Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 39
KYNNINGARBLAÐHelgarblað 15. desember 2017 Múlinn Uppfyllir þarfir ungra barna og væntingar foreldra þeirra Petit, Ármúla 23 Við byrjuðum í barnafötunum en höfum viljað þróast í þá átt að verða heildarversl- un fyrir barnið og erum á góðri leið með að verða það,“ segir Gunnar Þór Gunnarsson hjá versluninni Petit, Ármúla 23, en hann rekur verslunina ásamt sænskri eiginkonu sinni, linnea ahle. Verslunin flutti í Ármúla 23 í nóv- ember og líst Gunnari mjög vel á nýja hverfið. „Við finnum fyrir því að fólk er ánægt með að við séum komin hingað og með Ármúlann almennt. Hér áður fyrr var þetta ekki gata sem maður spáði í sem almenna verslun- argötu en það er að breytast. Þess- ar gömlu sérverslanir sem hér eru, t.d. ljósaverslanirnar, gefa götunni skemmtilegan karakter. mér sýnist að múlinn gæti farið að verða það sem laugavegurinn var áður. Það gildir líka um okkar kúnnahóp að hann getur ekki lagt einkabílnum þegar hann verslar, því þetta er oft fólk með nýfædd börn eða kasóléttar konur.“ Fötin í Petit koma frá framleið- endum víða um heim en allir eiga þeir það sameiginlegt að framleiða það sem kallað er lífræn föt. Þessi skilgreining tekur helst til framleiðslu- ferlisins þar sem lögð er áhersla á náttúruleg litarefni og að ferlið sé eit- urefnafrítt. Þetta gerir framleiðsluna umhverfisvæna og fötin betri. „Við höfum lagt okkur fram um að fötin séu raunverulega framleidd á heilnæman hátt frekar en að fram- leiðandinn hafi bara krækt í einhvern stimpil,“ segir Gunnar Þór. Gunnar Þór á sænska eiginkonu, linnea ahle, en þau kynntust er hann bjó í Svíþjóð og var þar atvinnumað- ur í knattspyrnu. Síðustu árin hefur Gunnar Þór spilað með Kr og unnið til margra titla með félaginu. Hann og linnea eiga þrjú börn en áhuginn á barnavörum kviknaði þegar þau tóku að huga að þörfum sinna eigin barna í þessum efnum. Vegna tengslanna við Svíþjóð hefur Petit selt mikið af sænskum vörum í gegnum tíðina en vörurnar koma þó víða annars staðar frá, til dæmis frá Hollandi, Ástralíu og Bandaríkjunum. „Við glímum við það lúxusvanda- mál að margir erlendir framleiðendur hafa samband við okkur og falast eftir samstarfi. Við vöndum okkur mikið þegar við veljum vörur til sölu í búðinni. annars vegar er plássið ekki ótakmarkað hjá okkur og hins vegar hafa viðskiptavinir okkar væntingar sem við verðum að uppfylla.“ auk glæsilegrar verslunar að Ár- múla 23 rekur Petit vefverslun á vef- síðunni petit.is. Vörur eru sendar heim hvert á land sem er og ef keypt er fyr- ir yfir 10.000 krónur er heimsendingin frí. að sögn Gunnars Þórs er veltan heldur meiri af versluninni en vef- versluninni. „Okkur finnst afskaplega gott að geta þjónað landsbyggðinni vel með vefversluninni en jafnframt því þykir okkur afar vænt um að fá fólk í búðina og geta leiðbeint því þar og átt ánægjuleg viðskipti maður á mann,“ segir Gunnar Þór. auk barnafata selur Petit meðal annars rómaða Buugaboo -barna- vagna, húsgögn í barnaherbergi og alls konar leikföng fyrir lítil börn. Verðið er mjög samkeppnisfært en Gunnar Þór segir að þeim takist að halda verði niðri með því að vanda sig mjög við vörusendingar og koma í veg fyrir að flutningskostnaður verði of mikill. Jólagjafir handa yngsta fólkinu og ungum foreldrum er klárlega að finna í Petit, Ármúla 23. Þeir sem ekki eiga leið þangað geta skoðað glæsilegt úrvalið á petit.is og gert sín innkaup þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.