Fréttablaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 46
Starfsmaður í eldhús - ráðskona
Múlabær, dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja, óskar eftir
að ráða starfsmann í eldhús - ráðskonu í 70-100 % starf.
Múlabær er með 60 dagþjálfunarpláss. Opið er frá kl 8:00-
16:00 alla virka daga. Boðið er upp á hjúkrunarþjónustu,
æfingaaðstöðu, vinnustofu, fjölbreytt félagsstarf og
aðstoð við bað. Lögð er áhersla á að bæta lífsgæði fólks
og hugað er að líkamlegum, andlegum og félagslegum
þáttum. Múlabær býður upp á frábæra aðstöðu í nýju
húsnæði.
Í Múlabæ er móttökueldhús. Boðið er upp á morgunmat,
hádegismat og síðdegishressingu.
Undir helstu verkefni
- ábyrgð á eldhúsi, m.a. matseðill og þrif
- ábyrgð á pöntunum og samskipti við byrgja
Reynsla og hæfni:
- menntun á sviði matreiðslu er kostur en ekki nauðsyn
- reynsla af vinnu í eldhúsi á stofnun eða í fyrirtæki
er æskileg
- skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
Ráðning frá 15.5.2018 eða eftir samkomulagi.
Vinsamlegast sendið umsóknir og ferilskrá til Múlabæjar,
Bt. Þórunnar Bjarneyjar Garðarsdóttur, Síðumúla 32, 108
Reykjavík eða sendið á netfangið
thorunn.mulabaer@internet.is
Umsóknarfrestur er til 26.04.2018
Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi
Múlabær, dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja, óskar eftir
að ráða hjúkrunarfræðing/nema í sumarafleysingar með
möguleika á áframhaldandi starfi.
Múlabær er með 60 dagþjálfunarpláss. Opið er frá kl 8:00-
16:00 alla virka daga. Boðið er upp á hjúkrunarþjónustu,
æfingaaðstöðu, vinnustofu, fjölbreytt félagsstarf og
aðstoð við bað. Lögð er áhersla á að bæta lífsgæði fólks
og hugað er að líkamlegum, andlegum og félagslegum
þáttum.
Helstu verkefni:
- fjölskylduhjúkrun
- greina hjúkrunarþarfir og framfylgja meðferð
- samvinna við heilbrigðisstofnanir og þjónustuaðila
Reynsla og hæfni:
- íslenskt hjúkrunarleyfi
- frumkvæði og sjálfstæði í vinnu
- góðir samskipta og samstarfshæfileikar
- reynsla og áhugi á að starfa með öldruðum
Ráðning frá 1.6.2018 eða eftir samkomulagi.
Vinsamlegast sendið umsóknir og ferilskrá til Múlabæjar,
Bt. Þórunnar Bjarneyjar Garðarsdóttur, Síðumúla 32, 108
Reykjavík eða sendið á netfangið
thorunn.mulabaer@internet.is
Umsóknarfrestur er til 26.04.2018
Yfirmaður lausnaþjónustu
Upplýsingatæknideild
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Upplýsingatæknideild Reykjavíkur auglýsir laust starf yfirmanns lausnaþjónustu hjá deildinni.
Upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar rekur eitt stærsta tölvunet landsins með hartnær 10.000 útstöðvum fyrir um 25.000 notendur.
Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni sem felast m.a. í innleiðingu skýjalausna og annarra nýjunga á sviði upplýsingatækni til
þess að nútímavæða tæknilega innviði og auka skilvirkni og bæta þjónustu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Arnar Þór Sigurðarson deildarstjóri upplýsingatæknideildar, í síma 411 1111 eða í gegnum tölvupóstfangið
arnar.thor.sigurdarson@reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til 7. maí nk. Umsóknir ásamt fylgiskjölum skulu berast í gegnum vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
Helstu verkefni:
• Stjórnun teymis kerfisstjóra og sérfræðinga sem sinna
kerfisrekstri, þróun, viðhaldi og þjónustu við þau kerfi sem eru í
rekstri fyrir Reykjavíkurborg.
• Stefnumótun, umbótavinna og yfirumsjón með þróun kerfa
og verkferla.
• Tryggja hnökralausan rekstur kerfismiðju og þróun og viðhald
innviða kerfismiðju.
• Þróun á nýtingu og notkun skýjalausna.
• Verkefnastjórnun stærri upplýsingatækniverkefna.
• Árangursstjórnun.
• Forysta og liðstjórnun.
• Samskipti við þjónustubirgja og búnaðarbirgja.
• Öryggismál (Cyber Security).
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólagráða á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða önnur
sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla á sviði
upplýsingatækni ásamt lausnamiðaðri stjórnun.
• Reynsla af tæknilegri áætlunargerð og greiningu ferla.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
• Lipurð og færni í samskiptum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og á ensku.
Merki ráðuneytanna í 4 litum
fyrir dagblaðaprentun
Starf sérfræðings á skrifstofu
stefnumótunar og fjárlagagerðar
Auglýst er laust til umsóknar starf sérfræðings á
skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar í
mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins,
menntamalaraduneyti.is.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018.
Upplýsingatæknisvið Fjármálaeftirlitsins sér um þróun eftirlitshugbúnaðar og rekstur tölvukerfa, ásamt því
að aðstoða starfsfólk og eftirlitsskylda aðila við notkun kerfanna. Samstarf er við bæði innlendar og erlendar
eftirlitsstofnanir um ýmis verkefni. Við leitum nú að gagnagrunnssérfræðingi í þróunarteymið okkar. Í boði
eru spennandi verkefni í lifandi umhverfi fyrir kraftmikinn og drífandi einstakling sem hefur metnað til að
stuðla að skilvirkni í nýtingu gagna, vandaðri gagnahögun og upplýsingaöryggi.
Starfssvið
• Verkefni sem tengjast þróun gagnagrunna eftirlitsins ásamt
daglegum rekstri þeirra
• Þróun á gagnamódelum, gæðaprófum og skemum
• Verkefni tengd uppfærslum, vöktun og auknum afköstum
gagnagrunna
• Þróun á vöruhúsi gagna og stoðgögnum (e. Masterdata)
• Þátttaka í þróun á gagnaskilakerfi Fjármálaeftirlitsins
• Stuðningur við högun gagnagrunna undir kerfi stofnunarinnar
• Stuðningur við úrvinnslu og framsetningu gagna
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða annað háskólanám
sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af vinnu við gagnagrunna
• Reynsla af Microsoft SQL gagnagrunnslausnum kostur
(t.d. MSSQL, MDS, SSIS og Power BI)
• Þekking og reynsla af XML eða XBRL kostur
• Jákvæðni, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
• Áhugi á að vinna í Agile vinnukerfi
GAGNAGRUNNS
SÉRFRÆÐINGUR
Við leitum að
metnaðarfullum
sérfræðingi í
þróunarteymið okkar
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND
Umsjón með starfinu hafa Bjarni
Þór Gíslason upplýsingatæknistjóri
(bjarnithor@fme.is) og Árni Ragnar
Stefánsson mannauðsstjóri
(arni@fme.is).
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir
um að sækja um starfið á heimasíðu
Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á
www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg
ferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu
rökstudd.
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 1 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
4
-2
D
C
4
1
F
8
4
-2
C
8
8
1
F
8
4
-2
B
4
C
1
F
8
4
-2
A
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K