Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 48
48 Helgarblað 9. febrúar 2018
Da
gur
í l
ífi
Katrín Amni Friðriksdóttir fæddist í Lundúnum 29. mars 1983. Hún er dóttir
þeirra Þórheiðar Einarsdóttur
flugfreyju og Sami Ajram, en
uppeldisfaðir hennar er Friðrik
Guðmundsson rafeindavirki.
Katrín á tvö systkini, móðurmegin
Oddnýju Dögg, f. 1990, og föður-
megin Ramsey Ajram, f. 1987. Hún
er uppalinn á Kársnesinu og lauk
menntaskóla frá MK. Því næst lá
leiðin í HÍ þaðan sem hún útskrif-
aðist með B.S.-gráðu í hagfræði árið
2008 en meistaranámi lauk Katrín
frá Domus Academi í Mílanó en
þar náði hún sér í gráðu í svoköll-
uðu „luxury management“ eða
lúxusstjórnun. Hún rekur eigið
fyrirtæki, Kamni ehf., þar sem hún
sinnir ýmsum verkefnum er tengjast
markaðssetningu, viðburðum og
verkefnastjórnun fyrir lítil og stór
fyrirtæki. Hún er jafnframt nýráðin
framkvæmdastjóri Félags viðskipta-
og hagfræðinga. Katrín á tvö börn,
þær Karítas, 8 ára, og Antoníu 4
ára, og saman búa mæðgurnar í
Hlíðahverfinu í Reykjavík, þegar
dæturnar eru ekki hjá föður sínum.
06.00
Þegar dætur mínar eru hjá mér
þá reyni ég að vakna klukkan sex.
Fyrsta verk er að taka rosalega
góða vinnutörn til korter yfir sjö,
eða þar um bil, en stundum afkasta
ég meira á þeim tíma en á heilum
vinnudegi. Því næst vek ég börnin
mín og við fáum okkur morgun-
mat, þær fá sér hafragraut eða
Cheerios en sjálf fasta ég alltaf til
hádegis.
8.30
Eftir að hafa skutlað stelpunum í
skólann fer ég á skrifstofuna mína
í Víkurhvarfi. Þar hef ég aðstöðu
með nokkrum frábærum sam-
starfsaðilum. Við erum í litlu teymi
sem sinnir ýmsum verkefnum,
meðal annars fyrirtæki sem heitir
Náttúrusmiðjan og sérhæfir sig í
framleiða íslensk bætiefni undir
nafninu IceHerbs. Dagarnir mínir
eru mjög mismunandi en ég reyni
alltaf að halda fast í þá reglu að
byrja vinnudaginn á skrifstofunni.
12.00
Ég borða mjög oft á veitingastöð-
um í hádeginu. Ef ég er að funda þá
fer ég oft á Snaps eða Essensia, svo
höldum við starfsfélagarnir mikið
upp á High-Tea á Nordica. Ef ég
þarf hins vegar að skjótast bara
eitthvert í mat þá verður Krúska
gjarna fyrir valinu, ég er háð
matnum þeirra. Ef svo ólíklega vill
til að ég sé ekki á fundi í hádeginu
þá reyni ég að fara í jógatíma. Ég
fer mest í Hreyfingu þar sem ég
stunda Vinyasa- og Ashtanga-jóga.
Stundum fer ég á milli staða, hef til
dæmis prófað Yoga Shala og Sólir.
Kannski svolítið lauslát í þessum
jógahefðum mínum?
13.30
Ég er alltaf á leiðinni eitthvert og
fer á afar marga fundi á hverjum
einasta degi. Allavega svona þrjá,
fjóra staði. Eftir hádegi fer ég
vanalega ekki aftur á skrifstofuna
heldur kem mér fyrir á kaffihúsi til
að vinna eða held áfram að funda
einhvers staðar.
16.00
Ef ég fer að sækja börnin mín þá
tékka ég mig út andlega um fjögur
leytið. Ég vinn aldrei á milli klukk-
an fimm og átta ef dætur mínar
eru hjá mér. Þá er ómögulegt að
ná í mig vegna vinnu. Þetta er eitt
af fáum prinsippum sem ég held
fast í þegar kemur að daglegu lífi.
Ef ég næ ekki að fara í ræktina eða
jóga í hádeginu þá reyni ég oft að
skreppa eftir vinnu ef dæturnar
eru í góðum gír, annars er ég bara
heima að dúllast með þeim fram að
kvöldmat.
18.00
Við borðum kvöldmatinn yfirleitt
upp úr klukkan sex. Ég reyni alltaf
að elda eitthvað hollt og gott, til
dæmis góðan fisk, eggjahræru,
sætar kartöflur, kjúkling, bara
eitthvað létt og gott. Ég miða oft
út frá því hvað þær hafa borðað í
hádeginu og hef kvöldmatinn eftir
því. Reyndar elska þær pastað frá
Sollu með grænu pestói, það er
uppáhaldsmaturinn þeirra!
20.30
Eftir kvöldmatinn þá er það bara
bað og háttatími hjá stelpunum.
Við lesum alltaf saman og reynum
að fara yfir allt það góða sem gerð-
ist yfir daginn. Á þessum stundum
kemur oft eitthvað í ljós sem maður
vissi ekkert um. Eitthvað áhugavert
sem gerðist í skólanum hjá þeim
eða annað skemmtilegt. Svo sofna
þær oftast út frá einhverri jógatón-
list. Sú yngri er svo fjörug að það
þarf aðeins að hafa fyrir því að
hjálpa henni að slaka á.
21.00
Ég næ yfirleitt alls ekki að horfa á
sjónvarpið þótt mig langi. Ég enda
alltaf á að gera eitthvað annað. Til
dæmis að spjalla við vinkonur,
fjölskyldu, svara tölvupósti eða
gera fínt í kringum mig. Mér finnst
afskaplega mikilvægt að eiga góðan
tíma fyrir sjálfa mig á kvöldin og
legg mikið upp úr þessari stund.
Þegar stelpurnar mínar eru ekki
hjá mér, sem er fjörtíu prósent af
tímanum, þá vinn ég stundum fram
eftir og hitti vini á kvöldin. Fer úr
mömmugallanum og í hinn gírinn.
Mér finnst ótrúlega gaman að vera
öflug mamma en mér finnst líka
frábært að vera ein og hitta vini
mína þess á milli. Þetta er líf í góðu
jafnvægi.
„Mér finnst
ótrúlega gam-
an að vera öflug
mamma en mér
finnst líka frábært að
vera ein og hitta vini
mína þess á milli.
Þetta er líf í góðu
jafnvægi.
Besta ráð sem þér
hefur verið gefið?
„Hlustaðu meira en þú talar“ Þetta
ráð kom frá góðum vini mínum í
viðskiptalífinu og það hefur reynst
mér vel.
hvaða ráð vilt
þú gefa öðrum?
Það hefur komið mér langt að vera
til í leggja inn án þess að reikna
með því að fá eitthvað til baka.
Maður græðir alltaf á því að reyna
að vera góð manneskja og hjálpa
öðrum.
hvað vildirðu að
þú hefðir vitað fyrr?
Að það er enginn að velta því fyrir
sér hvað ég er að gera, þess vegna
á maður alltaf að fylgja eigin
draumum og innsæi.
Katrín amni FriðriKsdóttir
- lúxusstjórnun, jóga og endalausir fundir um alla borg
M
yn
d
Si
g
tr
yg
g
u
r
Ar
i