Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 2
2 9. febrúar 2018fréttir
M
ónika Atladóttir, Akur
eyringur á þrítugsaldri,
var á dögunum dæmd í
mánaðar skilorðsbundið
fangelsi fyrir litlar sakir, að henn
ar mati. Hún stal svörtum nærbux
um, að verðmæti ríflega þúsund
króna, í Lindex á Þorláksmessu á
síðasta ári.
Mónika furðar sig á þessum
dómi í samtali við DV og segist
hún hafa frekar búist
við sekt þar sem hún
viðurkenndi sök fús
lega. Erlingur Sigtryggs
son, dómstjóri við Hér
aðsdóm Norðurlands
eystra, kvað upp dóm
inn og segist hann átta
sig vel á því að þetta
sé þungur dómur fyrir
litlar sakir. Hann hafi
þó kveðið upp lægsta
mögulega dóm sem lög
leyfa.
Brókarlaus
degi fyrir jól
Mónika segir það
furðulegt að hafa
fengið þennan dóm
en hún kom af fjöll
um þegar blaðamað
ur sagði henni að hún
hefði verið dæmd fyrir
þjófnaðinn og taldi að
hún þyrfti einungis
að greiða sex þúsund
krónur í sekt. „Ég vissi
að ég hafði verið kærð, mér
var birt kæran. Þetta er glæp
ur og maður þarf að borga
sekt. Þetta er samt svolítið
út í hött þegar maður er að
tala um nauðsynjavörur, í raun og
veru. Ef ég hef ekki efni á að borga
þúsund kall fyrir nærbuxur þá hef
ég ekki efni á því að borga sex þús
und krónur í sekt,“ segir Mónika og
hlær.
Hún segir að nærbuxurnar
hafi raunar verið nauðsynjavara.
Þannig er mál með vexti að hund
ur hennar sækist mikið í að borða
nærbuxur hennar og var hún því
brókarlaus degi fyrir jól. „Hund
urinn
minn er
svo hrifinn
af því að naga
hluti úr bómull
og nælonefnum.
Þannig að ég verð alltaf mjög fljótt
uppiskroppa með allt svona og ég
er ekkert á sérstaklega háum laun
um, því ég er á féló,“ segir Mónika.
Lögin heimiluðu ekki sekt
Erlingur dómstjóri gerir
ráð fyrir að enginn sakar
kostnaður hljótist af þessu
máli. Hann seg
ir að þar sem
Mónika hafi
áður fengið
dóm vegna
auðgunar
brots þá
hafi ekki
verið hægt að
sekta hana. Hún
hafi þó fengið lág
marksrefsingu.
„Þetta var útvistardóm
ur, hún mætti ekki og hún var
aðvöruð að ef hún mætti ekki þá
teldist hún hafa játað. Því var bara
dæmt og það var enginn kostnað
ur á rannsóknarstigi. Refsiramm
inn, sem sagt lágmarksrefsing,
fyrir þjófnað er fangelsi en í undan
tekningum, ef það er um smáræði
að tefla og viðkomandi hefur ekki
verið dæmdur fyrir auðgunarbrot
áður, þá má fara niður í sekt. Hún
hefur að minnsta kosti eitt auðg
unarbrot á ferlinum og þar með
er lágmarksfangelsi dæmt,“ seg
ir Erlingur og bætir við að hann
skilji það vel að svona dómar geti
skotið skökku við í huga margra.
Hann nefnir í því samhengi fræga
frétt um hangikjötsþjóf sem fékk
nokkurra mánaða fangelsi fyrir
stuldinn. n
13 mánuðir
fyrir ketkrók
Fertugur karlmaður var dæmdur árið
2007 í þrettán mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi fyrir að stela úrbeinuðu
hangilæri í Bónus í Hveragerði. Lengd
dómsins mátti skýra að hluta með því
að hann braut skilorð með stuldinum
á kjötinu.
5 mánuðir fyrir
súpu og koníak
Fimmtugur karlmaður var árið 2008
dæmdur í fimm mánaða óskilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa stolið
súpu að verðmæti 250 króna í 10-11 en
maðurinn neytti hennar innan búðar-
innar án þess að greiða. Hann stal enn
fremur matarkoníaki í Hagkaupum að
verðmæti 769 króna. Umræddur mað-
ur sendir DV reglulega bréf og er ljóst
að hann gengur ekki heill til skógar.
Lengd dómsins má skýra að hluta með
því að hann braut skilorð.
Mánuður fyrir
Sóma-samloku
Síðasta sumar var karlmaður á
sextugsaldri dæmdur í 30 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa
stolið samloku að verðmæti 599 krón-
ur úr verslun 10-11 í Austurstræti, og
borðað samlokuna án þess að greiða
fyrir hana. Hann braut ekki skilorð
en hafði þó fengið nokkra dóma fyrir
auðgunarbrot.
Límbandsrúllan
kostaði 110.000 kr.
Árið 2014 var kona dæmd í 30 daga
skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Suðurlands fyrir að stela límbands-
rúllu að verðmæti 599 króna úr hillu
verslunarinnar Shell við Austurmörk
í Hveragerði. Konan var jafnframt
dæmd til að greiða 110 þúsund í
sakarkostnað.
Fékk fangelsisdóm fyrir
að stela brók degi fyrir jól
n Mónika furðar sig á þyngd dómsins n Hundurinn borðar allar nærbuxur
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Hundur
inn minn er
svo hrifinn af því
að naga hluti úr
bómull og nælon
efnum.
Þorsteinn
fékk Rós
Þorsteinn, stofnandi Plain
Vanilla og núverandi forstjóri
Teatime, er genginn út. Sú
heppna heitir Rós Kristjáns
dóttir og stundar nám í gull
smíði við Tækniskólann. Rós
hefur starfað sem fyrirsæta
samhliða námi en hún prýðir
forsíðu nýjasta eintaks tímarits
ins Reykjavík Fashion and Des
ign. Ekki er langt síðan Þor
steinn lenti á lista yfir heitustu
piparsveinana hjá Vísi en það
entist skammt og virðist hann
alsáttur við það hlutskipti.
E
itt einkennilegasta sakamál,
svokallað skáksmyglsmál,
dregst enn á langinn. Í vik
unni var Sigurður Kristins
son úrskurðaður í fjögurra vikna
gæsluvarðhald vegna máls
ins. Á meðan liggur eiginkona
hans, Sunna Elvira Þorkelsdóttir,
lömuð á sjúkrahúsi í Malagaborg.
Ástand hennar er slæmt enda fær
hún ekki þá umönnun sem hún
þarf á að halda. Undanfarna daga
hefur verið á dagskrá á að flytja
Sunnu Elviru á sérstakt sjúkrahús
í Toledo. Um er að ræða tíu tíma
erfitt ferðalag enda er Toledo í
miðju Spánar, um 350 kílómetra
frá Malaga.
Það hefur vakið mikla furðu hjá
íslenskum yfirvöldum og aðstand
endum Sunnu Elviru að flutn
ingurinn hafi ítrekað verið stöðv
aður af spænskum yfirvöldum án
skýringa. Komið hefur fram að
málið byrjaði þegar pakki frá Spáni
barst til skrifstofu Skáksambands
Íslands. Reyndist hann innihalda
um átta kílógrömm af fíkniefnum
sem falin voru í verðlaunagripum
fyrir skák. Samkvæmt heimildum
DV kann ástæðan fyrir tregðunni
varðandi flutning Sunnu Elviru til
Toledo að vera sú að greiðslan fyr
ir sendinguna var rakin til hennar
og hefur hún ekki getað veitt lög
regluyfirvöldum skýringar á því.
Samkvæmt heimildum DV barst
sendingin frá tilteknu fyrirtæki sem
staðsett er í bænum Altea, nærri
Alicante. Bærinn er í rúmlega 400
kílómetra fjarlægð frá Malaga.
Starfsmaður fyrirtækisins, David
Lopez Cobos að nafni, var skráð
ur sendandi. DV hringdi í fyrirtæk
ið en varð að gera sér að góðu að
ræða við samstarfsmann Davids
sökum slakrar enskukunnáttu þess
Davids. Staðfesti starfsmaðurinn
að vörurnar hefðu sannarlega far
ið frá þeim en að í millitíðinni hafi
annar aðili, sá er pantaði vörurnar,
fengið þær í sína vörslu.
Þá hafi málið greinilega tekið
mikið á David og starfsmenn fyrir
tækisins sem höfðu flækst inn í
rannsókn spænskra og íslenskra
lögregluyfirvalda með þessum
hætti. Þegar DV óskaði eftir upp
lýsingum um hver hefði pantað
vörurnar þá vísaði starfsmaður
inn á þarlend lögregluyfirvöld og
kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um
málið. n bjornth@dv.is
BuBBi
vikunnaR
Bubbi var ekki hrifinn af
amerísku Ofurskálinni um
nýliðna helgi: „Að horfa á
USA fótbolta er svipað og að
opna bók með geðveikri kápu
og sjá að allar síður eru auð
ar,“ tísti tónlistarmaðurinn.
Mynd af Bubba er falin
í blaði dagsins. Ef lesendur
reka augun í ásjónu tónlistar
mannsins geta þeir sent
blaðinu lausnir á netfangið
bubbi@dv.is. Dregið verður
úr innsendum lausnum
og fær sá heppni gjafabréf
á veitingastað í
höfuðborginni í
verðlaun.
Finndu
Bubba í
blaðinu
David Lopez sat í súpunni í skáksmyglinu
Sunna Elvira Þorkelsdóttir Liggur
lömuð á sjúkrahúsi í Malaga í kjölfar hræði-
legs slyss. Samkvæmt heimildum DV var
greiðsla sendingar til Íslands, sem reyndist
innihalda fíkniefni, rakin til hennar.
Á þessum degi …
Árið 1555 – Englendingurinn John
Hooper, biskup í Gloucester, er brenndur
á báli eftir að hafa verið fundinn sekur
um trúvillu.
Árið 1895 – Bandaríkjamaðurinn
William G. Morgan upphugsar leik sem
gekk til að byrja með undir nafninu
Mintonette. Þessi leikur nýtur mikilla
vinsælda enn þann dag í dag og nefnist
blak (e. volleyball).
Árið 1950 – Öldungadeildarþing-
maðurinn Joseph McCarthy ber það á
utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna að þar
mori allt í kommúnistum. McCarthy hafði
megnustu óbeit á kommúnisma og öllu
því sem einkenndi hann og nærði komm-
únistagrýluna af miklum móð. Að lokum
fékk öldungadeildin sig fullsadda af
framgöngu hans og veitti honum ávítur.
Árið 1964 – Hljómsveitin The Beatles
frá Liverpool kemur í fyrsta skipti
fram í bandaríska sjónvarpsþættinum
The Sullivan Show. Um 73 milljónir
bandarískra sjónvarpsáhorfenda horfðu
á þáttinn og var um að ræða met í
þarlendri sjónvarpssögu.
Árið 1971 – Apollo 14 kemur til jarðar
eftir þriðju för mannaðs geimfars til
tunglsins.
Árið 1991 – Niðurstaða þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Litháen sýnir svo
ekki verður um villst að landsmenn vilja
sjálfstæði.