Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2017, Qupperneq 33

Víkurfréttir - 30.08.2017, Qupperneq 33
33miðvikudagur 30. ágúst 2017 VÍKURFRÉTTIR Kl. 24:00 - 03:00 JÚDAS svíkur engan! Staðsetning: Ráin, Hafnargötu 19a Júdasarballið á Ránni á föstudagskvöldinu er orðin hefð og skyldumæting hjá hressu Suðurnesjafólki og gestum á öllum aldri. Laugardagur Kl. 10:00 - 13:00 Morgunverðarhlaðborð körfuknattleiksdeildar Staðsetning: TM höllin Sunnubraut Körfuknattleiksdeild Keflavíkur býður upp á morgunverðarhlað- borð í TM-Höllinni (Íþróttahúsinu við Sunnubraut). Á boðstólum verður meðal annars egg, bacon, pylsur, rauðar baunir, vöfflur, brauð og álegg ásamt glæsilegu ávaxtaborði. Tilvalið fyrir alla gesti Ljósanætur, bæði heimamenn sem og gesti, að kíkja við fyrir Árgangagöngu og fá sér morgunmat og kaffi. Verð 2.000 kr. Kl. 10:30 - 11:30 Söngvaborg í Stapa Staðsetning: Stapi Hljómahöll Hvaða börn þekkja ekki Söngvaborg og elska að dilla sér og dansa við hana? Þau Sigga, María og Björgvin mæta eldhress í Stapann í Hljómahöll og skemmta börnunum eins og þeim er einum lagið. Viðburðurinn verður haldinn að morgni laugardags þegar allir krakkar eru kátir og hressir og tilbúnir í daginn. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Kl. 10:30 - 17:00 Barna- og fjölskyldudagskrá Staðsetning: Stapi, hátíðarsvæði, Skessuhellir Á Ljósanótt verður boðið upp á glæsilega dagskrá fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Kl. 10:30 í Stapa. Söngvaborg. Sigga, María og Björgvin skemmta börn- unum eins og þeim er einum lagið. Skessuhellir Kl. 14:30 - 17:00. Skessan býður í rjúkandi lummur Stóra sviðið á hátíðarsvæði Kl. 14:50 Bryn Ballett Akademían Kl. 15:00 Bíbí og Björgvin syngja töfrandi lög ævintýranna Kl. 15:30 Sirkus Íslands með stórkostleg atriði og loftfimleika Kl. 16:00 Danskompaní Kl. 16:15 Diskótekið Dísa með barnaball og karamellur Kl. 17:00 Taekwondo Kl. 12:30 – 14:30 Diskósúpa Nettó Staðsetning: Á mótum Hafnargötu og Skólavegar (á móti Georg Hannah) Nettó býður upp á Diskósúpu sem er tilvalið fyrir þátttakendur Árgangagöngunnar að gæða sér á á leið sinni að réttu húsnúmeri. Þetta framtak er liður í átaksverkefni Nettó, Minni sóun, sem miðar að því að vekja landsmenn til umhugsunar um matarsóun, sem er stórt vandamál í heiminum í dag, og hvernig megi sporna við henni. Á Menningarnótt veitti Nettó yfir 1000 skammta af súpu sem í raun hefði ekki átt að verða til miðað við matarsóun Íslendinga. Súpan var gerð úr 150 kílóum af grænmeti sem komið var fram á síðasta söludag eða uppfyllti ekki útlitskröfur auk gífur- legs magns af þurrmat í sama ástandi. Kl. 13:00 - 17:00 Flóamarkaður Staðsetning: Hringbraut 108, gamla K-húsið við fótbolta- völlinn Eitthvað fyrir alla svo endilega komið og kíkjð við. Kl. 13:30 - 14:00 Árgangagangan Staðsetning: Hafnargatan Mættu fyrir framan það húsnúmer sem samsvarar fæðingarári þínu og taktu þátt í einstakri skrúðgöngu þar sem mannkyns- saga nútímans tekur á sig mynd. Málið er einfalt: Sértu fæddur ´67 mætir þú fyrir framan Hafnargötu 67 o.s.frv. Yngsta kynslóðin hefur gönguna og marserar niður Hafnargötu í gegnum heilt æviskeið. Þeir eldri bíða og horfa á æskuna renna hjá þar til röðin kemur að þeim að bætast við. „Hringnum“ er lokað þegar hópur heldri borgara stígur inn í gönguna og gætir þess, sem fyrr, að enginn heltist úr lestinni. Allt undir dynjandi lúðrablæstri lúðra- sveita Tónlistarskóla Reykjanesbæjar o.fl.  Kl. 15:00 Hópakstur Bifhjólaklúbbsins Arna Staðsetning: Hafnargatan – hátíðarsvæði Hjólað af stað frá ÓB um Njarðarbraut og Hafnargötu og hjólum lagt á SBK planinu. Hjól höfð til sýnis á SBK planinu eftir hóp- aksturinn. Kl. 14:00 - 18:00 Opið hús hjá Pílufélaginu fyrir almenning Staðsetning: Hrannargata 6 (Aðstaða Pílufélags Reykjanes- bæjar) Bæjarbúum og gestum þeirra er boðið í aðstöðu félagsins þar sem þeir geta fengið leiðsögn og prufað pílukast. Kl. 14:00 - 17:00 Motocross keppni í fyrsta skipti á Íslandi! Staðsetning: Keflavíkurhöfn Keppt verður á Motocrosshjólum innanbæjar við Keflavíkurhöfn. Búið er að smíða braut með alls kyns hindrunum sem keppendur þurfa að keyra yfir. Komið og sjáið bestu ökumenn landsins kepp- ast við að klára ótrúlegar þrautir! Kl. 14:30 - 17:00 Skessan býður í lummur Staðsetning: Skessuhellir Gróf Nú þarf ég að dusta rykið af stóru uppskriftabókinni minni því ég ætla að hræra í stóra lummusoppu fyrir Ljósanótt. Ég býð ykkur öll velkomin í hellinn minn á laugardegi Ljósanætur og þiggja hjá mér gómsætar lummur með sykri. Nammi namm (enda er nú líka nammidagur). Kl. 14:30 - 18:00 Syngjandi sveifla Staðsetning: Duushús Duushúsin iða af lífi alla Ljósanæturhátíðina með fjölbreyttum sýningum og uppákomum. Nýir tónleikar hefjast á hálftíma fresti allan laugardaginn og þar koma fram okkar glæsilegur menningarhópar, kórar og söngsveitir. Kl. 14:30 Bátasalur: Félag harmonikuunnenda Kl. 15:00 Bíósalur: Söngsveitin Víkingar Kl. 15:30 Bátasalur: Kvennakór Suðurnesja Kl. 16:00 Bíósalur: Sönghópur Suðurnesja Kl. 16:30 Bátasalur: Karlakór Keflavíkur Kl. 17:00 Bíósalur: Norðuróp, Jóhann Smári Sævarsson Allir hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis. Kl. 14:00 - 17:00 POP-UP á Ljósanótt Staðsetning: Svarta pakkhúsport og Stefnumótastaurinn (mót Tjarnargötu og Hafnargötu) Kannt þú að leika listir, dansa, syngja, spila á hljóðfæri, gera töfrabrögð eða hvað sem er? Hvernig væri að láta ljós sitt skína á Ljósanótt? Í Svarta pakkhúsporti og við Stefnumótastaurinn (á mótum Tjarnargötu og Hafnargötu) gefst áhugasömum kostur á að troða upp með stutt atriði. Hljóðkerfi verður á staðnum. Ekki vera feimin/n, vertu bara með! Skráning og úthlutun tíma á ljosa- nott@ljosanott.is Svarta pakkhúsport Kl. 14:30 Danskompaní Kl. 15:15 Bryn Ballett Akademían Stefnumótastaurinn Kl. 13:40 Bryn Ballett Akademían Kl. 15:00 Danskompaní Kl. 15:00 - 18:00 Björgvin Halldórsson tekur á móti gestum á Rokksafni Íslands Staðsetning: Rokksafn Íslands, Hljómahöll, Hjallavegi 2 Björgvin Halldórsson verður á staðnum og tekur á móti gestum á sýninguni Þó líði ár og öld sem opnuð var í lok árs 2016 á Rokksafni Íslands í Hljómahöll. Þetta er kjörið tækifæri til að hitta sjálfan Bó Halldórs í eigin persónu og fá sér kaffi með honum. Kl. 20:30 - 23:00 Stórtónleikar á útisviði Staðsetning: Hátíðarsvæði Á stórtónleikum Ljósanætur er ávallt boðið upp á það besta. Hér verður að finna eitthvað fyrir alla svo við reiknum með dúndur stemningu þegar hápunkti kvöldsins er náð og bjartasta flugelda- sýning landsins lýsir upp Ljósanótt. Fram koma: Emmsjé Gauti Jana María Guðmundsdóttir ásamt hljómsveit KK og Maggi Eiríks Hljómsveitin Valdimar Jón Jónsson og hljómsveit Þetta verður skothelt!! Kl. 22:15 - 22:30 Bjartasta flugeldasýning landsins Staðsetning: Hátíðarsvæði Toyota í Reykjanesbæ lýsir upp Ljósanótt. Strax að lokinni flug- eldasýningunni verða ljósin á berginu kveikt. Tónlistardagskrá heldur svo áfram til kl. 23:00. Það er Björgunarsveitin Suðurnes, að vanda, sem sér um framkvæmd sýningarinnar, sem líkja má við einn af listviðburðum hátíðarinnar svo glæsileg er þessi sýning orðin hjá þeim. Kl. 23:00 - 00:00 Queen messa í Keflavíkurkirkju Kór Keflavíkurkirkju, Jón Jósep Snæbjörnsson og hljómsveit flytja nokkur af vinsælustu lögum hljómsveitarinnar Queen. Sigurður Ingólfsson, sr. Davíð Þór Jónsson og Arnór B. Vilbergsson sömdu íslenska texta við lögin og er umfjöllunarefni þeirra Fjallræða Jesú. Stjórnandi er Arnór B. Vilbergsson. Miðaverð er kr. 2000.- og eru miðar seldir við innganginn (enginn posi). Einnig er hægt að fá miða hjá kórfélögum í forsölu. Kl. 23:00 - 02:00 Hljómsveitin Feðgarnir Staðsetning: Tjaldið Kaffi DUUS Kl. 23:00 - 04:00 Ball með Föruneytinu á Paddy’s Staðsetning: Paddy’s, Hafnargötu 38 Föruneytið heldur upp lífi og limum þeirra sem vilja hafa gaman á Ljósanótt. Aðgangseyrir 1.500kr. Kl. 23:59 - 04:00 Ljósanæturballið 2017 Staðsetning: Stapinn / Hljómahöll Hið árlega Ljósanæturball verður haldið með pompi og prakt í Stapanum/Hljómahöllinni.. Fram koma SSSól, Helgi Björns, Ingó Veðurguð, Jón Jónsson, Salka Sól og Emmsjé Gauti. Forsala miða fer fram í Galleri Keflavík og á Miði.is. Sunnudagur Kl. 07:00 - 19:00 Opna Ljósanæturmótið í golfi Staðsetning: Hólmsvöllur í Leiru ! Opna Ljósanæturmótið í golfi er í boði Hótel Keflavíkur. Verð 4.000 kr. Skráning og nánari upplýsingar inn á golf.is Kl. 11:00 - 12:00 Söguganga Byggðasafns Reykjanesbæjar Staðsetning: Duus Safnahús Árleg söguganga Byggðasafnsins verður að þessi sinni á slóðum skáta í tilefni 80 ára afmælis Heiðabúa. Helgi Biering leiðir göng- una sem hefst við Duus safnahús og lýkur við skátaheimilið við Vatnsnesveg um það bil klukkutíma seinna. Skátaheimilið verður opið og heitt á könnunni. Allir velkomnir. Kl. 13:00 - 18:00 Sölutjöld opin Staðsetning: Hátíðarsvæði Sölutjöldin eru opin frá fimmtudegi til sunnudags. Síðasti séns til að gera góð kaup hjá farandsölufólkinu. Kl. 13:00 - 18:00 Leiktækin í gangi Staðsetning: Hátíðarsvæði Góður dagur til að klára miðana í tívolítækin. Á sunnudegi eru raðirnar styttri og meiri rólegheit á svæðinu. Kl. 13 - 17:00 Sýningar opnar Síðasti sýningardagur flestra sýninga. Kl. 14:00 Próf/Tests – Listamannsleiðsögn Staðsetning: Duus Safnahús, Stofan Fríða Dís myndlistar- og tónlistarmaður er ef til vill mörgum kunn fyrir hlutverk sitt sem söngkona hljómsveitarinnar Klassart. Á sýningunni Próf/Tests er að finna 57 olíumálverk sem hafa að fyrir- mynd 57 þungunarpróf. Hvert málverk táknar einn mánuð í því 57 mánaða ferli sem það tók þau hjónin að verða barnshafandi. Kl. 14:00 - 18:00 KK og Elíza Newman í Kirkjuvogskirkju Staðsetning: Kirkjuvogskirkja Hafnir Hinn ástsæli söngvari KK heldur tvenna órafmagnaða tónleika í Kirkjuvogskirkju í Höfnum. KK mun flytja þekkt lög frá ferli sínum bæði ný og gömul og verður einstakt að heyra hann syngja og spila í fallegu litlu kirkjunni í Höfnum. Elíza Newman mun sjá um að hita upp fyrir KK og flytja lög af sínum ferli, meðal annars af nýjustu plötu sinni Straumhvörf sem tekin var upp í Höfnum. Fyrri tón- leikarnir hefjast kl. 14 og seinni kl. 16. Miðaverð er 2000 kr. Miðar verða til sölu í Gamla skólanum í Höfnum laugadaginn 02.09 frá 14-16 og sunnudaginn 03.09 frá 13-16. Einnig verður kaffihús og listsýning í gamla skólanum í boði Menningarfélags Hafna. Verið velkomin í Hafnirnar! Kl. 16:00 og 20:00 Með SOUL í auga Staðsetning: Andrews Theatre Ásbrú SOUL tónlist allra tíma er viðfangsefni tónleikaraðarinnar ,,Með blik í auga” þetta árið sem gengið hefur fyrir fullu húsi á Ljósanótt í Reykjanesbæ undanfarin 6 ár. Einvalalið söngvara og hljóð- færaleikara tekur þátt í sýningunni og eru söngvarar í ár þau Jóhanna Guðrún, Stefanía Svavars, Jón Jónsson, Eyþór Ingi og Helgi Björns. Hljómsveitarstjóri er Arnór B. Vilbergsson og kynnir er að venju ólíkindatólið Kristján Jóhannsson sem farið hefur á kostum hingað til. Tvær sýningar verða sunnudaginn 3. september kl. 16:00 og 20:00. LJÓSANÓTT Í REYKJANESBÆ • DAGSKRÁ • LJÓSANÓTT Í REYKJANESBÆ á fésbók Víkurfrétta Dagskrárgerðarfólk Víkurfrétta verður á ferð um bæinn alla daga Ljósanætur með útsendingarbúnað þar sem sent verður beint út á fésbókarsíðu Víkurfrétta. Fylgist með okkur á fésbókinni og vf.is á Ljósanótt 2017
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.