Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 66
66 menning - sjónvarp Helgarblað 15. desember 2017 Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum. Einnig sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfurplett. Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. Sjálflímandi hnífaparaskorður Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is Sendum í póSt- kröfu Hefur séð meira en 10 þúsund bíómyndir n Agnar horfir á um 300 myndir á ári n Kláraði Bókabílinn 9 ára A gnar Kristján Þorsteins- son, sem þekktur er fyrir beitta pistla á Stundinni sem AK-72, er nýkominn af ráðstefnunni For the Love of Sci-Fi sem haldin var í Manche- ster í Bretlandi. Þar hitti hann meðal annars vöðvatröllið Dolph Lundgren og Star Trek-goðsögn- ina William Shatner. Agnar er mikill kvikmyndaáhugamað- ur og hefur ábyggilega séð fleiri kvikmyndir en flestir Íslendingar. DV spjallaði við Agnar um kvik- myndaáhugann. Fríin vel nýtt Hvað heldur þú að þú sért bú- inn að sjá margar kvikmyndir? „Púff, samkvæmt IMDB (gagna- grunninum) eru þær á ellefta þúsund.“ Agnar er 45 ára, sem þýðir að hann hefur séð um 300 nýjar myndir á hverju ári síð- an hann komst til vits og ára. Sum- ar af myndunum hefur hann séð nokkrum sinnum. Auk kvik- myndanna kemst hann yfir mikið af öðru menningarefni, svo sem bókum, plötum, þáttaröðum, teiknimyndasögum og tölvuleikj- um. Fríin eru vel nýtt til menn- ingarneyslu. Á þremur vikum í ágúst náði hann að komast yfir fimmtíu og hálfa kvikmynd, sex bækur, tvær þáttaraðir og kláraði tvo tölvuleiki. Agnar er þó mjög félagslyndur og þessi mikla tíma- skuldbinding kemur ekki niður á félagslífinu. Setur þú þér mark- mið fyrir hvert frí? „Nei, engin sérstök markmið nema að vinna upp eitthvað sem er uppsafnað. Hef þó oft notað fyrstu vikuna í að taka stærstu skammtana til að komast í frígírinn. Maður ákveð- ur að kominn sé tími á að keyra eitthvað í gegn sem hefur leg- ið uppi í hillu vegna lengdar eða þá að það sé eitthvað sem krefst ákveðinnar stemningar.“ Kláraði Bókabílinn níu ára Agnar er í klúbbi kvikmyndaá- hugamanna sem hefur þann sið að minnast þekktra leikara eða leikstjóra þegar þeir falla frá með því að horfa á sí- gilda mynd frá ferlin- um. „Þetta er bæði gott tækifæri til að rifja upp góðar myndir og einnig er þetta nokkurs konar erfidrykkja okkar kvik- myndanjörðanna.“ Jafnframt seg- ir Agnar að enduráhorf segi mikið til um hversu góðar myndirnar séu í raun og veru. Horfirðu á einhverjar kvik- myndir af skyldurækni? „Já, þetta sem maður þarf nauðsynlega að sjá sem kvikmyndaáhugamað- ur. Sumt af því er þannig að það veitir manni enga sérstaka gleði en maður þarf allavega ekki að horfa á það aftur frekar en maður vill. Skondið er að það sem mað- ur hefur verið hræddastur um að þurfa að tækla, stóru Bergman- myndirnar, hafa komið manni vel á óvart. Mig grunar að sú hræðsla hafi verið vegna allra sænskra vandamálamynda sem RÚV bauð upp á þegar maður var krakki og fjölmargir blótuðu meira en sjón- varpslausa fimmtudeginum.“ Hann hefur verið bókaormur síðan hann var krakki og drukk- ið í sig ógrynni af fróðleik og skemmtun. „Þegar ég var níu ára var ég búinn að klára allar bækurnar í Bókabílnum. Þá fór ég að laumast í Alistair McLe- an og Sven Hazell. Ég tek stund- um lestrarköst en svo dettur það niður í örfáar bækur á ári þess á milli.“ n Dolph og Agnar For the Love of Sci-Fi ráðstefnan í Manchester. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is E ftir pínu vonbrigði með The Force Awakens, vegna líkindanna með elstu myndinni, voru væntingarn- ar þær að sú nýja myndi feta í fót- spor á The Empire strikes back, sem er álitin besta Star Wars- myndin. Hún gerir það að einhverju leyti, en væntingar eru þó best geymdar heima. Söguþráður- inn er lengi í gang. Þá er fullmikið gert úr tveimur nýjum persónum, sem gera lítið fyrir aðalsöguþráð- inn. Galli myndarinnar er að hana skortir virðinguna fyrir áferð og alvarleika eldri myndanna. Upphafsatriðið setur svo- lítið tóninn þar, þegar Rey rétt- ir Luke gamla geislasverðið sitt. Þar (kyber)kristallast munurinn á leikstjórunum J.J. Abrams og Rian Johnson. Þótt eldri myndirnar hafi auðvitað boðið upp á nokkra góða brandara inn á milli, er hér gengið aðeins of langt fyrir smekk ofanrit- aðs, er ólst upp með gömlu mynd- unum og ber því óttablandna og nostalgíska virðingu fyrir þeirri arfleifð, því samtölin og leikurinn í nýjustu myndinni ná ekki alltaf að vega upp á móti gríninu og fyrir vikið er stundum eins og um fram- haldsmynd Spaceballs sé að ræða. Eða svona, næstum því. Ættfræðin er stór hluti af Star Wars, en nokkurra vonbrigða gætti varðandi ættlegg tveggja aðal- persóna myndarinnar. Hugsanlega eru þó ekki öll kurl komin til graf- ar. Þá kemur á óvart hvernig örlög- um stórra aðalpersóna er háttað, ekki síst þegar haft er í huga hvað þriðja myndin í bálknum mun bjóða upp á þegar hún kemur út. Það góða við myndina er að hún kemur á óvart, er yfirfull af flottum bardögum og kafar dýpra í fræði Máttarins en áður hefur verið gert, jafnvel með erótískum hætti, sem minnir á daður á samfélagsmiðl- um. Hún er fyndin, skemmtileg og heldur manni vel við efnið, sérstak- lega í seinni hálfleik. Hún er yfir- full af myndmáli og vísbendingum sem fara eflaust framhjá mörgum í fyrstu atrennu, þar með talið ofan- rituðum, sem gerir það að verkum, að maður „neyðist“ víst til að sjá hana aftur. n Hasar, grín og geislasverð Trausti Salvar Kristjánsson traustisalvar@eyjan.is Kvikmyndir Star Wars: The Last Jedi Spennu- og ævintýramynd Aðalhlutverk: Daisy Ridley, Mark Hamill og Adam Driver Leikstjóri: Rian Johnson Lengd: 152 mínútur Bókin á náttborðinu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra „Ég var að lesa Ragnar Jónasson. Mistur heitir nýjasta bókin hans og ég var mjög ánægð. Mjög spennandi, hann er að útvíkka formið með mjög góðum árangri.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.