Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 59
JólinHelgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Snyrtimiðstöðin er ein elsta og glæsilegasta snyrtistofa landsins, stofnuð árið 1979 af
Rósu Þorvaldsdóttur sem enn starfar
við stofuna. Að jafnaði starfa 5–7
manns á stofunni en Snyrtimiðstöð-
in er staðsett í Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7.
Hjá Snyrtimiðstöðinni starfar
einungis fagfólk sem fylgist vel með
nýjungum í faginu og vinnur eingöngu
með hágæða snyrtivörum.
„Við á Snyrtimiðstöðinni höfum
ávallt lagt okkur fram um að vera
fyrsta flokks snyrti-, nudd- og fótaað-
gerðastofa. Hvort sem það er í fag-
mennsku, aðstöðu, tækni, eða vörum,
þessir þættir eru í stöðugri endurnýj-
un,“ segir Rósa Þorvaldsdóttir, stofn-
andi Snyrtimiðstöðvarinnar.
Í öllum andlits- og líkamsmeðferð-
um fylgir húðgreining og ráðleggingar
um umhirðu húðar og val á snyrtivör-
um. Lögð er áhersla á þægilegt and-
rúmsloft, kertaljós og slökunartónlist
eru í hverri meðferð.
IPL er nútíminn
Á Snyrtimiðstöðinni er í boði fjöldi
meðferða og meðal annars starfa
á stofunni færir tattú-sérfræðingar
sem hafa fengið starfsleyfi frá heil-
brigðisráðuneytinu.
IPL er varanleg háreyðing með
Xenon-leifturljósi. Þetta er er örugg,
sársaukalaus og fljótleg meðferð
(svipað laser). Vinnur best ef hár eru
gróf, dökk og húð ljós. Hægt að nota
þetta nánast hvar sem er á líkam-
anum fyrir bæði konur og karla. „Við
erum nýbúin að endurnýja IPL-ljós-
tæknitækið okkar. Þetta er að virka
mjög vel fyrir margar,“ segir Rósa.
„Þetta virkar þannig að liturinn í
hárinu dregur í sig hitann frá ljósinu.
Hárið ber hitann niður í hársrót á
aðeins sekúndubroti og veldur varan-
legri eyðingu á hárfrumum í hársekk.
Meðferðafjöldi er 6–10 skipti á 4–8
vikna fresti.“
Nánari upplýsingar má fá um
meðferðir Snyrtimiðstöðvarinnar á
vefsíðunni snyrtimidstodin.is.
Fjölbreytt gjafakort sem öll eru
frábær í jólapakkann
Gjafakort Snyrtimiðstöðvarinnar má
fá fyrir hvaða upphæð sem er og
getur þiggjandinn ráðstafað inn-
eigninni eftir eigin höfði til að fá þá
meðferð sem hann langar mest í. Það
má líka kaupa gjafakort fyrir tilteknum
meðferðum, til dæmis dekurdegi eða
hand- og fótsnyrtingu, en ef þiggj-
andinn vill eitthvað annað er sjálfsagt
að breyta gjafakortinu og láta það
ganga upp í aðra meðferð. Gjafa-
kortin eru afhent í fallegum gjafapok-
um og fylgir gjöf með.
Rósa er eigandi fótaaðgerða-,
snyrti- og nuddstofunnar Snyrti-
miðstöðvarinnar. Þessi rótgróna
snyrtistofa er ein sú stærsta á
landinu og býður upp á mikið úrval af
snyrtimeðferðum og dekurpökkum.
Best er að kaupa gjafakort á
staðnum, í Snyrtimiðstöðinni, Húsi
verslunarinnar, Kringlunni 7. Síminn er
558 1990.
Gjafakort frá
Snyrtimiðstöðinni
er frábær jólagjöf
Gjafakortin frá Snyrtimiðstöðinni
eru glæsileg.