Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 49
Helgarblað 9. febrúar 2018 49
Í febrúar keppast margir við að verða besta útgáfan af sjálfum sér en hvað í ósköpunum er það eiginlega?
Nú er ég til dæmis bara til í einni
útgáfu (eða það vona ég að minnsta kosti)
og sem betur fer er ég ekki með klofinn
persónuleika. Þótt hann sé flókinn og
stundum svolítið skrítinn þá kemur hann
samt bara í einni útgáfu. Það sama gildir
um skrokkinn á mér. Hann er bara til í
einni útgáfu.
Nú hef ég lifað í nokkur ár og ekki
alltaf verið eins. Þú veist, maður breytist,
þroskast, krumpast, fitnar, grennist og svo
framvegis. Svo breytast áhugamálin og
skilningurinn millli ára.
Ég veit ekki til þess að ég hafi verið
eitthvað skárri fyrir nokkrum árum.
Reyndar finnst mér hver einasta
uppfærsla af sjálfri mér skána ögn með
hverju árinu. Margrét 4.7 er mikið skárri
en Margrét 2.3. Nýja viðmótið er alltaf
meira í takt við tímann og örlítið betra en
það fyrra. Með þessu framhaldi verð ég
hreint magnaður eldri borgari!
Kunningi minn sagðist ætla að nýta
Meistaramánuð til að verða besta útgáfan
af einhverjum öðrum. Sagðist vera búinn
að velja viðkomandi en hefði ekki sagt
honum frá því: „Sá verður undrandi
þegar ég sprett óvænt fram í lok mánaðar
sem besta útgáfan af honum!“
Því miður held ég að of margir festist
einmitt í því að vilja verða einhvers konar
útgáfa af allt annarri manneskju. Miða sig
við hana og setja markmið í takt. Svo er
það fólkið sem vill endilega verða tvítuga
útgáfan af sjálfu sér. Hvorutveggja ávísun
á vandræði og vanlíðan.
Besta útgáfan af sjálfri mér er ekki
nokkrum kílóum þyngri eða grennri,
nokkrum árum eldri eða yngri, með
hærri innistæðu á bankareikningnum og
svo framvegis.
Besta útgáfan af sjálfri mér er ná-
kvæmlega þessi sem ég er núna og algjör-
lega sátt, – enda „special edition“ og
engin önnur útgáfa í boði.
Ert þú besta útgáfan af sjálfri þér? Eða einhverjum öðrum?
Margrét H.
gústavsdóttir
margret@dv.is
„Ég veit ekki til þess
að ég hafi verið
eitthvað skárri fyrir nokkrum
árum. reyndar finnst mér
hver einasta uppfærsla af
sjálfri mér skána ögn með
hverju árinu. margrét 4.7 er
mikið skárri en margrét 2.3.
Ágústa eva lofar
svakalegri stemningu
Hljómsveitin Sycamore Tree treður upp á Kexinu laugardaginn 10. febrúar
Hljómsveitina Sycamore Tree ættu landsmenn að vera farnir að þekkja eftir mikla
spilun á öldum ljósvakans. Sveitin
sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu
þann 24. september á síðasta ári
en á morgun, laugardag, mun hún
halda sína þriðju tónleika í höfuð-
borginni.
Sycamore Tree skipa þau
Ágústa Eva Erlendsdóttir og Gunni
Hilmarsson sem bæði eru lands-
þekkt af fyrri verkum. Á tónleikum
njóta þau liðsinnis þeirra Arnars
Guðjónssonar, sem leikur á bassa,
og Unnar Birnu Bassadóttur, sem
spilar á fiðlu og slagverk ásamt því
að syngja bakraddir.
„Það er svakaleg stemning að
byggjast upp fyrir þessum tónleik-
um og hún hefur stigmagnast alla
vikuna,“ segir Ágústa Eva roggin
í símtali við blaðamann og hefur
ærið tilefni til enda var hún valin
söngkona ársins 2017 á Hlustenda-
verðlaunahátíð FM á dögunum.
„Við höfum verið með sjö lög í
röð á vinsældalistum útvarpsstöðv-
anna og svo fengum við fjölmargar
tilnefningar á hlustendaverðlaun-
um og mikla athygli, bæði hér
heima og úti í heimi,“ segir Ágústa
og bætir við að þau séu alltaf að
semja ný lög sem öll hafi fengið
góðar undirtektir.
Frumflytja nýtt lag í hvert sinn sem
þau halda tónleika
„Við höfum frumflutt nýtt lag á
hverjum einustu tónleikum hingað
til sem hefur fallið vel í kramið. Á
síðustu tónleikum, sem fóru fram í
Skyrgerðinni í Hveragerði, tókum
við líka óskalög úr sal og fengum
lánaða síma hjá áheyrendum til að
tékka á lögum og fletta upp textum
en þetta vakti mikla kátínu,“ segir
hún og hlær um leið og hún bætir
því við að alla hljómsveitarmeð-
limina hlakki mikið til að spila á
Kexinu um helgina.
„Við höfum spilað fyrir fullu
húsi í hvert sinn sem við höfum
komið fram og erum mjög spennt
fyrir tónleikunum á Kexinu enda
höfum við ekki spilað saman í
Reykjavík síðan fyrir jól,“ segir
söngkonan ástsæla að lokum.
Tónleikarnir á KEX Hostel hefj-
ast klukkan 21 en miðar fást m.a.
hjá TIX.is og við anddyri.
Mynd Saga Sig
„Á síðustu tónleikum, sem fóru fram í
skyrgerðinni í Hveragerði, tókum við
líka óskalög úr sal og fengum lánaða síma
hjá áheyrendum til að tékka á lögum og
fletta upp textum.
Sycamore Tree
Ágústa Eva og Gunni
í myndatöku hjá Sögu
Sig.