Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Síða 38
Valentínus 9. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Egilshöll, Fossaleyni 1 Reykjavík, var opnuð árið 2002
og tveimur árum
síðar hófst rekstur
skautasvellsins þar.
Það hefur yfirleitt verið
opið á veturna en lokað
á sumrin. Í seinni tíð er
svellið hins vegar opið
fyrir hópa í sérpant
aða tíma á sumrin líka
en eftirspurn hefur
aukist mikið, annars
vegar frá erlendum
ferðamönnum og hins
vegar frá íslenskum
fyrirtækjum sem mæta með starfs
mannahópa í skautatíma, en það
þykir vera fyrirtaks hópefli. Barna
afmæli á skautasvellinu eru líka
afskaplega vinsæl.
Skautasvellið er opið á miðviku
dögum og föstudögum frá 17 til 19
og laugardaga og sunnudaga frá
13 til 16. Skautaleiga er á staðnum.
Einstaklingar þurfa ekki að panta
tíma til að komast á skauta en ef um
hópa er að ræða, til dæmis starfs
mannahópa eða barnaafmæli, er
hringt í síma 6649604 og pantaður
tími.
„Við notum sérstakan íshefil
sem heitir Zamboni til að þrífa
skautasvellið. Hefilinn sker efsta lagið
af og setur nýtt lag í staðinn,“ seg
ir Egill Gómez, framkvæmdastjóri
rekstrarfélags Egilshallar, þegar
hann er beðinn um að útskýra
hvernig maður viðheldur vélfrystu
skautasvelli inni í húsinu. „Snjórinn
sem safnast saman fer í stóran
kassa sem er framan á heflinum og
að lokum er sett 60 gráðu heitt vatn
ofan á klakann en þannig verður
skautasvellið spegilslétt.“
Tilboð á Valentínusardaginn
Það er ákaflega rómantískt og
klassískt að fara með elskunni sinni
á skauta og er þetta kjörin dægra
stytting fyrir pör og hjón í lok vinnu
dagsins á Valentínusardaginn,
næstkomandi miðvikudag, en þá er
skautasvellið einmitt opið frá 17 til 19.
„Í tilefni dagsins verður tveir fyrir
einn tilboð á svellið,“ segir Egill. Þetta
ætti að hvetja ástfangin pör enn
frekar til að gera daginn ógleyman
legan með rómantískri skautaferð á
skautasvellið í Egilshöll.
SkautaSVEllið Í EGilSHöll:
Íshokkíleikur stóð yfir á skautasvellinu þegar
myndatökumann bar að. Myndir Sigtryggur ari
Tveir fyrir einn á
Valentínusardaginn
Austurstore.com: Eitthvað alveg
sérstakt fyrir fólkið í ræktinni
Austurstore.com er vefverslun sem þróaðist út frá rekstri líkamsræktarstöðvarinnar CF
austur á Egilsstöðum. Þar varð til lítil
verslun sem fyrst og fremst var hugs
uð til að þjóna gestum líkamsræktar
stöðvarinnar með fæðubótarefnum,
íþróttafatnaði og fleiru. Þessi starf
semi þróaðist síðan út í innflutning
á vörumerkjum til sölu í heildsölu og
síðar vefverslun:
„Þetta vatt upp á sig og stækkaði
óvart miklu meira og miklu hraðar
en við áttum von á. Við erum fjórir
eigendur fyrirtækisins en af þeim
erum við tvær sem vorum og erum
að reyna að vera í fullu starfi við
rekstur líkamsræktarstöðvarinnar,
við búum á litlum stað með erfiðar
samgöngur niður á firði og þar af
leiðandi var erfitt að treysta einung
is á líkamsræktarstöðina. Út frá því
þróaðist þetta í það sem þetta er í
dag,“ segir einn af eigendunum, Sonja
Ólafsdóttir.
Vefverslunin er á slóðinni aust
urstore.com og flytur inn vandaðar
vörur: „Við erum að flytja inn vöru
merki sjálf og er aðaláherslan á
það núna. Við reynum að vera með
eitthvað alveg sérstakt og einstakt
fyrir líkamsræktarfólk. Það nýjasta
er BaRa Sportswear frá Noregi en
þar er um að ræða mjög vandaðan
fatnað sem auk þess er þægilegur
og endingargóður. Þá má nefna icon
Nutrition fæðubótarefni frá Bretlandi,
sem eru sérlega góðar, öruggar og
hreinar vörur sem hægt er að treysta.
Sem dæmi framleiða þeir Battle Oats
próteinstykkin sem hafa verið að slá
í gegn, grunnurinn í þeim er hafrar
eins og nafnið gefur til kynna, þau eru
stútfull af næringu og eru í allt öðrum
gæðaflokki en önnur sem finnast á
markaðinum í dag. Þarna er metnað
urinn í fyrirrúmi og þeir eru stöðugt
að bæta vörurnar sínar.“ austurstore.
com hefur stutt við bakið á ungum
íþróttamönnum, bæði úr héraðinu
og annars staðar frá á landinu, og
veitt þeim bæði fæðubótarefni og
fatnað: „Þetta er klárlega eitthvað
sem við erum hvað stoltust af að
geta gert og viljum halda áfram að
gera, á heimasíðunni okkar má sjá þá
íþróttamenn sem við styðjum,“ segir
Sonja. austurstore.com sendir vörur
hvert á land sem er og handan við
hornið eru vörusendingar til útlanda
líka, en þær verða komnar af stað á
næstu dögum.
Núna nálgast
Valentínusardagur
inn og er kjörið fyrir
pör sem æfa saman
í ræktinni að gefa
hvort öðru vand
aðan og fallegan
íþróttafatnað á degi
elskenda. „Ég mæli
þar sérstaklega
með BaRa merk
inu. Þar er ekki síst
kostur að buxurnar
eru ekki gegnsæjar,
nokkuð sem hefur
verið vandamál í
líkamsræktarfatnaði
kvenna. Strákarnir geta þá óhræddir
gefið elskunni sinni BaRa buxur án
þess að hún verði óþægilega mikið til
sýnis í ræktinni,“ segir Sonja.
Hún bætir við að austurstore.com
kappkosti að bjóða upp á vandaðar
vörur á mjög sanngjörnu verði og hafi
tekist að ná hagstæðum samningum
við erlenda birgja. Margt spennandi
er í bígerð og nokkur ný merki vænt
anleg á þessu ári. Sjá nánar á aust
urstore.com eða á instagram @
austurstore
Við styðjum stolt við bakið á mörgum
íslenskum íþróttamönnum, hér má sjá
Hafstein Gunnlaugsson eftir eitt wod af
mörgum á Íslandsmótinu í CrossFit 2017
Vinsælustu buxurnar (7.990) og
topparnir (4.490)