Fréttablaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 75
ÉG VIL NJÓTA ÞESS,
FERÐAST OG LIFA ÞVÍ. ÞAÐ
ER NÚNA ORÐINN RAUN-
VERULEGUR MÖGULEIKI.
EF ÉG GAT ÞAÐ, ÞÁ GETA
AÐRIR ÞAÐ.
Alexandra
þessu til þess að ég gæti hreyft
mig. Kaldhæðnislegt, þar sem ég er
íþróttafræðingur,“ segir Alexandra.
„Ég man eftir því þegar ég fann til
gleði. Fyrsta sinn í langan tíma. Það
var eftir að mér hafði tekist að fara
út að hlaupa. Ég varð hrædd, því ég
vissi að þessi tilfinning myndi ekki
vara lengi. En svo urðu góðu stund-
irnar fleiri. Góðu dagarnir fleiri. Ég
var búin að gleyma því hvernig það
er að líða vel. Auðvitað koma alltaf
slæmir dagar líka, það eiga þá allir.
Stundum á ég slæma daga. Þá er allt
í lagi að vera á náttfötunum.“
Opnaði sig á Snapchat
Alexandra og kærasti hennar
ákváðu að flytja heim. Þau pökkuðu
niður búslóðinni. „Þá upplifðum
við skelfilegan hlut. Einstaklingur
sem bjó í húsinu framdi sjálfsmorð.
Stökk niður. Hann gerði það sem ég
hafði hugsað um að gera. Þetta var
mikið áfall. En um leið þá opnaðist
eitthvað fyrir mér,“ segir Alexandra
sem ákvað í kjölfarið að ræða opin-
berlega um líðan sína.
„Ég valdi að ræða um líðan mína
á opnum reikningi á Snapchat. Það
var nokkuð sem hentaði mér. Það
var ekki auðvelt fyrir aðstandendur
og vini, en nauðsynlegt fyrir mig,“
segir Alexandra.
„Þarna fékk ég áfall. Ég vissi ekki
að þetta væri svona slæmt,“ segir
Margrét.
„Já, það er satt. Ég fékk skilaboð
frá mömmu og nánustu vinum
og aðstandendum. Ég hélt að allir
vissu. En þannig var það ekki.
Sumir höfðu ekki tekið eftir neinu,
til dæmis vinur minn sem hafði
unnið mikið með þunglyndum. Ég
var alltaf að klára, gera, græja. Og
var alltaf glaðleg. Það er örugglega
virkilega erfitt að sjá þetta,“ segir
Alexandra.
Fyrsta skrefið í átt að bata
„En um leið og maður byrjar að
opna sig og tala um þetta, þá byrja
sárin að gróa. Það er allt öðruvísi að
ræða þetta upphátt við annað fólk
en að eiga þetta samtal inni í höfð-
inu á sér. Það skiptir mjög miklu
máli að segja frá. Og að segja frá er
fyrsta skrefið í átt að bata. Þegar
maður upplifir kvíða og þunglyndi
þá finnst manni maður vera einn.
Fólk í sambandi, hjónabandi, það
getur einangrað sig, verið einmana
í sambandinu af því að það opnar
ekki á þetta. Það hefur komið mér á
óvart eftir að ég ákvað að ræða mál
mín opinberlega hversu margir
hafa haft samband og sagt mér að
þeir hafi fengið sjálfsvígshugsanir,“
segir Alexandra.
„Það er einmitt þess vegna sem
ég ákvað að ganga til liðs við átak
Rauða krossins, Útmeða. Og láta
fólk vita að það er hægt að fá ráð-
gjöf og ræða málin, bæði á netinu
og með því að hringja í 1717. Það
þarf ekkert að opna alveg. Það er í
lagi að byrja á því að opna smá, eftir
því sem maður er tilbúinn að takast
á við,“ segir Alexandra.
Kvíðinn rænir
Alexandra segist upplifa að hún
sé loksins að lifa lífinu lifandi eftir
að hún fór að takast á við kvíðann,
þunglyndið og rót þess. Eineltið
sem hún varð fyrir í æsku. „Ég er
loksins lifandi, kvíðinn rænir mann
draumum. Maður gerir ekki í stað
þess að gera. Ég var berskjölduð,
það þurfti lítið til þess að finnast
mér vera hafnað. Að ég væri ekki
velkomin. Stundum gat ég ekki gert
eðlilega hluti, farið í göngutúr, bíó
eða út í búð. Eftir að ég fór að takast
á við rót vandans hef ég upplifað
svo góða hluti. Ég fór í ferðalag til
Kúbu með kærastanum og þar var
ég í fyrsta sinn áhyggjulaus. Ekk-
ert að ofhugsa hlutina heldur bara
njóta þess að vera til og horfa á fal-
legar strendur. Ég bara var þarna, ég
hélt ég myndi aldrei geta það,“ segir
hún og hlær. „Og nú er ég á leiðinni
til Sviss um helgina. Lífið er gott,“
segir hún.
„Ég vil að hún njóti lífsins. Við
höfum báðar lært af þessari glímu,“
segir Margrét móðir hennar.
„Ég er enn meðvitaðri um hvað
lífið er dýrmætt eftir að mamma
veiktist og fór að missa máttinn,“
segir Alexandra. „Ég vil njóta þess,
ferðast og lifa því. Það er núna orð-
inn raunverulegur möguleiki. Ef ég
gat það, þá geta aðrir það,“ segir
Alexandra.
„Ég fór á lyf. En það sem hjálpar
mér mest er að hreyfa mig, halda
tengingu við fjölskyldu og vini.
Vera meðvituð um það hvernig mér
líður. Stunda núvitund. Ég kom mér
bara virkilega á óvart.“
Hitti einn gerandann
Brot úr sögu Alexöndru var sýnt á
styrktartónleikum í tengslum við
fræðsluherferð Rauða krossins
Útmeða. „Ég brotnaði algjörlega
saman á þessum tónleikum. Ég er
enn að vinna úr þessu og mér fannst
þetta erfitt. En á sama tíma fannst
mér ég hafa unnið sigur. Ég komst
í gegnum þetta. Ég hitti líka einn
gerandann á tónleikunum. Það var
erfitt. Ég bjóst ekkert endilega við
því að hún myndi tengja við sögu
mína. Eða finnast hún ábyrg. En
hún gerði það. Sendi mér skilaboð
og vill hitta mig.“
„Alexandra er ennþá glaða barn-
ið sem hún var. Það er gaman að
sjá það aftur. Ég er viss um að þetta
fer allt vel,“ segir Margrét, „en það
kostaði mikla vinnu og var oft erf-
itt. Og það er gæfa að það fór vel.“
Hjálpar kvíðnum krökkum
„Mér finnst gott að gefa af mér. Ég
er núna að vinna í fyrirtækinu Ekki
gefast upp. Þar þjálfa ég krakka
og unglinga sem glíma við kvíða
og þunglyndi. Hreyfingin er svo
mikið lykilatriði, við ætlum að
bjóða upp á sumarnámskeið í maí
en þessi þjálfun hefur skilað góðum
árangri,“ segir Alexandra.
„Ég veit að glíman hefði verið
léttari ef ég hefði getað hringt eftir
ráðgjöf. Ég hefði opnað mig fyrr,“
segir Alexandra og hvetur fólk, sem
telur sig glíma við kvíða og þung-
lyndi, til að láta það ekki bíða.
„Núna, er fínn tími,“ segir hún með
bros á vör.
BRÚÐKAUPSBLAÐ GLAMOUR
Allt sem þú þarft að vita um brúðkaup!
Lestu blaðið FRÍTT
á GLAMOUR.IS
5
Topp
VÖRUR
fyrir
brúðkaupið
Augun, húðin,
hárið, varirnar,
líkaminn
Hefðirnar
afhverju
erum við með
brúðarvönd
og hver er
tilgangurinn
með slörinu?
Hildur Erla
Gísladóttir
ljósmyndari
hefur myndað ófá
brúðkaup og er góð
í að fanga réttu
augnablikin. Hún
lumar á góðum
ráðum fyrir brúðar
myndatökuna.
100
BLAÐSÍÐUR
um stóra daginn,
veisluna, fötin, förðunina,
hárið, skipulagið, skreyting-
arnar og brúðkaupsferðina.
Vefb
lað
↣
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 2 1 . A P R Í L 2 0 1 8
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
3
-D
9
D
4
1
F
8
3
-D
8
9
8
1
F
8
3
-D
7
5
C
1
F
8
3
-D
6
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K