ég var hrædd-
ur við að þegar ég færi úr landi
þá væri kannski þetta mál ennþá
hangandi yfir mér,“ segir Áki. Að
hans sögn eyðilagði þessi upp-
ákoma þó fyrstu viku ferðarinn-
ar til Argentínu en hann og eig-
inkona hans reyndu sitt besta til
þess að gleyma því og njóta lífs-
ins það sem eftir lifði ferðarinn-
ar. Málið var þó ekki alveg búið.
Nafninn laus allra mála
„Eftir að þetta mál kom upp var
forvitni okkar vakin á þessum
nafna mínum. Eiginkona mín
kíkti síðan nokkru síðar inn á
Facebook-síðu hans og öskr-
aði upp fyrir sig að hann væri
kominn til Argentínu,“ segir
Áki. Það reyndist vera raunin,
þeir nafnarnir voru báðir stadd-
ir í Argentínu á sama tíma en sá
sem hafði verið sakaður um of-
beldi hafði komið talsvert síð-
ar. „Það virðist sem svo að mál-
ið hafi verið afgreitt sem bull og
bara þurrkað út úr réttarkerf-
inu þarna úti í Argentínu. Nafni
minn gat því komið óáreittur
inn í landið á meðan ég óð eld
og brennistein fyrir hann. Hann
getur þakkað mér það,“ segir Áki
og hlær. n
Íslendingur
handtekinn Í Buenos
aires fyrir meint
afBrot nafna sÍns
„Ótrúleg
tilviljun
Einu tveir sem heita þessu nafni og voru báðir í tygjum við argentínskar konur
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Frá Buenos Aires
Íslendingurinn þurfti að
dúsa í varðhaldi í sex
klukkutíma við komuna
til höfuðborgarinnar
og mæta fyrir dómara
nokkrum dögum síðar fyrir
meintar sakir nafna síns.
Krossar á leiði
f. 3xD rafhlöður
Hvítir
Kr. 3.700,-
Ármúla 19 · Sími 568 1620
www.gloey.is · gloey@gloey.is