Fréttablaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 32
Ég er nú komin sex mánuði á leið með mitt fyrsta barn en lenti í því í fyrra að missa
fóstur,“ segir Ingunn Huld sem
vann sig út úr erfiðri lífsreynslu
með því að semja lög og texta um
fósturmissi og meðgöngu.
Afraksturinn, ásamt öðrum
lögum sem hún hefur samið í
gegnum námið, ætlar Ingunn að
frumflytja á útskriftartónleikum úr
Listaháskólanum í dag.
„Maður er kannski ekki tilbúinn
að tala um fósturmissi við hvern
sem er, sérstaklega þegar maður
er enn að vinna úr því, en ég vann
úr erfiðum tilfinningum á þennan
hátt. Listsköpun er góður farvegur
til að fá útrás fyrir tilfinningar og
þess vegna tel ég dýrmætt fyrir
börn að fá tækifæri til tónlistar
iðkunar. Maður nær nefnilega ekki
alltaf að koma öllu í orð, en þarf þó
að koma því frá sér, og í tónlist, sem
og íþróttum og annarri list, er oftar
en ekki hægt að veita innibyrgðum
tilfinningum farveg,“ segir Ingunn
sem er grunnskólakennari að
mennt og kenndi tónmennt og
leiklist í sjö ár í Kelduskóla og
Vesturbæjarskóla áður en hún
söðlaði um og fór í meistaranám í
Listaháskóla Íslands.
„Ég skráði mig í alþjóðlegt
meistaranám sem kallast á ensku
NAIP en heitir á íslensku Sköpun,
miðlun og frumkvöðlastarf. Mér
þótti áhugavert að fá rými til að
leggja áherslu á það sem ég vil í
tónlistinni en líka að læra verk
efnastjórnun og fleiri hagnýt
námskeið sem nýtast munu vel í
framtíðinni.“
Ingunn er sömuleiðis útlærð
í djasssöng frá FÍH og kennir
börnum á þverflautu.
„Ég byrjaði í þverflautunámi
þegar ég var níu ára. Það voru
forréttindi að alast upp í Mosfells
bænum því þar var í hvívetna hlúð
að listsköpun barna og unglinga.
Þannig var ég bæði í skólahljóm
sveit Mosfellsbæjar, barnakór
Varmár skóla og í leiklistarstarfi,“
segir Ingunn sem ólst upp á
hefðbundnu heimili þar sem til
voru hljómplötur með Whitney
Houston og Ingunn hélt upp á.
„Við systkinin lærðum öll á
hljóðfæri og mamma og pabbi
kunna bæði á gítar þó þau fari
frekar leynt með það. Þó var okkur
krökkunum ekki ýtt út í tónlistar
nám heldur spratt það af áhuga
okkar og löngun til að læra á hljóð
færi. Það er hins vegar dýrmætt
að finna hvatningu að heiman og
þegar foreldrar manns njóta þess
að hlusta á mann spila og æfa sig,“
segir Ingunn.
Reynsluheimur kvenna
Lokaverkefni Ingunnar Huldar við
Listaháskólann tekur á tilfinninga
legri úrvinnslu söngvaskálda við
lagasmíðar og þá sér í lagi lögum
kvenna sem fjalla um meðgöngu
og fósturmissi.
„Lögin sem flutt verða á tónleik
unum taka á reynsluheimi kvenna,
allt frá Maríu Magdalenu (Woman)
til fósturmissis á 21. öldinni (In
the hands of strangers), með
göngu (Baby before you enter), lífi
nýgiftrar eiginkonu (Candlelight
& Porridge) og umbreytingartím
anum þegar börnin fara að heiman
(A bathroom gained), en hér eru
upptalin fimm lög af fleirum,“
útskýrir Ingunn sem samdi öll
Ingunn Huld samdi textana við lögin sem hún flytur í dag á ensku. „Þegar maður semur tónlist sem er svo mikið nærri
hjarta manns myndast hæfileg fjarlægð þegar hún er ekki á móðurmáli hans.“ MYND/EYÞÓR
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
lögin nema eitt á meðan hún var í
meistaranáminu.
„Í tengslum við lokaritgerðina
hef ég skoðað hvað aðrir tónlistar
menn hafa gert í sambandi við
úrvinnslu tilfinninga og hvaða
lög það eru sem konur hafa samið
um meðgöngu og fósturlát. Þar
má nefna lagið „Heartbeat“ sem
Beyoncé samdi um fósturmissi
en eiginmaður hennar Jay Z gerði
slíkt hið sama í laginu „Glory“, sem
er óður til konu hans og dóttur
en kemur einnig inn á sorgina í
tengslum við fyrri fósturmissi. Þá
samdi Ólöf Arnalds lagið „Inni
undir skinni“ um meðgöngu og
Lily Allen og Tori Amos sömdu
báðar lög um fósturlát,“ upplýsir
Ingunn.
Hún segir lag Beyoncé ekki hafa
komið út á plötu en að það komi
fyrir í heimildarmyndinni Life is
but a dream.
„Í myndinni talar Beyoncé um að
Heartbeat hafi verið hennar með
ferðarúrræði til að vinna úr erfiðri
lífsreynslu. Allt er þetta auðvitað
mjög persónuleg tónlist. Sumar
lagasmíðar eru enda þess eðlis að
maður semur þær ekki til útgáfu
heldur vegna þess að maður þarf
að vinna úr tilfinningum og það
er dýrmætt fyrir mann. Einhver
lögin eru því tregafull en önnur eru
ástarlög eða lög um hamingju og
mikla eftirvæntingu.“
Leyndardómsfullt verk
Ingunn hefur mestmegnis samið
þjóðlagapopp og ballöður. Árið
2015 gaf hún út plötuna Fjúk með
ellefu íslenskum lagasmíðum.
„Lögin sem ég flyt í dag eru
samin á ensku því mér finnst
áhugavert að taka eitt tungumál
fyrir í einu. Þegar maður semur
tónlist sem er svo mikið nálægt
hjarta manns myndast líka hæfileg
fjarlægð þegar hún er ekki á
móðurmáli manns,“ segir Ingunn
og er full tilhlökkunar.
Með Ingunni verður valinn
maður í hverju rúmi. Sjálf sér hún
um söng, gítar, píanó og þver
flautuleik en Árni Magnússon spil
ar á rafbassa, Páll Cecil Sævarsson
á trommur og hljóðgervil, Sigurður
Halldórsson á selló, Héðinn Ziska
Davidsen á gítar og Anna Bergljót
Böðvarsdóttir syngur bakraddir.
„Í dag verða ákveðin kaflaskil og
eftir langan og strangan undir
búning verður gaman að flytja
lögin frammi fyrir áheyrendum. Á
eftir mun ég svo örugglega taka því
rólega og gera eitthvað skemmti
legt með fjölskyldu og vinum, en
svo er bara að vinda sér í að klára
ritgerðina,“ segir hún og hlær.
Önnur áhugamál Ingunnar eru
útivist, hannyrðir, ljóðagrúsk og
bragfræði.
„Ég hef yndi af því að kenna
börnum og langar að gera það
áfram. Mér þykir svo áhugavert
að gefa þeim tækifæri til að tjá
sig í gegnum tónlist. Ég stefni því
á að klára skólann, njóta þess að
verða móðir og halda svo áfram að
kenna, semja og gefa út tónlist.“
Á tónleikunum í dag verður
skemmtilegt leyninúmer sem
Ingunn vill ekki ljóstra upp.
„Segjum bara að áheyrendur
fái heyrt óvænt verk fyrir rödd og
óhefðbundið hljóðfæri,“ segir hún
leyndardómsfull og brosir.
Tónleikar Ingunnar Huldar verða í
Safnahúsinu, Hverfisgötu 15, í dag,
laugardaginn 21. apríl, klukkan 15.
Allir eru hjartanlega velkomnir og
aðgangur er ókeypis.
Maður er kannski
ekki tilbúinn að
tala um fósturmissi við
hvern sem er, en ég vann
úr erfiðum tilfinningum á
þennan hátt.
Ingunn Huld Sævarsdóttir
Markaðurinn fylgir
Fréttablaðinu á miðvikudögum
» Nýjar viðskiptafréttir daglega á
frettabladid.is/markadurinn
» Þú getur einnig nálgast Markaðinn
í Fréttablaðs appinu
Vettvangur
viðskiptafrétta
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
3
-C
6
1
4
1
F
8
3
-C
4
D
8
1
F
8
3
-C
3
9
C
1
F
8
3
-C
2
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K