Fréttablaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 24
Um helgina, af hverju ekki að …
LESA
Ráðuneyti
æðstu
hamingju
eftir hina
indversku
Arundhati
Roy, höf-
und verð-
launa- og
metsölu-
bókar-
innar Guð
hins
smáa.
Bókin fjallar um fólk á jaðri
samfélagsins í Indlandi, elt og
útskúfað.
VIRKJA
GRÆNA
FINGUR
Þeir sem vilja
rækta eigið
grænmeti ættu
að fara að skipu-
leggja ræktun-
ina, hvort sem
hún fer fram í
pottum í stofu,
pokum á svölum
eða matjurta-
görðum. Nú er
tíminn til að láta
kartöflur spíra og
setja niður fræ. Pawel Bartoszek.
Sigríður Soffía Níelsdóttir dansari og Helgi Már Kristinsson myndlistarmaður eiga að baki farsælt samstarf. Helgi Már hefur séð um leikmyndir
á nokkrum dansuppfærslum Sig
ríðar Soffíu. Í samstarfi þeirra fyrir
sýninguna FUBAR kviknaði hug
myndin um að fanga eðli hreyfinga
dansarans og í dag er sýningin Ham
skiptin – augnablikið vs. varanleiki
opnuð í Listamönnum Galleríi.
Sýningin samanstendur af teikn
ingum og málverkum eftir Helga
Má og ljósmyndum eftir Marinó
Thorlacius. Sigríður Soffía á ríkan
þátt í verkunum, í hugmyndavinnu
en líka sem verkfæri og viðfang, í
nokkrum verkanna þrykkir hún
nefnilega með tám eða táskóm á
striga og pappír.
„Þegar þessi hugmynd kviknaði
höfðum við verið að grúska í því
hvernig maður skrifar niður dans.
Þetta eru tákn sem ég hef aldrei
getað nýtt mér þegar ég sem dans
verk. Þau eru mikil myndlist en
óskiljanleg, ég nýti mér aðrar leiðir
þegar ég skrifa mín dansverk,“ segir
Sigríður Soffía.
„Í raun og veru ætluðum við í
fyrstu að fara út í hálfgert vísinda
verkefni. En byrjuðum á því að gera
þrykk. Sigríður Soffía gerði pírúetta
og við stúderuðum farið sem hún
skildi eftir sig. Teikninguna á gólf
fletinum,“ segir Helgi Már.
„Þú getur ekki fangað stökk á
striga. En þú getur hins vegar gefið
vísbendingu um hreyfinguna sem
hefur átt sér stað,“ segir Sigríður
Soffía. „Ég er samtímadansari en
Helgi Már ýtti mér í klassískan ball
ett í þessu verkefni. Klassískur ball
ett snýst enda um að fanga hreina
línu,“ segir hún.
„Ég var treg til í fyrstu. En við byrj
uðum á að skoða pírúetta og fanga
eðli þeirrar einangruðu hreyfingar,
ég gerði það bæði á tánum og í tá
skóm. Og það er gaman að sjá mun
inn. Í kjölfarið fórum við að grúska
í sögu ballettsins,“ segir Sigríður
Soffía.
„Hún er mikil og merkileg, saga
Önnu Pavlovu ballettdansara. Og
ekki síður dansverkið hennar um
hinn deyjandi svan. Goðsögur um
konur í svansham og ballettdansara
sem túlka svani í dansi eiga margt
sammerkt. Að dansinum loknum
fella þær haminn og við tekur
harmur eins og ævisögur frægra
ballettdansara gefa til kynna,“ segir
Helgi Már um þjáningu og metnað
dansarans sem fórnar sér oft fyrir
augnablikið.
„Okkur fannst vísun í Önnu
Pavlovu óhjákvæmileg. Helgi fann
texta eftir Pavlovu um dansinn, við
gátum speglað okkar hugsun í þeim
texta,“ segir Sigríður Soffía.
„Við spurðum okkur: Hver er
svanur Siggu? Það kom fljótlega í ljós
að hennar svanur er flugeldur. Tvö
verka á sýningunni fjalla um þetta,
annars vegar er verkið Deyjandi
svanur sem er dansað og þrykkt á
táskóm og Flugeldurinn sem Sigga
dansar á tánum. Markmiðið var að
ná hennar túlkun á striga. Verkin eru
einlit því fókusinn er á hreyfinguna
og eðli hennar,“ segir Helgi Már.
Hvernig gekk samstarfið?
„Það vaknaði í mér gamall ballett
draugur. Fullkomnunaráráttan tók
yfir og við vorum um tíma ósam
mála um suma hluti,“ segir Sigríður
Soffía. „Ef pírúettinn er ekki full
kominn þá sést það á teikningunni.
Helga fannst ef til vill teikning af
pírúett falleg en ég sá bara ófull
kominn pírúett. Sönnun þess að ég
hefði ekki gert hann fullkomlega. Ég
fór því stundum í vörn og það var
áskorun að takast á við fullkomn
unaráráttuna,“ segir hún.
„Ég skil að þetta hafi verið áskor
un. Það er líka líkamlega erfitt að
dansa á táskóm. Myndlistin snýst
oftast ekki um augnablikið heldur
varanleika. Á meðan ballettsýning
gengur yfir og verður að minningu.“
kristjana@frettabladid.is
Fanga hreyfingar dansarans
Sigríður Soffía Níelsdóttir dansari og Helgi Már Kristinsson myndlistarmaður opna í dag sýninguna Hamskiptin
– augnablikið vs. varanleiki í Listamönnum Galleríi. Þau hafa gert tilraunir til að fanga eðli hreyfinga dansarans.
Anna Pavlova ballettdansari.
DANS OG SPRIKL
„Ég ætla að hjálpa konunni
minni sem býður börnum,
foreldrum og vinum í dans
og sprikl í Kramhúsinu,“
segir Pawel Bartoszek
sem er frekar þekktur fyrir
stjórnmálastarf en dansfimi
sína. Viðburðurinn er
haldinn í tengslum við
Barnamenningarhátíð
í Reykjavík í dag og
hefst klukkan 14.00.
Sigríður Soffía Níelsdóttir og Helgi Már
Kristinsson við nokkrar ljósmyndir
sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Áhugakona um
fugla
Anna Pavlova (1881-1931) var
mikil áhugakona um fugla. Hún
átti til dæmis flamingóa og svan
á tjörn við heimili sitt. Hún lét
Mikhail Fokine skrifa fyrir sig verk
um hreyfingar svansins, fjögurra
mínútna sóló sem heitir Deyjandi
svanurinn. Anna Pavlova sýndi
verkið um fjögur þúsund sinnum.
2 1 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
4
-0
6
4
4
1
F
8
4
-0
5
0
8
1
F
8
4
-0
3
C
C
1
F
8
4
-0
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K