Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 32
Valentínus 9. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Verslunin Bjarkarblóm er staðsett við nýja innganginn í Smáralind og er í eigu Berg-
þóru Bjargar Karlsdóttur en hún rekur
auk þess verslun með sama nafni í
Þorlákshöfn. Hjá Bjarkarblómum er
lögð mikil áhersla á framúrskarandi
úrval af ferskum blómum auk fjöl-
breyttrar gjafavöru þar sem íslensk
hönnun skipar stóran sess.
„Rómantíkin ræður ríkjum hjá okkur
á Valentínusardaginn og hér er alltaf
mikið að gera á þessum degi. Hann
hefur vissulega fest sig í sessi meðal
Íslendinga en þar sem þetta er líka
alþjóðlegur dagur koma mjög margir
útlendingar sem eru búsettir
hér á landi í verslunina
og kaupa blóm,“ segir
Bergþóra.
Valentínusar-
dagurinn hefur
sótt mjög í sig
veðrið hér á
Íslandi og segir
Bergþóra að út-
varpskonan Val-
dís Gunnarsdóttir
heitin eigi heiðurinn
af því að hafa innleitt
venjur Valentínusar-
dagsins hér á landi. Valdís
var afar ástsæl útvarpskona á
Bylgjunni en hún lést fyrir aldur fram.
„Valdís er okkur mjög hugstæð og
við hugsum alltaf
hlýlega til hennar á
þessum degi,“ segir
Bergþóra.
„Við höfum alltaf
fjölbreyttara úrval af
blómvöndum á Valentínusar-
daginn og þar sem þetta er alþjóð-
legur dagur erum við með nokkuð
af óhefðbundnum blómum ásamt
þessum hefðbundnu, rósum, sem eru
alltaf klassískar, og þvíumlíku.“ Þó að
vitanlega komi margir ungir menn í
verslunina á Valentínusardaginn til að
kaupa blóm handa sinni heittelskuðu
þá segir Bergþóra að eldri herra-
menn séu mjög að sækja í sig veðrið
á þessu sviði og mjög margir eldri
borgarar eiga viðskipti við Bjarkar-
blóm á Valentínusardaginn.
Verslunin í Smáralind er opin frá
kl. 10 til 18 á Valentínusardaginn og
Bjarkarblóm í Þorlákshöfn er opin
frá kl. 13 til 18. Það er um að gera að
fullkomna þennan dag elskenda með
því að koma við í Bjarkarblómum og
velja litríkan og fallegan blómvönd
handa ástinni sinni. Segðu það með
blómum!
Sjá nánar á bjarkarblom.is.
BjaRKaRBlóm
Litríkir og fjölbreyttir blóm-
vendir á Valentínusardaginn
Mörgum þykir gott að fá sér súkkulaðibita eða konfekt-mola. Þegar fólk lætur
slíkt eftir sér er tilvalið að hafa það
dálítið spari og fá sér virkilega
vandað súkkulaði eða konfekt. Þá
er kjörið að líta við í verslun Stef-
áns B. að laugavegi 72, Reykjavík.
Stefán B. er það sem kallað er á
erlendri tungu „chocolatier“ sem
þýðir að hann vinnur súkkulaði- og
konfektafurðir úr súkkulaðimassa.
Hráefnið í afurðir sínar fær Stefán
frá Kólumbíu.
Í verslun Stefáns er mikið úr-
val af bæði súkkulaðiplötum og
konfekti. „Við erum með um 200
gerðir af súkkulaðiplötum og um
25–30 gerðir af konfekti,“ segir
hann. Núna er súkkulaði með
sjávarsalti mjög vinsælt. „Sjálfum
finnst mér saltið fara betur í dökku
súkkulaði því það spilar mjög vel á
móti biturleikanum í því.“
Eins og flestir vita er súkkulaði
í eðli sínu mjög holl afurð en sykur er
síður hollur. Sykur er settur í súkkulaði
til að gera það sætt á bragðið en
algjörlega ósætt súkkulaði er biturt
á bragðið. Í verslun Stefáns er lögð
mikil áhersla á úrval og því má fá
allt frá 60% súkkulaði með miklu
sykurmagni upp í 100% súkkulaði,
sem er alveg sykurlaust og hentar
vel til matargerðar. „Ég held að það
borði enginn 100% súkkulaði eitt og
sér en fólk er töluvert að leita í 85%
súkkulaði og jafnvel 90% sem
vissulega er þá í hollari kantinum.
En 100% hreint súkkulaði með
engu soja og engum sykri er rosa-
lega holl vara,“ segir Stefán.
Spurður um hvað séu vin-
sælustu afurðirnar segir Stefán að
súkkulaði með sjávarsalti hafi slegið
rækilega í gegn. Hjá Íslendingum er
síðan mjög vinsælt dökkt súkkulaði
með lakkrísbragði en þessi vara sem
Stefán hefur þróað er ekki með lakk-
rísbitum heldur bara lakkrísbragðinu.
Erlendu ferðamennirnir sem koma
í verslun Stefáns sneiða hins vegar
hjá lakkríssúkkulaðinu enda er það
íslenskur siður að blanda saman
súkkulaði og lakkrís.
Handgert konfekt er rómantísk gjöf
á Valentínusardaginn og er tilvalið
fyrir elskendur að líta inn á laugavegi
72 og skoða úrvalið.
Handgert konfekt á
Valentínusardaginn
StEfáN B. CHoColatiER, lauGaVEGi 72