Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Page 26
26 sport 9. febrúar 2018
Þ
etta hefur verið virkilega
skemmtilegt, þetta er búið
að vera viðburðaríkt ár, en
mjög gefandi. Maður hefur
þurft að kynna sér marga hluti í
rekstrinum og auðvitað fjölbreytt
verkefni sem eru tengd fótboltan
um líka. Það hefur verið gaman að
kynnast aðildarfélögunum og því
sem er í gangi, maður hefur horft
á mikið af fótbolta sem hefur verið
gaman. Gengi landsliðanna hefur
síðan verið frábært, þetta hefur
verið mjög skemmtilegt,“ sagði
Guðni Bergsson, formaður KSÍ,
sem mun sitja sitt fyrsta ársþing
um helgina sem formaður KSÍ.
Guðni var kjörinn til starfa í
febrúar í fyrra og hefur því starfað
í heilt ár, starfið er stórt og mikið
og því eru margir hlutir sem Guðni
hefur þurft að setja sig inn í.
„Það eru margir hlutir sem
maður þarf að setja sig inn í, starf
formanns er mjög fjölbreytt. Maður
hefur verið að kynna sér hlutina og
rýna í þá, bæði þá hluti sem koma
að eiginlegum rekstri sambands
ins og síðan öllu í kringum það.
Síðan höfum við verið í faglegu
starfi og unnið að stefnumótun
sem er svona á lokametrunum og
það hefur gengið virkilega vel. Nú
er á fullu unnið að undirbúningi
fyrir ársþingið sem er um helgina
og svo er auðvitað þetta stóra verk
efni fyrir HM í Rússlandi. Það er
gríðarlegur undirbúningur í kring
um svo stórt mót.“
Getum verið virkilega stolt
Árið fyrir formanninn hefur verið
gott innan vallar en karlalands
liðið komst í fyrsta sinn á HM og
stelpurnar náðu fínum árangri.
„Fyrir mig sem fyrrverandi leik
mann að sjá hvernig undirbúningur
hjá landsliðum er hefur verið gaman
og að upplifa þessa stemmingu sem
er hjá liðunum innan og utan vallar
ásamt því hvernig stuðningsmenn
koma inn í það. Ég held að við get
um verið virkilega stolt af því hvern
ig þetta allt spilar saman, ég veit
að íslensk knattspyrna hefur vakið
afar mikla athygli fyrir það. Árangur
landsliðanna er ákveðin viðurkenn
ing á því góða starfi sem aðildarfé
lögin eru að vinna, það er það starf
sem við eigum að vera hvað stolt
ust af. Afrakstur þess góða starfs
er meðal annars frábær árangur
landsliðsins. Árangurinn hefur ver
ið flottur í yngri landsliðum og svo
að sjálfsögðu hjá Alandsliði karla
sem vakti heilmikla athygli síðasta
haust. Síðan er það sigur Alands
liðs kvenna gegn Þýskalandi sem
var magnaður. Við erum ein sterk
heild sem við eigum að vinna með
og bæta.“
Starf formanns á að vera fullt starf
Þegar Guðni var í framboði þá var
tekist á um hvort starf formanns
KSÍ ætti í raun að vera fullt starf.
Eftir ár í starfi er Guðni sannfærð
ur um að svo eigi að vera. „Ég var
á þeirri skoðun að starf formanns
KSÍ væri fullt starf og er enn frekar
á því í dag. Ég held að það sé bæði
æskilegt og nauðsynlegt að svo
sé. Mikill meirihluti af okkar tekj
um kemur að utan og við þurf
um að gera okkur gildandi þar.
Við þurfum að gæta okkar hags
muna og taka þátt í stefnumótun
í fótboltanum á alþjóðlegum vett
vangi. Ég held að það sé mikil
vægt. Svo er það að fara á milli
hér heima og skoða hvernig við
getum bætt okkar starf. Við erum
að skoða hvernig við getum bætt
starfið innan KSÍ bæði á skrifstofu
og knattspyrnulega séð. Hvernig
við getum unnið best með fé
lögunum og stutt þau í þeirra
starfi. Ég held að okkur hafi tek
ist nokkuð vel til á þessu ári en
við viljum alltaf gera betur. Það er
talsverður tími sem fer í ferðir er
lendis hjá formanninum, lands
liðsverkefnin erlendis eru viða
mikil og það tekur tíma. Við erum
einnig að reyna að breikka og efla
tekjugrunn okkar og það er stórt
verkefni sem á endanum kem
ur félögunum og fótboltanum til
góða.“
Kemur yfirmaður
knattspyrnumála?
Eitt af því sem Guðni vildi gera
sem formaður var að koma með
yfirmann knattspyrnumála inn
í starfið hjá KSÍ. Ári síðar er það
ekki komið, en vinna í kringum
starfið er í gangi og tíðinda gæti
verið að vænta. „Ég held að það
gangi vel, við erum í stefnumót
un. Við erum að horfa á skrif
stofuna og tengingu við aðildar
félögin, sú vinna er í gangi og við
skoðum hvernig við getum styrkt
faglega starfið hér innanhúss. Við
höfum fundað með yfirþjálfur
um, sem var mjög jákvæður fund
ur, við myndum vilja vinna þetta
í sem mestu samstarfi við félög
in. Við viljum efla okkar leik
menn og þessi vinna hefur verið
í gangi undanfarið og gengur vel.
Ég sé fram á það að á endanum
verði svona starf til, sama hvað
það verður svo kallað. Við stefn
um að því að styrkja okkur á fag
lega sviðinu. Við njótum augna
bliksins núna en við þurfum líka
að horfa til framtíðar og sjá til þess
að gott faglegt starf skili sér áfram
í þessum góða árangri.“
Á að lengja kjörtímabilið?
Lagt hefur verið til að kjörtímabil
formanns KSÍ verði lengt úr tveim
ur árum í þrjú. Mörgum finnst
tveggja ára tímabil heldur stutt
fyrir nýjan mann í brúnni. „Það
er auðvitað mismunandi hvernig
þetta er í heimi fótboltans, sumir
eru með fjögur ár og aðrir með tvö
ár. Á þó nokkrum stöðum eru þetta
fjögur ár og það er tillaga stjórnar
að fara milliveginn má segja og að
þetta verði þrjú ár. Starfshópurinn
lagði til við stjórnina að svo yrði en
að formaður gæti einnig bara setið
í fjögur kjörtímabil. Það var niður
staðan að þetta yrði lagt til. Það er
ýmislegt sem mælir með því að
lengja kjörtímabilið en það er ekki
nein ein rétt niðurstaða.“
Vongóður um Laugardalsvöll
Mikil vinna er í gangi varðandi
nýjan Laugardalsvöll og Guðni er
vongóður um að það gangi eftir.
„Það er eitt viðamikið og mikilvægt
verkefni sem við erum að horfa til
þess að þetta geti verið að klárast
í byrjun apríl. Nú erum við með
starfshóp sem vinnur með ríkis
stjórn, Reykjavíkurborg og KSÍ. Ég
skynja mikinn áhuga og er bjart
sýnn á að við fáum ákvörðun sem
verður íslenskri knattspyrnu til
hagsbóta. Það er ljóst að við verð
um að endurbyggja völlinn til þess
að geta spilað alla mótsleiki okk
ar á vellinum í framtíðinni. Þetta
mun einnig gefa nýja möguleika
fyrir bikarúslitaleikina og þegar
við komumst með félagslið í riðla
keppni í Evrópu.“ n
Getum verið hvað stoltust
af starfi aðildarfélaganna
n Guðni er að ljúka sínu fyrsta ári í starfi n Telur að lengja eigi kjörtímabilið
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
„Ég var á þeirri
skoðun að
starf formanns KSÍ
væri fullt starf og er
enn frekar á því í dag
Guðni Bergsson Hefur
verið formaður KSÍ í eitt ár.
mynd SiGtryGGur ari