Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 61
JólinHelgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
TónasTöðin, skipholTi 50d, Reykjavík
Við erum með allt til alls fyrir hljóðfæraleikara og tónlistar-menn. við leggjum líka mikla
áherslu á að þjónusta börn og byrj-
endur vel, “ segir andrés hjá Tónastöð-
inni, einni rótgrónustu hljóðfæraversl-
un landsins, sem fagnar 30 ára afmæli
um þessar mundir.
„við hrönn, konan mín, stofnuðum
Tónastöðina 1987 og á þessum tíma
hefur byggst upp gífurleg reynsla og
þekking,“ segir andrés. hann segir að
gæði hafi ávallt verið aðalsmerki hjá
fyrirtækinu:
„Mesta áherslan hefur alltaf verið
á gæði alls sem við seljum. Það besta
verður ávallt ódýrast, er kjörorð okkar
því bestu kaupin eru í hlutum sem end-
ast og reynast vel í langan tíma. auk
þess eru okkar vörur á hagstæðu verði.
hljóðfæri á íslandi eru almennt ódýr
miðað við löndin í kringum okkur því
menn gera sér grein fyrir því að þeir
eru í alþjóðlegri samkeppni.“
Tónastöðin hefur skapað sér sér-
stöðu á margan hátt. Til dæmis er þar
mesta úrval af nótnabókum á landinu
og Tónastöðin hefur alltaf verið stolt af
nótnadeildinni. Margar þúsundir titla
og ættu flestir sem langar til að spila
uppáhaldslögin sín að geta fundið
nótur að þeim.
„hér eru líka allar tegundir af
hljóðfærum í miklu úrvali, tromm-
ur, píanó, gítarar, rafmagnsgítarar,
upptökutæki, magnarar – við höfum
þetta allt. Gítareffektar eru hér í úrvali
sem þekkist ekki annars staðar á
landinu. Þetta vita hljóðfæraleikarar.
Þá erum við með óviðjafnanlegt úrval
af upptökutækjum. ZooM-tækin hafa
til dæmis verið gríðarlega vinsæl í ár
– upptökutæki, hljóðnemar og vídeó-
upptökutæki.“
að sögn andrésar kostar það furðu-
lítið í dag að koma sér upp búnaði
til að spila og taka upp tónlist: „Það
er hægt að koma sér upp ótrúlega
góðum búnaði fyrir lítinn pening í dag
– sem er tiltölulega nýtt. okkar viðhorf
er líka að menn eigi ekki að offjárfesta
þegar þeir taka fyrstu skrefin, en fá
samt nógu mikil gæði til að þeir verði
ekki fyrir vonbrigðum. við þurfum oft
að ráðleggja fólki og hér er til staðar
þekking og reynsla til þess. allir sem
hér starfa eru með yfirgripsmikla þekk-
ingu og hafa annaðhvort kennt lengi
eða starfað lengi í þessum bransa.“
andrés bendir á að hljóðfæri og
upptökubúnaður séu gjafir sem endast
og séu því margfaldlega peninganna
virði: „Góðir íþróttaskór kosta tugi
þúsunda og endast árið en góður gítar
getur enst alla ævi.“
Gjafabréf í Tónastöðinni eru ávallt
vinsæl enda svo margt til þar sem
gleður tónlistarmenn og tónlistar-
áhugafólk. hægt er að fá gjafabréf
með upphæð að eigin vali. en það er
líka auðvelt að skipta vörum ef það
heppilegasta hefur ekki verið keypt.
Tónastöðin er til húsa í Skipholti 50d,
Reykjavík. Opið er til 18 um helgina og í
byrjun næstu viku en fimmtudaginn 21.
des. verður opið til 20, 22. des. til 22, á
Þorláksmessu til 23 og á aðfangadag
frá 10–12.
Það besta verður
ávallt ódýrast
ZooM upptökutækin
eru gífurlega vinsæl,
þessi fullkomna græja
kostar 29.000.