Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 61
JólinHelgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ TónasTöðin, skipholTi 50d, Reykjavík Við erum með allt til alls fyrir hljóðfæraleikara og tónlistar-menn. við leggjum líka mikla áherslu á að þjónusta börn og byrj- endur vel, “ segir andrés hjá Tónastöð- inni, einni rótgrónustu hljóðfæraversl- un landsins, sem fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. „við hrönn, konan mín, stofnuðum Tónastöðina 1987 og á þessum tíma hefur byggst upp gífurleg reynsla og þekking,“ segir andrés. hann segir að gæði hafi ávallt verið aðalsmerki hjá fyrirtækinu: „Mesta áherslan hefur alltaf verið á gæði alls sem við seljum. Það besta verður ávallt ódýrast, er kjörorð okkar því bestu kaupin eru í hlutum sem end- ast og reynast vel í langan tíma. auk þess eru okkar vörur á hagstæðu verði. hljóðfæri á íslandi eru almennt ódýr miðað við löndin í kringum okkur því menn gera sér grein fyrir því að þeir eru í alþjóðlegri samkeppni.“ Tónastöðin hefur skapað sér sér- stöðu á margan hátt. Til dæmis er þar mesta úrval af nótnabókum á landinu og Tónastöðin hefur alltaf verið stolt af nótnadeildinni. Margar þúsundir titla og ættu flestir sem langar til að spila uppáhaldslögin sín að geta fundið nótur að þeim. „hér eru líka allar tegundir af hljóðfærum í miklu úrvali, tromm- ur, píanó, gítarar, rafmagnsgítarar, upptökutæki, magnarar – við höfum þetta allt. Gítareffektar eru hér í úrvali sem þekkist ekki annars staðar á landinu. Þetta vita hljóðfæraleikarar. Þá erum við með óviðjafnanlegt úrval af upptökutækjum. ZooM-tækin hafa til dæmis verið gríðarlega vinsæl í ár – upptökutæki, hljóðnemar og vídeó- upptökutæki.“ að sögn andrésar kostar það furðu- lítið í dag að koma sér upp búnaði til að spila og taka upp tónlist: „Það er hægt að koma sér upp ótrúlega góðum búnaði fyrir lítinn pening í dag – sem er tiltölulega nýtt. okkar viðhorf er líka að menn eigi ekki að offjárfesta þegar þeir taka fyrstu skrefin, en fá samt nógu mikil gæði til að þeir verði ekki fyrir vonbrigðum. við þurfum oft að ráðleggja fólki og hér er til staðar þekking og reynsla til þess. allir sem hér starfa eru með yfirgripsmikla þekk- ingu og hafa annaðhvort kennt lengi eða starfað lengi í þessum bransa.“ andrés bendir á að hljóðfæri og upptökubúnaður séu gjafir sem endast og séu því margfaldlega peninganna virði: „Góðir íþróttaskór kosta tugi þúsunda og endast árið en góður gítar getur enst alla ævi.“ Gjafabréf í Tónastöðinni eru ávallt vinsæl enda svo margt til þar sem gleður tónlistarmenn og tónlistar- áhugafólk. hægt er að fá gjafabréf með upphæð að eigin vali. en það er líka auðvelt að skipta vörum ef það heppilegasta hefur ekki verið keypt. Tónastöðin er til húsa í Skipholti 50d, Reykjavík. Opið er til 18 um helgina og í byrjun næstu viku en fimmtudaginn 21. des. verður opið til 20, 22. des. til 22, á Þorláksmessu til 23 og á aðfangadag frá 10–12. Það besta verður ávallt ódýrast ZooM upptökutækin eru gífurlega vinsæl, þessi fullkomna græja kostar 29.000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.