Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 44

Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 44
 Starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Þingeyinga Menningarmiðstöð Þingeyinga auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Vilt þú leiða menningarstarf í Þingeyjarsýslu? Leitað er að kraftmiklum, metnaðarfullum einstaklingi, sem er vanur sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði í störfum og á auðvelt með samskipti við fólk. Starfssvið: Starfið felur í sér framkvæmdastjórn að því er varðar stefnumótun, þróun, rekstur og alla almenna starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar. • Rekstur og fjármálastjórn • Starfsmannamál • Uppbygging sýninga og viðburðahald • Samstarf við stjórn og aðra hagaðila • Samstarf við innlend og erlend söfn og samtök tengd starfinu Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólanám á menningarsögulegum grunni; safnfræði, sagnfræði, fornleifafræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi. • Þekking og reynsla af safnastarfi og/eða öðru menningarstarfi • Stjórnunarreynsla og/eða menntun í stjórnun. • Góðir samskiptahæfileikar • Góð kunnátta í íslensku bæði í riti og framsögn. Færni í ensku og norðurlandamálum. • Góð tölvukunnátta. Menningarmiðstöð Þingeyinga er sjálfseignarstofnun á vegum þingeyskra sveitarfélaga. Undir Menningar­ miðstöð Þingeyinga heyrir m.a. starfsemi byggðasafna, héraðskjala safns og ljósmyndasafns Þingeyinga. Einnig rekstur bókasafns Norðurþings. Á vegum stofnunarinnar eru fjórir sýningarstaðir og skrifstofur og heilsársstarfsemi er í Safnahúsinu á Húsavík. Menningarmiðstöðin er viðurkennt safn sem hlaut íslensku safnaverðlaunin árið 2012. Stofnunin tekur þátt í samstarfi safna og safnamanna innanlands og á alþjóðavísu. Launakjör eru í samræmi við kjarasamninga Launanefndar sveitarfélaga við aðildarfélög BHM. Nýr forstöðumaður þarf að geta tekið til starfa í ágúst nk. Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk. Umsóknir sendist í tölvupósti á: safnahus@husmus.is Upplýsingar um starfið veita: Árni Pétur Hilmarsson, formaður stjórnar Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, sími 866 3586, netfang arni@thingeyjarsveit.is og Sif Jóhannes­ dóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, sími 896 8218, netfang safnahus@husmus.is Gluggar og Garðhús hf. óskar eftir að ráða vana smiði eða starfsmenn sem eru vanir iðnframleiðslu í fullt starf við smíðar. Vinsamlega sendið inn umsókn á gluggar@solskalar.is fyrir 5. maí 2018 Vinsamlegast sækið um á www.strætó.is. Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2018. Helstu verkefni • Umsjón og ábyrgð á launabókhaldi • Upplýsingagjöf til starfsmanna vegna kjaramála • Ýmsar greiningar, samantektir og úrvinnsla á sviði kjaramála • Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila • Útreikningar á kjörum og réttindum starfsmanna skv. kjarasamningum • Almenn gjaldkerastörf, greiðsla reikninga og utanumhald. Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfi • Haldgóð reynsla af launabókhaldi, þekking og reynsla af H3 mannauðs- og launakerfi kostur • Mjög góð tölvufærni • Þekking á kjarasamningum og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð • Jákvæðni og samskiptafærni • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi Næsta stopp Strætó óskar eftir reynslumiklum launafulltrúa til starfa. Um er að ræða 80% starf sem launafulltrúi auk 20% starf gjaldkera. Laun og kjör eru samkvæmt kjarasamningi Strætó bs. og starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. er starf hjá Strætó Karlar jafnt sem konur er hvött til að sækja um starfið. kopavogur.is Kópavogsbær Kópavogsskóli - kennari í hönnun og smíði Við erum að leita að þér! Við í Kópavogsskóla erum að leita að lífsglöðum og áhugasömum kennara til að slást í okkar hóp til þátttöku í skemmtilegu skólastarfi. Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 360 nemendur og 70 starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn er heilsueflandi grunnskóli. Lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og ýmis þróunarverkefni eru í gangi. Í Kópavogsskóla er allir kennarar og nemendur í 5. – 10. bekk með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti. Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar. Ráðningarhlutfall og tími Hönnunar og smíðakennari, 100% staða, framtíðarstarf frá og með 1. ágúst 2018. Menntunar- og hæfniskröfur • Kennsluréttindi í grunnskóla • Góð hæfni í mannlegum samskiptum • Þekking og reynsla af smíðakennslu æskileg • Þekking og reynsla af kennslu í nýsköpun og hönnun æskileg • Mjög góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu • Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu á Uppeldi til ábyrgðar • Viðkomandi þurfa að vera sjálfstæðir og drífandi og áhugasamir fyrir þróunarstarfi Frekari upplýsingar Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að þróa hönnunar- og smíðakennslu og tengja hana rafrænni tækni og forritun. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði. Mjög viðamiklar upplýsingar um Kópavogsskóla og skólastarfið er að finna á www.kopavogsskoli.is. Einungis er hægt að sækja um starfið á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018. Upplýsingar gefa Guðmundur Ásmundsson skólastjóri eða Guðný Sigurjónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 441 3400. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið goa@kopavogur.is. Karlar jafnt sem konur er hvött til að sækja um starfið. 2 1 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 0 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 8 4 -1 A 0 4 1 F 8 4 -1 8 C 8 1 F 8 4 -1 7 8 C 1 F 8 4 -1 6 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.