Víkurfréttir - 30.08.2017, Qupperneq 62
62 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
„Þetta er mögnuð tilfinning að
ganga hér í jakkafötunum gegnum
flugstöðina með þessa stemmn-
ingu,“ sagði Elvar Már Ragnars-
son, landsliðsmaður í körfubolta,
en landsliðið sem nú er á leið á
Evrópumótið í Finnlandi fór utan
í vikunni.
Ferðalangar í flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, íslenskir sem útlendir, fögn-
uðu íslensku strákunum þegar þeir
gengu í gegnum stöðina, veifuðu
íslenska fánanum og tóku myndir.
Leið þeirra lá út í flugvél Icelandair
en eins og venja er var tekin mynd af
þeim í landgang-
inum, glæsilegir
fulltrúar okkar,
klæddir bláum
j a k k afötu m , í
hvítri skyrtu og
með rautt bindi
að ógleymdum
brúnum spar i-
skóm. Það verður
ekki mikið í s -
lenskara.
Suðurnesjamenn
eiga fjóra fulltrúa
í hópnum, Gunn-
ar Einarsson úr
þjálfarateyminu og
þrjá leikmenn, þá
Loga Gunnarsson
sem er landsleikja-
hæstur leikmanna liðsins með 138
leiki, Hörð Axel Vilhjálmsson (65
landsleikir) og Elvar Má Frið-
riksson (27 leikir). Sá síðast-
nefndi er að fara á sitt fyrsta
stórmót með landsliðinu en
hinir tveir voru með landsliðinu fyrir
tveimur árum. Þá fór Logi á kostum
og sagði í viðtali að þetta væri gaman
svona í síðasta skipti. „Já, ég átti ekki
von á því að vera aftur á leið á stórmót
en það er auðvitað frábært. Hópurinn
er klár í slaginn. Undirbúningur hefur
gengið vel og við ætlum að standa
okkur,“ sagði Njarðvíkingurinn.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222
ALLIR Í KÖRFU
Æfingar hefjast 4. september
hjá yngri flokkum
körfuknattleiksdeildar UMFN
Æfingataflan og skráning er á
heimasíðu félagsins, www.umfn.is
Nánari upplýsingar á netfanginu
unglingarad.umfn@gmail.com
Komdu í körfu - Unglingaráð KKD UMFN
Íþróttir á Suðurnesjum
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
Andri Rúnar heldur áfram að
raða inn mörkunum
■ Grindvíkingar gerðu jafntefli við
KR á heimavelli síðastliðna helgi.
Andri Rúnar jafnaði leikinn í upp-
bótartíma fyrri hálfleiks með fal-
legu og föstu skoti í þverslá og inn,
en þar skoraði hann eitt fallegasta
mark sumarsins. William Daniels
skoraði síðan seinna mark Grind-
víkinga á 75. mín. en það mark
dugði ekki til þar sem að KR jafn-
aði á 80. mín. Lokamínútur leiks-
ins voru æsispennandi en lokatölur
urðu 2-2. Grindvíkingar eru sem
stendur í 4. sæti Pepsi-deildarinnar
með 25 stig.
Magnaður sigur Keflvíkinga í
Inkasso-deildinni
■ Keflvíkingar unnu 3-2 sigur á ÍR
á fimmtudaginn í síðustu viku og
halda toppsætinu í Inkasso deild-
inni í knattspyrnu. Mörk Kefla-
víkur skoruðu Adam Árni Róberts-
son á 27. mínútu, Jeppe Hansen á
78. mínútu og Leonard Sigurðsson
á 87. mín.
Njarðvík á toppnum í 2. deild-
inni
■ Njarðvíkingar gerðu sér góða
ferð til Egilsstaða á laugardaginn
þegar þeir sigruðu Hött 2-0. Mörk
Njarðvíkinga skoraði Andri Fannar
Freysson frá vítapunktinum, fyrra
markið kom á 34. mínútu eftir að
Styrmir Gauti leikmaður Njarð-
víkur hafði verið felldur inni í
teignum og það síðara á 78. mín-
útu eftir brot á Arnóri Björnssyni.
Næsti leikur Njarðvíkinga sem eru
á toppi deildarinnar er gegn Vestra
næstkomandi laugardag kl. 13 á
Nesfisksvellinum í Njarðvík.
Víðismenn sigruðu Sindra
■ Víðismenn fengu Sindra í heim-
sókn á laugardaginn og unnu sann-
færandi sigur og urðu lokaúrslitin
4-0. Milan Tasic skoraði tvö mörk
fyrir Njarðvíkinga á 8. og 39. mín-
útu. Aleksandar Stojkovic skoraði
úr víti á 24. mínútu og lokamarkið
skoraði Dejan Stamenkovic á 53.
mínútu. Víðismenn eru í 3. sæti í
2. deild.
Þróttur Vogum sótti þrjú stig
á Dalvík
■ Þróttarar sóttu sigur á Dalvík
síðastliðinn laugardag á Dalvíkur-
velli í þriðju deildinni. Mörk Þrótt-
ara skoruðu Ólafur Örn Eyjólfs-
son á 48.mín. og Elvar Freyr Arn-
þórsson á 76. mín. Sem stendur eru
Þróttarar í 2. sæti 3. deildarinnar.
Reynir Sandgerði gerði jafntefli
við topplið Kára í 3. deildinni
■ Reynir Sandgerði gerði 2-2 jafnt-
efli við Kára á Sandgerðisvelli á
fimmtudaginn í síðustu viku en
lið Kára er sem stendur í efsta sæti
3. deildar. Mörk Sandgerðinga
skorðuð þeir Tomislav Misura á
4. mínútu og Strahinja Pajic á 31.
mínútu. Lið Reynis er í næst neðsta
sæti 3. deildar með 10 stig.
Keflavíkurstúlkur halda
4. sætinu
■ Keflavík tapaði 1-0 fyrir toppliði
Selfoss í síðustu viku, þrátt fyrir
tapið halda þær 4. sætinu í 1. deild
kvenna.
Knattspyrnusamantekt
Náði draumahögginu aðeins 15 ára
●● Logi●Sigurðsson●fór●holu●í●höggi●í●Leirunni.●
Í●þriðja●ættlið●mikilla●golffeðga●úr●GS
Logi Sigurðsson, 15 ára kylfingur í
Golfklúbbi Suðurnesja gerði sér lítið
fyrir og fór holu í höggi á Hólmsvelli
í Leiru á innanfélagsmóti GS í sl.
viku. Draumahögginu náði peyinn
á 16. brautinni sem er 126 metrar.
Kappinn var með 9-járn og sló gott
högg. „Boltinn lenti nokkra metra frá
pinna, aðeins hægra megin en það var
smá sveigja í högginu og boltinn rúll-
aði til vinstri og endaði í holu. Þetta
var geggjuð tilfinning og skemmti-
legt að ná þessu í móti,“ sagði kylf-
ingurinn ungi sem byrjaði snemma
að handleika kylfurnar en fór þó ekki
að æfa íþróttina af alvöru fyrr en á
þessu ári en faðir hans er Sigurður
Sigurðsson, Íslandsmeistari í höggleik
1988 og fyrrverandi
landsliðsmaður.
Það er óhætt að
segja að það sé
nokkuð um golf í
umhverfi stráksa
því ekki aðeins
pabbi hans náði
flottum árangri
heldur líka afi
hans, Sigurður
Albertsson, sem
varð margfaldur
Íslandsmeistari öldunga. Þeir þrír og
Adam bróðir hans, hafa allir farið
holu í höggi, afinn og Adam m.a. á
sömu braut.
Logi lék sinn besta hring í mótinu og
lauk leik á aðeins tveimur yfir pari á
18 holunum, 74 höggum. Hann lækk-
aði mikið í forgjöf og er nú kominn
í 8,2. Nú þarf pabbi hans að fara að
vara sig.
L o g i g la ð b e i tt u r
eftir draumahöggið
á 16. braut á Hólms-
velli í Leiru.
Stemmning í flugstöðinni
þegar körfuboltalandsliðið fór á EM
Landsliðið og þjálfarar í landganginum á
Icelandair flugvél á Keflavíkurflugvelli.
Fjórmenningarnir, Hörður
Axel, Logi, Gunnar og Elvar.
VF-myndir/pket.
Körfuboltastúlkur úr Reykjanesbæ
í áhöfn landsliðsins
■ Landslið karla
í körfuknattleik
flaug til Helsinki
í morgun og í
áhöfn flugvélar
Icelandair voru
meðal annars
k ö r f u k n a t t -
leikskonurnar
A n n a M a r í a
Ævarsdóttir og
L ov ísa Fa ls-
dóttir. Þær hafa
báðar spilað
m e ð l i ð u m
frá Keflavík,
Njarðvík og
Grindavík í
úr valsdeild
kvenna í körfuknattleik og einnig
með unglingalandsliðum okkar í
körfu. Þetta kom fram á Fésbókar-
síðu Hannesar S. Jónssonar, for-
manns KKÍ. Hann segir einnig frá
því að körfuboltaáhöfn hafi flogið
með hópinn út og þar á meðal þær
Anna María og Lovísa.
Anna María Ævarsdót
tir tók á
móti liðinu/ Fésbókarsí
ða KKÍ
Lovísa Falsdóttir og Helga Hrund Frið-riksdóttir um borð í vél Icelandair/ Fés-bókarsíða Hannesar S. Jónssonar
ÞÚ FINNUR
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
AF SUÐURNESJUM
Á VF.IS