Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Síða 47
sport 4716. mars 2018 Til sölu tveir Ford Transit 460, 18 manna. Árgerð 2017, eknir aðeins 7000 km. Verð aðeins 4.690.000 stgr, án vsk. Nánari upplýsingar hjá Braut bílasölu sími 587-6600 og Bílahöllinni hf., sími 567-4949 F yrsta HM-keppnistreyja Ís- lands í knattspyrnu hefur litið dagsins ljós. Búningur- inn er hannaður með þarfir og óskir leikmanna að leiðarljósi. Það er ERREA sem framleiðir bún- inginn í eigin verksmiðju í Evrópu. Búningurinn var kynntur við há- tíðlega athöfn á Laugardalsvelli í gær, fimmtudag, en á svæðinu voru Heimir Hallgrímsson, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og fleiri gestir. Ítalskur Íslandsvinur Leitað var til hönnuða bæði ís- lenskra og erlendra og þá var einnig tekið tillit til óska landsliðs- fólksins okkar, varðandi snið og efni. Margar skemmtilegar hug- myndir komu fram. Fyrir valinu varð hönnun ítalska íþróttavöru- hönnuðarins Filippo Affani, þar sem hans hönnun þótti koma best út miðað við þarfir og óskir. Til gamans má geta þess að Filippo er mikill Íslandsvinur og flaggar til að mynda alltaf íslenska fánan- um þegar landsliðið okkar spilar. Horft var til einkenna landsins og unnið með eldinn og ísinn. Treyjan á að endurspegla kraftinn sem býr innra með þjóðinni og áræðnina þrátt fyrir smæð. Innan á kragan- um er að sjálfsögðu að finna mön- tru landsliðsins „Fyrir Ísland“, sem lýsir vel þeim hug sem leikmenn landsliðanna okkar bera þegar þeir ganga inn á keppnisvöllinn og leggja allt í sölurnar fyrir Ísland. Forsetinn sáttur Hr. Guðni Jóhannesson, forseti Íslands, tók við fyrstu treyjunni úr hendi formanns KSÍ og sagði við það tilefni: „Upp er runnin söguleg stund þegar ég tek nú við fyrstu treyjunni sem spilað verð- ur í á fyrsta heimsmeistaramóti í knattspyrnu sem Ísland tekur þátt í. Það sem skiptir þó meira máli eru þeir sem verða í henni – við þurfum að finna stoltið og gleðina sem fylgir því að spila fyrir Ísland. Takk – treyjan lítur vel út – þar með er það ákveðið,“ sagði Guðni Th. Formaður KSÍ spenntur Errea og KSÍ hafa átt farsælu sam- starfi að fagna lengi, enda hefur Errea verið einn helsti stuðnings- aðili KSÍ í mörg ár eða allt frá ár- inu 2002. „Þetta er stund sem margir hafa beðið eftir, enda búningur, eða treyja, sem meirihluti þjóðarinnar mun líklega klæðast í sum- ar. Við erum gríðarlega sátt við útkomuna, enda var tek- ið tillit til allra okkar þarfa við hönnun treyjunnar og hún er flott,“ segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ. Errea svarar eftirspurn þjóðarinnar „Við erum gríðarlega stolt í dag þegar við afhendum fyrstu treyjurnar. Það er ekki einfalt að hanna og framleiða keppnistreyju landsliðs þar sem taka þarf tillit til óska og þarfa þeirra sem verða í henni. Treyjan á að endurspegla kraftinn sem býr innra með þjóðinni og áræðnina þrátt fyrir smæð,“ segir Þorvald- ur Ólafsson, framkvæmdastjóri Errea á Íslandi. „Eftir EM-ævin- týrið árið 2016 erum við hjá Errea reynslunni ríkari og munum leggja okkur fram um að svara eftirspurn þjóðarinnar og tökum þannig þátt og styðjum strákana,“ segir Þorvaldur. n Guðni Th. fékk fyrstu treyjuna n Nýr búningur kynntur í gær n Verður notaður á HM í Rússlandi Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is „Það sem skiptir þó meira máli eru þeir sem verða í henni – við þurfum að finna stoltið og gleðina sem fylgir því að spila fyrir Ísland. Umdeild Það er ljóst að treyjan verður umdeild til að byrja með eins og allar treyjur landsliðsins síðustu ár. Varabúningurinn Eins og síðustu ár er það hvítur varabúningur sem Ísland notar. Glaður Guðni Th. fékk fyrstu treyjuna og var sáttur við hana. Mynd SiGtryGGUr Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.