Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 34
Valentínus 9. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Rómantískt
Valentínusarkvöld
á Lækjarbrekku
Töluverðar áherslubreytingar hafa orðið á hinum gróna og rómaða veitingastað Lækjar-
brekku frá því nýir rekstraraðilar tóku
við staðnum, fyrir um ári. „Við leggj-
um mikla áherslu á ferskt hráefni og
að vinna allt á staðnum. Við kaupum
ekki tilbúna matvöru né berum við
slíkt á borð fyrir okkar gesti. Þá er
matreiðslan öll orðin nútímalegri og
tekur meira mið af nýjum straumum
og stefnum,“ segir Stefán Stefánsson,
framkvæmdastjóri Lækjarbrekku.
Staðurinn nýtur mikilla vinsælda,
gestahópurinn er afar fjölbreyttur og
úrvalið af réttum er mikið með jafn-
mikilli áherslu á kjöt og fisk auk þess
sem veganréttir koma sterkir inn.
„Hingað kemur töluvert af erlend-
um ferðamönnum en á bóndadaginn,
til dæmis, var meirihluti gesta Ís-
lendingar,“ segir Stefán. Það verður
rómantísk stemning næstkomandi
miðvikudagskvöld, á sjálfum Valent-
ínusardeginum, þar sem mörg pör
munu eiga ógleymanlega stund. Til
að fá örugglega borð borgar sig að
panta sem fyrst en bæði er hægt
að bóka borð í síma 551-4430 eða á
vefsíðunni laekjarbrekka.is.
Sérstakur fjögurra rétta matseðill
verður í boði á Valentínusardeginum:
Fyrsti réttur er nauta-caravaggio,
síðan tekur við reykt ýsa sem hef-
ur fengið frábærar viðtökur gesta
á Lækjarbrekku; í þriðja rétt er val
um þorskhnakka eða lambasteik og
í eftirrétt er sérvalið súkkulaði frá
Valrhona.
Sjá nánar á laekjarbrekka.is.