Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 18
18 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
Í
slendingar eru í óða önn að
birgja sig upp af ýmiskonar vör-
um fyrir jólahátíðina. DV ákvað
að gera létta verðkönnun á
nokkrum mikilvægum hlutum í
íslensku jólahaldi. Á mjög óvís-
indalegum hugmyndafundi rit-
stjórnar blaðsins var komist að því
fimm hlutir væru algjörlega ómis-
sandi, jólatré, hangikjöt, Nóa-Sirí-
us konfekt, malt og appelsín auk
nýjustu bókar Arnalds Indriða-
sonar. Blaðamaður settist því næst
yfir niðurstöðurnar og útfærði þær
nánar.
Ákvað ykkar einlægur upp á sitt
einsdæmi að skoða verðið á norð-
mannsþin sem og 1 kílógramma
pakka af Nóa-Siríus súkkulaði. Þá
ákvað blaðamaður að vera húðlatur
og kaupa tilbúnar dósir af malti
og appelsíni í stað þess að kaupa
maltið og appelsínið hvort í sínu
lagi. Margir möguleikar eru í
boði varðandi hangikjötið en þar
sem blaðamaður á það til að vera
fullur af skít kann hann best að
meta taðreykt kjöt. Varð niður-
staðan sú að freista þess að finna
ódýrasta kjötið af þeirri tegund
í hverri og einni verslun. Verð-
könnunin fór síðan fram þann
13. desember síðastliðinn. n Jólatrén ódýrust í Iceland
Af hinum hefðbundnu matvöruverslunum eru aðeins tvær sem selja jólatré, Costco og
Iceland. Costco bauð aðeins upp á tré sem voru 2,1–2,4 metrar að stærð og því freistaði
blaðamaður þess að skoða verðið á þessari stærð hjá samkeppnisaðilum. Niðurstaðan
varð sú að Iceland bauð upp á langhagstæðasta verðið, eða 3.999 krónur fyrir hvert tré.
Þá býður verslunin einnig upp á þau kostakjör að viðskiptavinir fá ókeypis tré ef verslað
er fyrir 20 þúsund krónur eða meira í versluninni. Garðheimar voru upphaflega dýrastir
en höfðu slengt 20% afslætti á trén þegar DV gerði verðkönnun sína. Það kom því í hlut
Blómavals að vera dýrastir en jólatrén þar kostuðu 8.999 krónur ef stærðin var yfir 2
metrar.
Þá ber að geta þess að fjölmargir eru ekki að hugsa um hagstæðasta verð þegar
fjárfest er í jólatré. Margir upplifa sanna jólastemningu með því að velja sitt tré sjálfir úti
í náttúrunni hjá skógræktarfélögum víða um landið og þá eru margir sem styrkja gott
málefni með því að versla trén hjá hjálparsveitum.
n Iceland – 3.999 krónur (aðeins upp að 2,3 metrum)
n Costco – 4.999 krónur (aðeins 2,1–2,4 metrar)
n IKEA – 6.899 krónur (2–2,2 metrar)
n Garðheimar – 7.960 krónur (2–2,5 metrar – verð með 20% afslætti)
n Blómaval – 8.999 krónur (2–2,5 metrar)
Iceland með ódýrasta
maltið og appelsínið
Eins og áður segir ákvað blaðamaður að létta sér lífið með því að kanna verðið á tilbúnu
malt og appelsín-blöndunni frá Ölgerðinni. Varan var langódýrust hjá Iceland en Hag-
kaup var dýrasta verslunin af þeim sem DV heimsótti. Þó ber að geta þess að ekki var
hægt að kaupa drykkinn vinsæla hjá Costco. Verslunarrisinn alþjóðlegi hefur því ekki
enn lært inn á íslenskar jólahefðir.
n Iceland – 159 krónur
n Bónus – 175 krónur
n Krónan – 176 krónur
n Nettó – 179 krónur
n Hagkaup – 199 krónur
n Costco – Ekki í boði
Nettó hefur vinninginn
í hangikjötinu
Það er kannski ekki hægt að fullyrða lengur að hangikjöt sé
vinsælasta kjötmetið sem Íslendingar leggja sér til munns um jólin
en það hlýtur að vera óumdeilt að það tengist íslenskum jólum
hvað sterkustu böndunum. Eins og áður segir freistaði blaðamaður
þess að skoða verðið á úrbeinuðu taðreyku hangikjötslæri en að
sjálfsögðu verður hver og einn að meta gæðin fyrir sig. Ef margar
tegundir voru í boði þá var sú ódýrasta valin. Niðurstaðan er sú að
ódýrasta hangikjötið fæst í Nettó en dýrasta taðreykta hangikjötið
fékkst í Krónunni.
n Nettó – Taðreykt hangikjöt frá Kjarnafæði - 2.990 kr/kg
n Iceland – Taðreykt hangikjöt frá Kjarnafæði - 2.999 kr/kg
n Costco – Taðreykt hangikjöt frá Esju - 3.299 kr/kg
n Hagkaup – Taðreykt hangikjöt frá Kjarnafæði - 3.299 kr/kg
n Krónan – Taðreykt hangikjöt frá SS - 3.499 kr/kg
n Bónus – Taðreykt hangikjöt er ekki í boði. Kofareykt
hangikjöt er á 2.798 kr/kg
Arnaldur ódýrastur í Bónus
Bækur eru ein vinsælasta jólagjöfin hjá landsmönnum
og vonandi breytist sú hefð aldrei. Eins og venja er þá
trónir Arnaldur Indriðason á toppi metsölulistans og
því ljóst að nýjasta verk hans, „Myrkrið veit“, verður
í fjölmörgum pökkum. Eins og endranær eru margar
matvöruverslanir sem taka þátt í jólabókaflóðinu
með því að bjóða upp á bækur á hagstæðu verði. Verk
Arnaldar er ódýrast í Bónus en Nettó er skammt á
eftir. Athygli vekur að verðið í Costco er á svipuðum
stað og tilboðsverð Pennans/Eymundsson. Þá er
einnig athyglisvert að Krónan ákvað að bjóða ekki
upp á jólabækur í ár.
n Bónus – 4.469 krónur
n Nettó – 4.473 krónur
n Costco – 5.199 krónur
n Penninn/Eymundsson – 5.299 krónur á tilboði
n Iceland – Ekki í boði
n Hagkaup – Ekki í boði
n Krónan – Ekki í boði
Verðkönnun á
fimm ómissandi
vörum fyrir jólin
Jólatré, Nóa-konfekt, malt og appelsín, hangikjöt og Arnaldur
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Nóa-Konfektið
ódýrast hjá Nettó
Nóa-Konfektið vinsæla er til í fjölmörgum mismunandi
söluumbúðum. Blaðamaður ákvað upp á sitt einsdæmi að
kanna verðið á 1 kílógramma pökkunum hjá helstu söluaðilum.
Bónus reyndist bjóða upp á ódýrasta verðið en þó munaði
aðeins einni krónu á þeim og Krónunni. Dýrast var konfektið í
Hagkaup.
n Nettó – 2.698 krónur
n Bónus – 2.959 krónur
n Krónan – 2.960 krónur
n Iceland – 3.269 krónur
n Hagkaup – 3.299 krónur
n Costco – Ekki í boði