Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Page 70
70 fólk 9. febrúar 2018
Lítt þekkt
ættartengsl
Ógegnsæis-
menn og gegn-
sæismaðurinn
S
pjótin
standa nú
á bræðr-
unum
Kristjáni Snorra
og Eyjólfi Vest-
mann Ingólfsson-
um sem standa
að Flokki heim-
ilanna. Flokkur
heimilanna bauð fram til Alþingis
árið 2013 og fékk rúmlega 30 millj-
ónir úr ríkissjóði.
Kristján Snorri er
formaður flokks-
ins og segir starf-
semina vera í full-
um gangi þrátt
fyrir að flokkurinn
hafi ekki boðið
sig fram 2016 og
2017 og ætli held-
ur ekki í framboð í
ár. Kristján vildi ekkert tala við RÚV
um málið fyrir skemmstu og sagðist
ekki ætla að veita viðtal um málið
næstu fimmtíu árin. Svo virðist sem
flokkurinn leggi ekki mikla áherslu
á gagnsæi í störfum sínum.
Það sem fáir vita er að ná-
frændi þeirra bræðra er einnig í
stjórnmálum og leggur þar mikla
áherslu á gagnsæi. Móðir þeirra
Kristjáns Snorra og Eyjólfs Vest-
mann er María Kristjánsdóttir,
systir Svans Kristjánssonar sem er
faðir Halldórs Auðar Svanssonar,
borgarfulltrúa Pírata.
Það væri forvitnilegt að heyra
hvað lýðræðisráðið sem Halldór
Auðar stýrir í Reykjavík segði um
framferði frænda hans.
Kristján
Snorri Ing-
ólfsson
hin hLiðin„Mamma myndi
halda að ég hefði
gengið niður Banka-
strætið berrössuð“
Hvað viltu að standi skrifað á legsteininn
þinn? Hakuna Matata. Vil líka að þessu lagi ver-
ið blastað í jarðarförinni minni og allir dansi út.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf
spilað um leið og þú gengir inn í herbergi
allt þitt líf, hvaða lag myndirðu velja?
Superstar með Jamelia. Og helst bara
viðlagið þar sem hún syngur: „You must be
some kind of superstar.“
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Öllum lé-
legu bröndurunum hans pabba. Hann á ódauð-
legt safn af fimmaurabröndurum sem eru í raun
alveg glataðir, en honum sjálfum
finnst þeir svo fyndnir að maður
hrífst með honum.
Borðarðu mat sem er kom-
inn fram yfir síðasta sölu-
dag? Ekki séns. Ég er alveg
agaleg með síðasta söludag.
Mamma er alltaf að skamma
mig, en ég er svo mikill gikkur á
mat að ég ímynda mér græna
myglu í öllu sem var útrunnið
í gær. Og já, ég veit, ég verð að
taka mig á í þessum málum.
Hvað er löglegt í dag en
verður það líklega ekki eftir
25 ár? Ég vona svo innilega
að það verði reykingar. Mesti
óþarfi í heimi eru sígarettur
(hef aldrei reykt og þeir
sem reykja eru pottþétt að
skamma mig í huganum núna). Er samt ekk-
ert að hugsa um að fangelsa fólk sem reykir,
en ég vona að eftir 25 ár verði fólk búið að
átta sig á að reykingar drepa … í alvörunni.
Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek í
lífinu? Að ganga með tvö börn, í einu. Var
svo heppin að það var einhver æðri sem
ákvað að ég yrði tvíburamamma. Ég mun
nota þetta óspart á eiginmanninn þangað
til þau verða 18 ára. Að ég hafi í raun fram-
kvæmt stórafrek með því að ganga með
þau bæði í einu. Ég á það til að grípa í þann
frasa þegar mig vantar vatnsglas og nenni
ekki að standa upp. Svínvirkar alltaf. Ég á
góð 11 og hálft ár eftir af þessum frasa.
Ef þú myndir borða sjálfa þig, hvort
myndirðu hverfa eða tvöfaldast? „Dou-
ble trouble.“ Það er svo gott í mér pundið að
ég myndi tvöfaldast .
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en
er það ekki lengur? Buffalo-skór. Blessuð
sé minning þeirra. Ég hef reyndar séð ein-
hvers konar útgáfu af þessum skóm í dag,
sem eru töluvert skárri, en ég bið í raun til
Guðs að Buffalo-skórnir, „the one and only“
muni ekki koma í tísku, því ég á það til að
vera „fashion victim“.
Hvað verður orðið hallærislegt eftir
fimm ár? Smellubuxurnar sem mér sýnist
Adidas vera að innleiða aftur. Kendall Jenner
póstaði myndskeiði af sér á Instagram í þeim
og ég fékk ákveðinn hroll niður bakið. Hélt að
þær væru að hvíla í friði með Buffalo-skón-
um. En ég held að þær munu ekki halda velli.
Ef þið sjáið mig í smellubuxum og Buffalo-
skóm í sumar þá kannski flettiði þessu viðtali
upp og minnið mig á þetta svar.
Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu
vilja eiga sem vin? Svamp Sveinsson. Eins
óþolandi og röddin hans er, þá virkar hann
á mig sem flippað skemmtileg týpa og ég er
nokkuð viss um að hann mundi kynna mig fyrir
Pétri og við þrjú yrðum „best friends“ að eilífu.
Hvað myndirðu segja ef Guð hnerraði?
,,Eva blessi þig.“
Hvernig myndirðu lýsa litnum gulur fyrir
blindum manni? ,,Ímyndaðu þér hlýjustu
tilfinningu sem þú getur fundið. Þannig er
gulur. Hlýr og góður.“
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa?
„Bye bye bye“ með Justin Timberlake og
strákunum í NSYNC.
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Ég hika ekki við að nikka fast til
frægra sem ég þekki alls ekki og ég geri það
alveg mjög óvart. Einu sinni vinkaði ég til
dæmis Sindra á Stöð 2 ákaft í rúllustiganum
í Smáralind. Áttaði mig á að ég þekkti hann
ekki neitt þegar hann hikaði aðeins þegar
hann sá mig og hélt síðan áfram för sinni.
Ég viðurkenni að ég bölvaði mér smávegis í
hljóði það sem eftir var af rúllustigaferðinni.
Ef þú yrðir handtekin án skýringa, hvað
myndu vinir þínir og fjölskylda halda að
þú hefðir gert af þér? Að ég hefði „stalkað“
einhvern frægan, eiginmaðurinn svaraði
þessar mjög fljótt fyrir mig. Mamma sagðist
mundi halda að ég hefði gengið niður Banka-
strætið berrössuð. Ég sé að ég þarf að endur-
skoða sjálfa mig eftir þessi svör frá þeim.
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs og sama
daginn myndi Lagarfljótsormurinn finn-
ast, Frikki Dór vinna Eurovision fyrir Ís-
lands hönd og Donald Trump yrði myrtur.
Hver yrði stærsta fyrirsögnin í blaðinu
þínu daginn eftir? Ef Eurovision-draumur-
inn myndi rætast þá fengi dagblaðið allar
blaðsíðurnar undir sigurinn og ég mundi
boða mikinn fögnuð á Arnarhóli við komu
Frikka til landsins. Ég væri náttúrulega mikil
valdamanneskja og ræki vinsælasta dag-
blað landsins. Skítt með Trump og orminn.
Frikki Dór ætti blaðið í um viku.
Hverjum líkist þú mest? Ég líkist Tinnu
systur minni mest, og margir halda að við
séum eineggja tvíburar. En svo hef ég fengið
að heyra um það bil 1.000 sinnum að ég lík-
ist leikkonunni Kim Raven. Fæ það um það
bil einu sinni í viku, fjöldann allan af skila-
boðum þess efnis. Yfirleitt á mðvikudögum
þegar Grey's Anatomy er á skjánum.
Hvaða lag skammastu þín mest fyrir að
hafa haldið upp á? Barbiegirl með Aqua.
Þetta lag var á topplistanum mínum í um
eitt ár þegar það kom út á hátindi gelgjunn-
ar. Ég viðurkenni alveg að ég hækka ef það
kemur í útvarpinu en Jesús minn, þetta lag
er svo slæmt að mig verkjar á sama tíma og
ég góla hátt með hverju orði.
Gleðigjafinn, veislustjórinn, blómaskreytirinn og
snapparinn Eva Ruza Miljevic hefur alltaf nóg fyrir
stafni. Hún er líka tvíburamamma, eiginkona og
systir. Eva sýnir lesendum DV á sér hina hliðina og
svarar nokkrum undarlegum spurningum.
Ég hef lokað á
tilfinningar mínar í mörg ár
K
ara Kristel er 22 ára og
hefur vakið athygli fyrir
opinská skrif um kynlíf og
samskipti kynjanna. Kara
er nýr penni á DV og í sínum
fyrsta pistli sýnir hún á sér mýkri
hlið en hún hefur áður gert.
Síðustu mánuði hef ég gef-
ið út á við þá mynd af mér að
ég sé frekar tilfinningalaus
stelpa. Reyndar ekki bara sein-
ustu mánuði heldur seinustu
ár frekar. Að vera ungur á Ís-
landi í dag er ótrúlega erfitt,
við erum öll svo erfið. Ég get
aðeins tjáð mig út frá minni
reynslu, en ég veit að reynsla
flestra vina minna er svipuð.
Hversu lengi er hægt að sofa
hjá manneskju án tilfinninga?
Hvar eru mörkin? Þegar hlátur-
inn, gleðin og koddahjalið eru
farin og seinasta skiptið okk-
ar var án þess að hvorugt hefði
hugmynd um að það yrði það
seinasta. Hvernig kveður kona
einhvern sem hún átti ekki, án
þess að segja bless?
Ég er sek. Ég hef lokað á til-
finningar mínar í mörg ár.
Nokkrum sinnum brennt mig á
því eftir á. Ég hef áttað mig á því
tvisvar, of seint í bæði skiptin, að
ég væri með tilfinningar til við-
komandi.
Hvað gerir kona? Í fyrra skipt-
ið læknaði tíminn sárin, ég er
ekki búin að komast til botns í
hvað gerðist í seinna skiptið. Ég
sakna hans. Ég sakna hláturs-
kasta, ég sakna samræðna, ég
sakna kynlífsins.
Þegar tvær týndar sálir mæt-
ast og allt er leikur verður enginn
sigurvegari. Þú getur ekki unnið
leikinn, sama hvað þú reynir.
Það getur það enginn.
Það er erfitt í samfélagi þar
sem allir setja upp grímu, stelp-
ur og strákar. Fáir þora að sýna
tilfinningar og ef þú þorir ertu
asnalegur.
Ég veit að tíminn lagar allt,
góðar vinkonur, góðir vinir og
góð tónlist hjálpar til við að
dreifa huganum. En þegar allt
róast, kona er komin heim og
þögnin tekur yfir byrjar hugur-
inn að reika. Hvað ef ég hefði
sagt eitthvað? Er hann með
sömu tilfinningar og ég?
Ef ég er heppin, eftir ótal
kvöld sem innihalda vinkonur,
hvítvín, gloss og djammsleika,
gleymi ég honum.
Þegar ég hitti þig fyrst hefði
mér aldrei dottið í hug hvað
myndi gerast, hversu mikið mér
myndi þykja vænt um þig.
Þegar tíminn hefur kennt
mér að þegar ég næ að gleyma
þér tekur sá næsti við, og sagan
mun endurtaka sig alveg þang-
að til ég hef lært að opna mig.
Þangað til mun ég sakna, og það
er skrítið að sakna einhvers sem
ég átti ekki.
Hvað er svona erfitt við þetta?
XXX
„Hversu lengi er
hægt að sofa
hjá manneskju án
tilfinninga?
Þau voru einu sinni par!
Halldór Auð-
ar Svansson
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og séra Davíð
Þór Jónsson voru par í sjö ár. Það neistaði á milli þeirra í
Gettu betur. Davíð segir að Katrín hafi slitið sambandinu
árið 2004 vegna drykkju hans en ári síðar klæddist
hann sloppi á Vogi og hóf nýtt líf. Skilnaðurinn lagðist
illa í Davíð en í dag er hann þakklátur Katrínu. Kona
Davíðs í dag er Þórunn Gréta Sigurðardóttir en Katrín er í
sambúð með Gunnari Sigvaldasyni.