Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 18
18 Helgarblað 15. desember 2017fréttir Í slendingar eru í óða önn að birgja sig upp af ýmiskonar vör- um fyrir jólahátíðina. DV ákvað að gera létta verðkönnun á nokkrum mikilvægum hlutum í íslensku jólahaldi. Á mjög óvís- indalegum hugmyndafundi rit- stjórnar blaðsins var komist að því fimm hlutir væru algjörlega ómis- sandi, jólatré, hangikjöt, Nóa-Sirí- us konfekt, malt og appelsín auk nýjustu bókar Arnalds Indriða- sonar. Blaðamaður settist því næst yfir niðurstöðurnar og útfærði þær nánar. Ákvað ykkar einlægur upp á sitt einsdæmi að skoða verðið á norð- mannsþin sem og 1 kílógramma pakka af Nóa-Siríus súkkulaði. Þá ákvað blaðamaður að vera húðlatur og kaupa tilbúnar dósir af malti og appelsíni í stað þess að kaupa maltið og appelsínið hvort í sínu lagi. Margir möguleikar eru í boði varðandi hangikjötið en þar sem blaðamaður á það til að vera fullur af skít kann hann best að meta taðreykt kjöt. Varð niður- staðan sú að freista þess að finna ódýrasta kjötið af þeirri tegund í hverri og einni verslun. Verð- könnunin fór síðan fram þann 13. desember síðastliðinn. n Jólatrén ódýrust í Iceland Af hinum hefðbundnu matvöruverslunum eru aðeins tvær sem selja jólatré, Costco og Iceland. Costco bauð aðeins upp á tré sem voru 2,1–2,4 metrar að stærð og því freistaði blaðamaður þess að skoða verðið á þessari stærð hjá samkeppnisaðilum. Niðurstaðan varð sú að Iceland bauð upp á langhagstæðasta verðið, eða 3.999 krónur fyrir hvert tré. Þá býður verslunin einnig upp á þau kostakjör að viðskiptavinir fá ókeypis tré ef verslað er fyrir 20 þúsund krónur eða meira í versluninni. Garðheimar voru upphaflega dýrastir en höfðu slengt 20% afslætti á trén þegar DV gerði verðkönnun sína. Það kom því í hlut Blómavals að vera dýrastir en jólatrén þar kostuðu 8.999 krónur ef stærðin var yfir 2 metrar. Þá ber að geta þess að fjölmargir eru ekki að hugsa um hagstæðasta verð þegar fjárfest er í jólatré. Margir upplifa sanna jólastemningu með því að velja sitt tré sjálfir úti í náttúrunni hjá skógræktarfélögum víða um landið og þá eru margir sem styrkja gott málefni með því að versla trén hjá hjálparsveitum. n Iceland – 3.999 krónur (aðeins upp að 2,3 metrum) n Costco – 4.999 krónur (aðeins 2,1–2,4 metrar) n IKEA – 6.899 krónur (2–2,2 metrar) n Garðheimar – 7.960 krónur (2–2,5 metrar – verð með 20% afslætti) n Blómaval – 8.999 krónur (2–2,5 metrar) Iceland með ódýrasta maltið og appelsínið Eins og áður segir ákvað blaðamaður að létta sér lífið með því að kanna verðið á tilbúnu malt og appelsín-blöndunni frá Ölgerðinni. Varan var langódýrust hjá Iceland en Hag- kaup var dýrasta verslunin af þeim sem DV heimsótti. Þó ber að geta þess að ekki var hægt að kaupa drykkinn vinsæla hjá Costco. Verslunarrisinn alþjóðlegi hefur því ekki enn lært inn á íslenskar jólahefðir. n Iceland – 159 krónur n Bónus – 175 krónur n Krónan – 176 krónur n Nettó – 179 krónur n Hagkaup – 199 krónur n Costco – Ekki í boði Nettó hefur vinninginn í hangikjötinu Það er kannski ekki hægt að fullyrða lengur að hangikjöt sé vinsælasta kjötmetið sem Íslendingar leggja sér til munns um jólin en það hlýtur að vera óumdeilt að það tengist íslenskum jólum hvað sterkustu böndunum. Eins og áður segir freistaði blaðamaður þess að skoða verðið á úrbeinuðu taðreyku hangikjötslæri en að sjálfsögðu verður hver og einn að meta gæðin fyrir sig. Ef margar tegundir voru í boði þá var sú ódýrasta valin. Niðurstaðan er sú að ódýrasta hangikjötið fæst í Nettó en dýrasta taðreykta hangikjötið fékkst í Krónunni. n Nettó – Taðreykt hangikjöt frá Kjarnafæði - 2.990 kr/kg n Iceland – Taðreykt hangikjöt frá Kjarnafæði - 2.999 kr/kg n Costco – Taðreykt hangikjöt frá Esju - 3.299 kr/kg n Hagkaup – Taðreykt hangikjöt frá Kjarnafæði - 3.299 kr/kg n Krónan – Taðreykt hangikjöt frá SS - 3.499 kr/kg n Bónus – Taðreykt hangikjöt er ekki í boði. Kofareykt hangikjöt er á 2.798 kr/kg Arnaldur ódýrastur í Bónus Bækur eru ein vinsælasta jólagjöfin hjá landsmönnum og vonandi breytist sú hefð aldrei. Eins og venja er þá trónir Arnaldur Indriðason á toppi metsölulistans og því ljóst að nýjasta verk hans, „Myrkrið veit“, verður í fjölmörgum pökkum. Eins og endranær eru margar matvöruverslanir sem taka þátt í jólabókaflóðinu með því að bjóða upp á bækur á hagstæðu verði. Verk Arnaldar er ódýrast í Bónus en Nettó er skammt á eftir. Athygli vekur að verðið í Costco er á svipuðum stað og tilboðsverð Pennans/Eymundsson. Þá er einnig athyglisvert að Krónan ákvað að bjóða ekki upp á jólabækur í ár. n Bónus – 4.469 krónur n Nettó – 4.473 krónur n Costco – 5.199 krónur n Penninn/Eymundsson – 5.299 krónur á tilboði n Iceland – Ekki í boði n Hagkaup – Ekki í boði n Krónan – Ekki í boði Verðkönnun á fimm ómissandi vörum fyrir jólin Jólatré, Nóa-konfekt, malt og appelsín, hangikjöt og Arnaldur Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Nóa-Konfektið ódýrast hjá Nettó Nóa-Konfektið vinsæla er til í fjölmörgum mismunandi söluumbúðum. Blaðamaður ákvað upp á sitt einsdæmi að kanna verðið á 1 kílógramma pökkunum hjá helstu söluaðilum. Bónus reyndist bjóða upp á ódýrasta verðið en þó munaði aðeins einni krónu á þeim og Krónunni. Dýrast var konfektið í Hagkaup. n Nettó – 2.698 krónur n Bónus – 2.959 krónur n Krónan – 2.960 krónur n Iceland – 3.269 krónur n Hagkaup – 3.299 krónur n Costco – Ekki í boði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.