Fréttablaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 10
MÁLÞING UM GRÆNNI BYGGÐ
Fimmtudaginn 26. apríl kl. 13.00-16.30 í Veröld, húsi Vigdísar, Brynjólfsgötu 1
VIÐSNÚNINGURINN Í UMHVERFIS- OG LOFTSLAGSMÁLUM
HVERNIG EIGUM VIÐ AÐ BYGGJA FYRIR GRÆNNI FRAMTÍÐ?
Á málþingið um grænni byggð koma erlendir og innlendir fagsérfræðingar um grænar lausnir og áherslur í byggingariðnaði og skipulagi.
Málþing um Grænni byggð/Vistbyggðardagurinn er skipulagður af Vistbyggðarráði í samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins, Mannvirkjastofnun og
Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Skráning á vbr@vbr.is. Verð 6.000 kr. fyrir aðila að Vistbyggðarráði, 9.000 kr. fyrir aðra og 2.000 kr. fyrir háskólanema. Sjá má alla dagskrána á www.vbr.is
Mette Qvist
framkvæmdasjóri
Green Building
Council
Dagur B.
Eggertsson,
borgarstjóri
Gísli Marteinn
Baldursson,
borgarfræðingur
Bryndís Skúladóttir,
sviðsstjóri
framleiðslusviðs SI
Guðrún Ingvarsdóttir,
forstjóri
Framkvæmdasýslu
ríkisins
Eric Holding, arkitekt
og borgarhönnuður
Ólafur H.
Wallevik,
forstöðumaður
Rb. Hjá NMI
Helga Jóhanna
Bjarnadóttir,
efnaverkfræðingur
hjá EFLU
MjanMar Lögreglustjóri í Mjanmar
skipaði lögregluþjónum að leiða
tvo blaðamenn Reuters í gildru. Þeir
ættu að lokka þá á veitingastað með
því að lofa þeim leyniskjölum og svo
handtaka þá. Þetta fullyrti lögreglu-
stjórinn Moe Yan Naing í skýrslu-
töku fyrir dómi í máli gegn Reuters-
blaðamönnunum Wa Lone og Kyaw
Soe Oo í gær.
Réttarhöldin yfir Lone og Oo hafa
staðið yfir frá því í janúar en blaða-
mennirnir eru ákærðir fyrir að brjóta
upplýsingalög. Þeir eiga yfir höfði sér
fjórtán ára fangelsisdóm en umfjöll-
unin sem þeir unnu að snerist um
þjóðernishreinsanir á Róhingjum í
Rakhine-héraði Mjanmar.
Blaðamennirnir höfðu sagt frá því
að þeir hefðu verið handteknir sek-
úndum eftir að þeir fengu skjölin í
hendurnar. Lögreglumennirnir tveir
sem handtóku Lone og Oo hafa ekki
enn borið vitni í málinu.
Myo Thu Soe, ofursti og talsmaður
lögreglunnar, sagði vitnisburð Naing
byggðan á tilfinningum lögreglu-
stjórans. Ekki væri hægt að gera ráð
fyrir því að frásögnin væri sönn.
Amal Clooney, einn verjenda
blaðamannanna, sagði í yfirlýsingu
í gær að ákæruvaldið ætti að fella
niður ákæru sína. Annars myndi
dómari vísa málinu frá. – þea
Blaðamennirnir
leiddir í gildru
Meðferð blaðamanna Reuters hefur
verið mótmælt. NoRdicphotos/AFp FjÖLMIÐLar Gert er ráð fyrir því í
fjármálaáætlun að tekjutap ríkisins
vegna afnáms virðisaukaskatts á
bækur og breytinga á fjölmiðlaum-
hverfi þýði tekjutap sem nemur
rúmum hálfum milljarði á næstu
árum.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segist
horfa til alþjóðlegs umhverfis við
vinnu á breytingum vegna starfs-
skilyrða fjölmiðla. „Ég er að horfa
á öll Norðurlöndin og ég er líka að
horfa á Breta sem eru með sterkt
ríkissjónvarp, BBC.
Nálgunin er alþjóðleg og það er
alveg ljóst að við hlutfallslega erum
að styrkja okkar einkareknu fjöl-
miðla minna en þau lönd sem við
miðum okkur við. Þetta verður stór
þáttur í þeirri niðurstöðu sem við
komumst að,“ segir Lilja.
Nefnd sem Illugi Gunnarsson,
þáverandi mennta- og menningar-
málaráðherra, skipaði um breytt
rekstrarumhverfi fjölmiðla skilaði
Lilju Alfreðsdóttur, núverandi ráð-
herra, skýrslu í lok janúar. Þar er
meðal annars lagt til að einkareknir
fjölmiðlar fái endurgreiðslu á hluta
kostnaðar vegna framleiðslu á frétt-
um og fréttatengdu efni, að Ríkis-
útvarpið fari af auglýsingamarkaði,
að virðisaukaskattur áskrifta verði
11 prósent, að áfengis- og tóbaks-
auglýsingar verði heimilaðar, að
einkareknir fjölmiðlar fái endur-
greiðslu á hluta kostnaðar vegna
textunar og talsetningar á efni, að
undanþáguheimildir verði gefnar
vegna textunar og talsetningar og
að tryggt verði gagnsæi í kaupum
hins opinbera á auglýsingum.
Dönsk stjórnvöld kynntu um
daginn tillögur til að bregðast við
rekstrarstöðu fjölmiðla. Lilja segist
vera búin að kynna sér þær og að
þær hafi verið ræddar í mennta- og
menningarmálaráðuneytinu.
Eftir að fréttir birtust af tillögunum
í dönskum fjölmiðlum sagði Brynjar
Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, að í Evrópu væru menn að
átta sig á hversu mikil tímaskekkja
ríkisreknir ljósvaka- og netmiðlar
eru. „Og ekki bara tímaskekkja held-
ur fullkomlega óeðlilegt út frá jafn-
ræðis-og samkeppnissjónarmiðum.
Eins og oft áður eru Danir fyrstir að
rakna úr rotinu. Á Íslandi eru menn-
ingar- og öryggisrökin fyrir tilvist
RUV úr sér gengin sem og rökin fyrir
aðgengi allra að ljósvakamiðlum.
Kannski að hollvinir RUV reyni að
beita lýðheilsusjónarmiðum eins og
við hollvinir ÁTVR gerum fyrir einka-
sölu ríkisins á áfengi,“ sagði Brynjar
á Facebook. jonhakon@frettabladid.is
Tekjutap í breyttu umhverfi
Mennta- og menningarmálaráðherra horfir til Norðurlandanna og Bretlands vegna breytinga á starfs-
umhverfi fjölmiðla. Dönsk stjórnvöld hafa kynnt tillögur til að bregðast við rekstrarstöðu fjölmiðla.
Breytingar á fjölmiðlaumhverfinu þýða töluvert tekjutap fyrir hið opinbera. NoRdicphotos/Getty
2 1 . a p r í L 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a B L a Ð I Ð
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
3
-F
7
7
4
1
F
8
3
-F
6
3
8
1
F
8
3
-F
4
F
C
1
F
8
3
-F
3
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K