Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 37
Helgarblað 16. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ Viðhald og framkvæmdir
Sælandsgarðar hjálpa
þér við garðinn og hellurnar
Fagmennska og persónuleg þjónusta
Það er gott að hafa tímann fyrir sér í vorverkunum og þó að ekki sé komið vor er engu að síður
tímabært að huga að garðinum,
stéttunum og umhverfi sínu almennt.
eiríkur sæland, garðyrkjufræðingur
hjá fyrirtækinu sælandsgarðar, er
sérfræðingur á þessu sviði og hann
bendir á að veturinn geti nýst mjög
vel til vinnu í garðinum. eiríkur er
menntaður garðyrkjufræðingur frá
garðyrkjuskóla ríkisins og sótti sér
frekari menntun í faginu til noregs
og Danmerkur. Hann hefur frá árinu
2008 rekið eigið fyrirtæki, garða-
þjónustuna e. sæland, sem hefur
skipt um nafn og heitir nú sælands-
garðar ehf. tilefni nafnbreytingar-
innar er það að sonur eiríks, kolbeinn
sæland vélstjóri er kominn inn í
rekstur fyrirtækisins, en hann lýkur
námi sem skrúðgarðyrkjufræðingur
frá landbúnaðarháskóla Íslands í vor.
auk þeirra feðga starfa við fyrirtækið
skrúðgarðyrkjumeistari og fleiri mjög
reyndir starfsmenn.
Kjörinn tími til að klippa tré og runna
eiríkur segir að þessar vikurnar sé
kjörinn tími til að klippa tré og runna
og fella tré sem skyggja á sólu eða
þarf að fella af öðrum ástæðum.
undir vorið er í mörgu að snúast í
görðum og þá er gott að vera búinn
að klippa það sem klippa þarf, áður
en kemur að beðahreinsunum og
almennri hirðingu.
starfsmenn sælandsgarða eru
færir fagmenn á þessu sviði og hafa
mikla þekkingu á plöntum og mikla
reynslu af klippingum og trjáfell-
ingum. þeir geta veitt ráðgjöf, gert
kostnaðaráætlanir og komið með
bæði glæsilegar og hagkvæmar
lausnir.
eiríkur segir að
nauðsynlegt sé að
klippa limgerði
reglulega til að
viðhalda því
og þétta það
og koma í veg
fyrir að það
gangi úr sér. Í
borgarlandinu
er líka mikil-
vægt að snyrta
tré reglulega svo
þau nái því lagi
sem fólk vill.
Hellulögn og
hleðslur
Á þessum
árstíma er
líka kjörið
að vinna í
hellulögn og
hleðslu þegar
vel viðrar. til
dæmis að rífa
upp og endur-
nýja gamlar hellulagnir
í heimkeyrslum, á bílastæðum og
göngustígum, og leggja nýjar. oft
þarf líka að endurnýja gamlar hleðsl-
ur eða gera nýjar, hvort heldur er
með forsteyptum einingum eða nátt-
úrulegu grjóti. Hellur og náttúrugrjót
geta verið skemmtileg lausn í garðin-
um til að minnka garðslátt og gera
ásýnd garðsins léttari, nútímalegri og
flottari. þarna þarf síðan líka að koma
við sögu ráðgjöf og undirbúningur á
borð við jarðvegsskipti og uppsetn-
ingu snjóbræðslukerfa eftir því sem
við á og óskað er eftir.
Gras og beð
þegar vorar er síð-
an orðið tímabært
að hreinsa beðin,
kantskera og semja
um garðslátt.
sælandsgarðar
taka að sér
öll þessi
verk og
hefur síð-
ustu ár séð
um garðslátt,
beðahreinsun
og alla umhirðu
garða fyrir húsfé-
lög, fjölbýlishús, stór
og lítil fyrirtæki og
stofnanir.
Sælandsgarðar
ehf.
starfsmenn
sælandsgarða
mæta á svæðið,
skoða umfang verks-
ins, gera áætlanir um
lausn með húseigendum
og leysa í kjölfarið verkið af
fagmennsku, fljótt og örugg-
lega, á hagkvæman hátt.
sælandsgarðar ehf. er
vaxandi fyrirtæki sem tekur að
sér verkefni allt árið um kring.
eiríkur og hans menn eru með
öll nauðsynleg tæki og búnað
í garðaþjónustu og hellulögn
– eru fagmenn sem leggja
áherslu á persónulega þjón-
ustu og vandaða vinnu.
Hægt er að hafa samband við Eirík
hjá Sælandsgörðum í síma
680-9903, með tölvupósti á net-
fangið eirikur_omar@hotmail.com og
á Facebook-síðunni
Garðaþjónusta E. Sæland ehf.
Eiríkur Ómar Sæland