Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 22

Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 22
Tindastóll - KR 54-75 Tindastóll: S. Arnar Björnsson 15, Pétur Rúnar Birgisson 14, Chris Davenport 9/9 frá- köst, Axel Kárason 5, Antonio Hester 4/10 fráköst, Friðrik Þór Stefánsson 3, Hannes Ingi Másson 2, Björgvin Ríkharðsson 2. KR: Jón Arnór Stefánsson 13, Brynjar Þór Björnsson 13, Kristófer Acox 10/9 fráköst, Björn Kristjánsson 10, Pavel Ermolinskij 9/11 fráköst/9 stoðs., Kendall Pollard 8 Marcus Walker 5, Helgi Már Magnússon 4, Darri Hilmarsson 3. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir KR. Nýjast Domino’s-deild karla, úrslit Fótbolti Hamburger Sport-Verein, HSV, berst fyrir lífi sínu í Bundes- liga, efstu deild Þýskalands, þessa dagana en liðið þarf á kraftaverki að halda á lokametrum deildarinnar. Á hverjum heimaleik hangir það yfir leikmönnum að þeir séu að leika fyrir félag sem hefur aldrei fallið úr deild þeirra bestu. Stoltir stuðn- ingsmenn liðsins vitna í það afrek þar sem árangurinn er lítill innan sem utan vallar undanfarin ár en að sama skapi leggst þetta þungt á leikmenn liðsins í fallbaráttunni. Stærsti minnisvarðinn er klukka í horni Volksparkstadion, heima- vallar liðsins, þar sem talið er upp á sekúndu hversu lengi liðið hefur dvalið í deild þeirra bestu. Sama klukka sést einnig framan á liðsrútu liðsins til að minna á forna frægð. Er það heiður sem ekkert annað lið í Þýskalandi getur státað af, ekki einu sinni stórveldin tvö. Dortmund féll niður úr deild þeirra bestu árið 1972 og Bayern München var ekki eitt af stofnliðunum en Bæjarar hafa verið í deildinni frá því þeir komu inn í hana 1965, tveimur árum eftir stofnun hennar. Stutt gullöld HSV Bundesliga-deildin var stofnuð árið 1964 en hún tók við af Oberliga þar sem Hamburg hafði átt góðu gengi að fagna. Var það gert til að sameina eina sterka deild yfir allt Vestur- Þýskaland í stað þess að lið kepptu innan héraða og úrslitakeppni væri meðal bestu liða hvers landshluta. Með markahrókinn Uwe Seeler fremstan í flokki vann HSV norður- riðilinn fimmtán sinnum á sextán árum og þýska Oberliga-titilinn í fyrsta og eina sinn vorið 1960. Það tók HSV sextán ár í Bundes- liga að vinna fyrsta þýska meistara- titil sinn, árið 1979, en þá hófst stutt gullöld liðsins. Þrír meistara- titlar á fimm árum ásamt því að verða annað þýska liðið til að vinna Evrópukeppni meistaraliða vorið 1983. Bikarmeistaratitill vannst fjórum árum síðar, sá þriðji í sögu félagsins, en síðan þá hefur ekkert unnist. Slær klukkan loksins 12? Um helgina fer fram 31. umferð þýsku deildarinnar af 34 og þegar þetta er skrifað er Hamburg átta stigum frá liðunum í 15. og 16. sæti deildarinnar þegar fjórir leikir eru eftir. Tekur liðið á móti Freiburg í dag og allt annað en sigur þýðir að HSV er svo gott sem fallið úr efstu deild eftir 54 ára dvöl. Takist Freiburg og Mainz að ná þremur stigum um helgina verður munurinn orðinn ellefu stig þegar þrjár umferðir verða eftir og örlög þeirra ráðin. Spurningin er svo hvort félagið láti fjarlægja klukkuna ef HSV fellur úr deild þeirra bestu og veiti liðinu andrými til að byggja upp að nýju í stað þess að burðast með sögu félagsins á bakinu. kristinnpall@frettabladid.is Klukkan gæti slegið sitt síðasta slag Klukkan telur hversu lengi HSV hefur verið í efstu deild. NoRDicpHoToS/GeTTy Hamburger SV gæti fallið úr þýsku Bundes- liga-deildinni í dag en HSV er eini stofnaðilinn sem hefur aldrei fallið úr efstu deild Þýskalands. Spá Fréttablaðsins fyrir Pepsi-deild karla 2018 Ítarlegri grein má lesa á Fréttablaðið.is PePSi deildin 2018 1. ? 2. ? 3. ? 4. ? 5. ? 6. ? 7. Fjölnir 8. Grindavík 9. Víkingur R. 10. ÍBV 11. Fylkir 12. Keflavík Fréttablaðið spáir því að Fjölnir hafni í 7. sæti Pepsi-deildar karla. Síðasta tímabil var erfitt í Grafar- voginum og Fjölnismenn voru í fallbaráttu. Eftir tímabilið fór Ágúst Gylfason til Breiðabliks og Ólafur Páll Snorrason tók við Fjölni. Grafar- vogsliðið hefur gert góða hluti á félagaskiptamarkaðnum í vetur og góð stemning er í kringum Fjölni. Fjölnir hafnar í 7. sæti nýju andlitin Fylgstu með þessum Arnór breki Ásþórsson kom til Fjölnis frá Aftureldingu í vetur. Þessi efnilegi vinstri bakvörður spilaði mikið á undirbúningstímabilinu og gæti byrjað fyrsta leik. Almarr ormarsson KA Bergsveinn Ólafsson FH Valmir Berisha Aalesund Guðmundur K. Guðmundsson FH tölfræði frá síðasta sumri Þórir Guðjónsson hefur verið aðal- markaskorari Fjölnis undanfarin ár og er markahæsti leikmaður liðsins í efstu deild. Skoraði átta mörk í fyrra sem var hans besta sumar hvað marka- skorun varðar. Var iðinn við kolann í vetur og skoraði m.a. þrennu gegn Fylki í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. lykilmaðurinn í sumar Þórir Guðjónsson enkunnASPjAldið VöRNiN HHHHH ❘ SÓKNiN HHHHH ❘ ÞjálFARiNN HHHHH ❘ BReiDDiN HHHHH ❘ liðSSTyRKiNGiN HHHHH ❘ GenGið SÍðuStu Sex tÍmAbil 2017 10. sæti ❘ 2016 4. sæti ❘ 2015 6. sæti ❘ 2014 9. sæti ❘ 2013 1. sæti (B-deild) ❘ 2012 7. sæti (B-deild) ❘ 5 stig fékk Fjölnir á útivelli, fæst allra. 1 leik tapaði Fjölnir á heima- velli, bara Valur tapaði færri. Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Hvað er í matinn? Þú finnur uppskriftina á kronan.is/ uppskriftir 759 kr.stk. Chavroux geitaostur, 150 g K o rt er í 4 369 kr.stk. Jamie Oliver pestó, 190 g 299 kr.pk. Rana Tortellini, 250 g Fréttablaðið + Myndir frá ferli Arsene Wenger hjá Arsenal má sjá á pdf-útgáfu Fréttablaðsins eða í appinu. Wenger hættir Fótbolti Arsene Wenger lætur af störfum hjá Arsenal í sumar. Hann hefur stýrt Lundúnaliðinu með góðum árangri frá haustinu 1996. Arsenal hefur þrisvar sinnum orðið Englandsmeistari undir stjórn Wengers og unnið ensku bikar- keppnina sjö sinnum. – iþs 2 1 . A P r Í l 2 0 1 8 l A u G A r d A G u r22 S P o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð sport 2 1 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 8 3 -F 2 8 4 1 F 8 3 -F 1 4 8 1 F 8 3 -F 0 0 C 1 F 8 3 -E E D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.