Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Síða 27
279. febrúar 2018
Sum fyrirtæki senda bara
starfsmann út í búð.
Það kostar ekkert því hann er
hvort sem er í vinnunni
Ávextir alla daga vinnuvikunnar
kosta um 550 kr. á mann.
Hamborgaratilboð kostar hátt
í 2.000 kallinn, einu sinni.
Ávaxtabiti um miðjan morgun
eða um nónið, getur bjargað
deginum þegar starfsmenn eru
orðnir orkulausir. Vinnuveitendur
geta hagnast nokkuð á því.
Þegar fyrirtæki eru í áskrift hjá
Ávaxtabílnum, þurfa þau aldrei
að muna að panta – ávextirnir
koma bara.
Ef fyrirtæki í áskrift vill breyta
pöntun sinni, er hún kölluð fram
á heimasíðu okkar, breytt og send
inn – gæti ekki verið einfaldara.
Fyrirtæki í áskrift
fá 20% afslátt af
veislubökkum okkar.
Starfsmenn Múlalundar
sjá um alla tiltekt ávaxtanna
fyrir Ávaxtabílinn og fá svo
að sjálfsögðu ávexti upp á borð
hjá sér alla vikuna
ódýr
Nú eru
góð ráð
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Ávaxtaðu betur
Í
slenskt knattspyrnuáhugafólk
sem er að bóka hótelgistingu
vegna heimsmeistaramóts-
ins í Rússlandi lendir nú um
stundir í vandræðum vegna hót-
ela sem það hafði bókað gistingu á
í bæði Moskvu og Rostov-on-Don
í sumar. DV hefur rætt við nokkra
einstaklinga sem höfðu bókað hót-
elgistingu og fengið staðfestingu á
bókun sinni. Þeir hafa síðar fengið
skilaboð um að bókunin hafi ekki
gengið í gegn. Þeim er svo boðið að
bóka hótelgistingu á nýjan leik en
á miklu hærra verði en þeim hafði
áður boðist. Margir Íslendingar
ætla að leggja leið sína til Rúss-
lands og sjá íslenskt knattspyrnu-
landsliðið í fyrsta sinn á HM og hef-
ur stór hluti þeirra nú þegar bókað
ferð sína. Þeir vita þó ekki hvort
þeir fái miða á leikina, en FIFA hef-
ur nú lokað fyrir umsóknarferli
um miða og dregið verður úr því
happadrætti í mars. „Ég er að fara
til Rússlands með fjölskylduna
í sumar, hótelið sem ég bókaði í
Moskvu hefur nú ákveðið að henda
okkur út,“ sagði Sigurður Hjaltested
um málið en hann er einn af þeim
sem hafa lent í þessu.
Fékk staðfestingu
Sigurður bókaði í gegnum
vefinn booking.com sem margir
Íslendingar nota og treysta. „Ég
bókaði í gegnum Booking og fékk
staðfestingu þaðan og í skilmál-
um kom fram að ég ætti að borga
við komu á hóteli, ég fékk síðan
viðvörun frá þeim um að kortið
mitt hefði ekki virkað og að ég
hefði 24 klukkustundir til að laga
kortið. Fimm mínútum síðar fékk
ég svo póst um að búið væri að af-
lýsa þessari bókun. Hótel í Rúss-
landi virðast stunda þetta núna
en ferðafélagar mínir lentu í þessu
sama í Rostov og vita af fleiri Ís-
lendingum í sömu stöðu.“
Íhugar að hætta við ferðina
Sigurður hugðist fara í þessa ferð
með fjölskyldunni, sex manns allt
í allt og þar af fjórum börnum.
„Núna er ég án hótels í Moskvu
með sex einstaklinga og þar af fjóra
krakka, ég íhuga það alvarlega að
aflýsa þessari draumaferð. Það er
ekki þess virði að fara til Rússlands
og eiga á hættu að standa uppi án
hótelgistingar, ég beini því til fólks
að passa sig á þessu.“ n
Tugum
Íslendinga
hent út af
hótelum í
Rússlandi
Boðið að bóka herbergið aftur á miklu hærra verði
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is „Núna er ég án hótels í Moskvu
með sex einstaklinga og
þar af fjóra krakka.