Fréttablaðið - 21.04.2018, Síða 46

Fréttablaðið - 21.04.2018, Síða 46
Starfsmaður í eldhús - ráðskona Múlabær, dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja, óskar eftir að ráða starfsmann í eldhús - ráðskonu í 70-100 % starf. Múlabær er með 60 dagþjálfunarpláss. Opið er frá kl 8:00- 16:00 alla virka daga. Boðið er upp á hjúkrunarþjónustu, æfingaaðstöðu, vinnustofu, fjölbreytt félagsstarf og aðstoð við bað. Lögð er áhersla á að bæta lífsgæði fólks og hugað er að líkamlegum, andlegum og félagslegum þáttum. Múlabær býður upp á frábæra aðstöðu í nýju húsnæði. Í Múlabæ er móttökueldhús. Boðið er upp á morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu. Undir helstu verkefni - ábyrgð á eldhúsi, m.a. matseðill og þrif - ábyrgð á pöntunum og samskipti við byrgja Reynsla og hæfni: - menntun á sviði matreiðslu er kostur en ekki nauðsyn - reynsla af vinnu í eldhúsi á stofnun eða í fyrirtæki er æskileg - skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð - góðir samskipta- og samstarfshæfileikar Ráðning frá 15.5.2018 eða eftir samkomulagi. Vinsamlegast sendið umsóknir og ferilskrá til Múlabæjar, Bt. Þórunnar Bjarneyjar Garðarsdóttur, Síðumúla 32, 108 Reykjavík eða sendið á netfangið thorunn.mulabaer@internet.is Umsóknarfrestur er til 26.04.2018 Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi Múlabær, dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja, óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing/nema í sumarafleysingar með möguleika á áframhaldandi starfi. Múlabær er með 60 dagþjálfunarpláss. Opið er frá kl 8:00- 16:00 alla virka daga. Boðið er upp á hjúkrunarþjónustu, æfingaaðstöðu, vinnustofu, fjölbreytt félagsstarf og aðstoð við bað. Lögð er áhersla á að bæta lífsgæði fólks og hugað er að líkamlegum, andlegum og félagslegum þáttum. Helstu verkefni: - fjölskylduhjúkrun - greina hjúkrunarþarfir og framfylgja meðferð - samvinna við heilbrigðisstofnanir og þjónustuaðila Reynsla og hæfni: - íslenskt hjúkrunarleyfi - frumkvæði og sjálfstæði í vinnu - góðir samskipta og samstarfshæfileikar - reynsla og áhugi á að starfa með öldruðum Ráðning frá 1.6.2018 eða eftir samkomulagi. Vinsamlegast sendið umsóknir og ferilskrá til Múlabæjar, Bt. Þórunnar Bjarneyjar Garðarsdóttur, Síðumúla 32, 108 Reykjavík eða sendið á netfangið thorunn.mulabaer@internet.is Umsóknarfrestur er til 26.04.2018 Yfirmaður lausnaþjónustu Upplýsingatæknideild Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Upplýsingatæknideild Reykjavíkur auglýsir laust starf yfirmanns lausnaþjónustu hjá deildinni. Upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar rekur eitt stærsta tölvunet landsins með hartnær 10.000 útstöðvum fyrir um 25.000 notendur. Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni sem felast m.a. í innleiðingu skýjalausna og annarra nýjunga á sviði upplýsingatækni til þess að nútímavæða tæknilega innviði og auka skilvirkni og bæta þjónustu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Arnar Þór Sigurðarson deildarstjóri upplýsingatæknideildar, í síma 411 1111 eða í gegnum tölvupóstfangið arnar.thor.sigurdarson@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til 7. maí nk. Umsóknir ásamt fylgiskjölum skulu berast í gegnum vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is Helstu verkefni: • Stjórnun teymis kerfisstjóra og sérfræðinga sem sinna kerfisrekstri, þróun, viðhaldi og þjónustu við þau kerfi sem eru í rekstri fyrir Reykjavíkurborg. • Stefnumótun, umbótavinna og yfirumsjón með þróun kerfa og verkferla. • Tryggja hnökralausan rekstur kerfismiðju og þróun og viðhald innviða kerfismiðju. • Þróun á nýtingu og notkun skýjalausna. • Verkefnastjórnun stærri upplýsingatækniverkefna. • Árangursstjórnun. • Forysta og liðstjórnun. • Samskipti við þjónustubirgja og búnaðarbirgja. • Öryggismál (Cyber Security). Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólagráða á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi. • Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla á sviði upplýsingatækni ásamt lausnamiðaðri stjórnun. • Reynsla af tæknilegri áætlunargerð og greiningu ferla. • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. • Lipurð og færni í samskiptum. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og á ensku. Merki ráðuneytanna í 4 litum fyrir dagblaðaprentun Starf sérfræðings á skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar Auglýst er laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018. Upplýsingatæknisvið Fjármálaeftirlitsins sér um þróun eftirlitshugbúnaðar og rekstur tölvukerfa, ásamt því að aðstoða starfsfólk og eftirlitsskylda aðila við notkun kerfanna. Samstarf er við bæði innlendar og erlendar eftirlitsstofnanir um ýmis verkefni. Við leitum nú að gagnagrunnssérfræðingi í þróunarteymið okkar. Í boði eru spennandi verkefni í lifandi umhverfi fyrir kraftmikinn og drífandi einstakling sem hefur metnað til að stuðla að skilvirkni í nýtingu gagna, vandaðri gagnahögun og upplýsingaöryggi. Starfssvið • Verkefni sem tengjast þróun gagnagrunna eftirlitsins ásamt daglegum rekstri þeirra • Þróun á gagnamódelum, gæðaprófum og skemum • Verkefni tengd uppfærslum, vöktun og auknum afköstum gagnagrunna • Þróun á vöruhúsi gagna og stoðgögnum (e. Masterdata) • Þátttaka í þróun á gagnaskilakerfi Fjármálaeftirlitsins • Stuðningur við högun gagnagrunna undir kerfi stofnunarinnar • Stuðningur við úrvinnslu og framsetningu gagna Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða annað háskólanám sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af vinnu við gagnagrunna • Reynsla af Microsoft SQL gagnagrunnslausnum kostur (t.d. MSSQL, MDS, SSIS og Power BI) • Þekking og reynsla af XML eða XBRL kostur • Jákvæðni, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð • Áhugi á að vinna í Agile vinnukerfi GAGNAGRUNNS SÉRFRÆÐINGUR Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi í þróunarteymið okkar FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND Umsjón með starfinu hafa Bjarni Þór Gíslason upplýsingatæknistjóri (bjarnithor@fme.is) og Árni Ragnar Stefánsson mannauðsstjóri (arni@fme.is). Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á www.starfatorg.is. Umsóknarfrestur er til og með 7. maí nk. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. 10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 1 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 2 1 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 0 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 1 K _ N Y .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 8 4 -2 D C 4 1 F 8 4 -2 C 8 8 1 F 8 4 -2 B 4 C 1 F 8 4 -2 A 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.