Víkurfréttir - 30.08.2017, Blaðsíða 40
40 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222
Guðrún landaði 100 sm. laxi með
stöngina á óléttubumbunni
í fyrstu veiði-
ferðinni
Guðrún er gengin sex mánuði á leið
með sitt þriðja barn en lét það ekki
stoppa sig í laxveiðinni. Fór með
skemmtilegum hópi í Víðidalsá. „Ég
hef aldrei farið í laxveiði áður þannig
að það er hægt að segja að þetta hafi
gengið vel,“ sagði hún sposk þegar við
spurðum út í veiðihæfileikana.
Fyrsti lax sem veiðimaður veiðir er
kallaður maríulax og Guðrún var
ekkert að tvínóna við þetta og setti
fljótlega í fyrsta laxinn sinn, fallega
hrygnu.
„Ég fékk maríulaxinn á laugardeg-
inum í blíðskaparveðri í Faxaholu,
hann tók micro Sunray fluguna og
baráttan stóð yfir í kringum 10 mín-
útur. Hann var 63 sm. vel silfraður
og nýgenginn. Og að sjálfsögðu var
ugginn étinn síðar um kvöldið,“ segir
Guðrún en það er hefð hjá laxveiði-
mönnum.
Hver er svo sagan á bakvið þennan
100 sm.?
Daginn eftir náði ég að næla í 100 sm.
hæng, baráttan við hann tók 17 mín-
útur en átökin voru mikil. Hann tók
fluguna Blue sun ray sem við vorum
að prófa í fyrsta skipti. Jói Hafnfjörð,
snillingur með meiru í Víðidalsá að-
stoðaði mig við að koma honum í háf-
inn og var mikil gleði að ná að landa
þessum stóra hæng. Hann var veiddur
á einum vinsælasta stað í ánni, Dalsár-
ósum. Honum var sleppt þannig að
um að gera fyrir aðra að reyna við
hann,“ sagði laxveiðikonan lukkulega.
Það er draumur allra laxveiðimanna að veiða 100 sm. langan lax.
Lang fæstum tekst það. Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, sem rekur
Blue Car bílaleiguna með Magnúsi Þorsteinssyni manni sínum,
ákvað að setja önnur viðmið þegar hún fór í laxveiði í fyrsta sinn,
núna í ágústmánuði. Hún veiddi tvo laxa og gerði sér lítið fyrir og
landaði einum 100 sm. „Ég tyllti bara stönginni á óléttubumbuna
og dró hann hægt og rólega inn,“ sagði hún í spjalli við Víkurfréttir.
STÓRLAX