Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 78
Árið er 2012. Jyoti Singh Pandey, 23 ára sjúkra-þjálfaranemi, er á leið heim með kærasta sínum, Awindra Pra-tap Pandey, eftir að
þau höfðu farið saman í bíó að horfa á
Ang Lee myndina Life of Pi í Delhi. Þau
stíga um borð í lítinn einkastrætó. Sex
karlmenn, bílstjórinn þar með talinn,
eru í bílnum.
Bíllinn keyrir ekki eftir sinni venju-
legu leið. Dyrunum er læst og hinir far-
þegarnir tala niður til þeirra. Awindra
lætur ekki bjóða sér áreitnina og slags-
mál brjótast út. Farþegarnir fimm rota
hann með járnstöng.
Næst ráðast þeir að Jyoti og yfir-
buga. Þeir draga hana aftast í bílinn,
lemja hana með járnstönginni og
nauðga henni. Síðar er þeim kastað út
úr bílnum.
Þrettán dögum síðar lætur Jyoti lífið
af sárum sínum. Einn gerandi lætur
lífið meðan á réttarhöldum stendur,
fjórir eru dæmdir til hengingar og sá
síðasti, sem var undir lögaldri, fær
þriggja ára dóm.
Árið er 2018. Það er 17. janúar. Asifa
Bano, átta ára stelpa, finnst látin úti í
skógi í Kathua í Jammu- og Kasmír-
ríki. Asifa var úr hirðingjasamfélagi,
múslimi. Hún hafði farið að gefa hest-
unum en kom ekki aftur heim. Miklir
áverkar eru á líkinu.
Á næstu vikum leiðir rannsókn lög-
reglu í ljós að átta karlmenn, meðal
annars fjórir lögreglumenn, höfðu
byrlað henni ólyfjan, flutt í yfirgefið
musteri og þar nauðgað henni og
misþyrmt í viku áður en þeir grýttu
hana til dauða. Réttarhöld yfir átta
meintum gerendum hófust í vikunni.
Nærri helmingur þolenda börn
Þrátt fyrir að öflug mótmæli hafi brot-
ist út í kjölfar hópnauðgunarinnar og
morðsins 2012 og þrátt fyrir að lög-
gjöf, ætlað að vernda konur, hafi verið
innleidd eftir árásina, eru glæpir sem
þessir enn tíðir á Indlandi.
Samkvæmt rannsókn Human
Rights Watch sem birt var fyrir ára-
mót lenda konur og stúlkur úr lægri
stéttum hins indverska stéttakerfis
iðulega í því að hástéttafólk og lög-
reglumenn þrýsti á þær að kæra ekki.
Þolendur fá jafnframt lítinn stuðning.
Í viðtali við The Guardian sagði
Vrinda Grover, hæstaréttarlög-
fræðingur sem sérhæfir sig í mála-
flokknum, að þrátt fyrir að baráttan
væri afar erfið gæfust konur ekki upp.
Sakfellingum hefði fjölgað um fjörutíu
prósent frá 2012 til 2015.
En tölfræðin er, eins og víða, ófull-
komin. Samkvæmt rannsókn Ramal-
ingam Shanmugam frá árinu 2013
tilkynna þolendur um óvenju fáar
nauðganir til lögreglu. Þótti rann-
sakandanum ljóst að það væri vegna
kúgunarmenningar.
Samkvæmt rannsókn félagsfræð-
ingsins Aashish Gupta sem The Hindu
birti árið 2014 er talið að einungis sé
tilkynnt um fimm af hverjum hundrað
nauðgunum. Þá eru rúmlega fjörutíu
prósent fórnarlamba sem tilkynnt er
um stelpur undir lögaldri.
Það eru hins vegar hópnauðganir
sem vekja mesta athygli. Tíðni þeirra
er há og er þá einna helst herjað á
minnihlutahópa og lægri stéttir. Talað
hefur verið um að nauðgunarkrísa ríki
á Indlandi allt frá árásinni á Jyoti Singh
Pandey, jafnvel lengur, og sú krísa virð-
ist ekki ætla að taka enda.
Fjölmiðlar þreyttir
Hið hrottalega mál þessarar átta ára
gömlu hirðingjastúlku hefur leitt af
sér nýja öldu fjöldamótmæla meðal
Indverja, bæði í heimalandinu og utan
landsteinanna.
BBC fjallaði um að málið hefði fyrst
vakið þjóðarathygli nú í apríl, mán-
uðum eftir líkfundinn. Vikum eftir
að samtök þjóðernissinnaðra hindúa
mótmæltu handtöku grunaðra, sem
sjálfir eru hindúar. Þá benti miðillinn
á að mótmælin nú væru mun mildari,
hófstilltari en mótmælin árið 2012.
Blaðamaður BBC útskýrir þessi
seinu viðbrögð á þann hátt að lítið sé
fjallað um Kasmír án þess að verið sé
að fjalla um þjóðaröryggismál. Jafnvel
gæti það verið hluti ástæðunnar að
ríkisfjölmiðlar, sem hindúar stýra, vilji
síður fjalla um ofbeldisglæpi hindúa.
Sameer Yasir, sjálfstæður blaða-
maður í Srinagar, sumarhöfuðborg
Jammu og Kasmír, sagði við BBC að
í ljósi tíðra hópnauðgana og annarra
hrottalegra ofbeldisglæpa væri ekki
litið á mál Asifu sem stórt fréttamál.
Undir það tók félagsfræðiprófessorinn
Shiv Visvanathan.
Réttlæti fyrir Asifu
Tugir þúsunda hafa mótmælt í kjöl-
far líkfundarins, krafan er #Réttlæti-
fyrirAsifu og stúlkur óttast að þær séu
næstar í röðinni. Mótmælin beinast
einna helst gegn viðvarandi nauðg-
unarmenningu og meintri linkind
stjórnvalda. Þá hafa mótmælendur
einnig bent á að Asifa hafi ekki bara
verið drepin vegna kyns síns, trúin
hafi leikið stórt hlutverk.
Deepa Narayan, rithöfundur og
mótmælandi, sagði í viðtali við CBC
fyrr í mánuðinum að sterk undir-
alda múslimahaturs væri í indversku
samfélagi. Meintir gerendur í þessu
máli hafi allir verið hindúar og að
þjóðernishyggjusamtök sem kölluðu
sig Hindu Ekta Manch hafi mótmælt
handtöku þeirra harðlega.
Aðspurð um hvernig það væri að
sjá glæpi sem þessa framda ítrekað
sagði Narayan: „Það dregur úr manni
allan þrótt. Ég held að á Indlandi, líkt
og víða annars staðar, sé stelpum ein-
faldlega ekki ætlað að vera til. Tilvist
þeirra sé einungis réttlætt þegar þær
eru karlmönnunum einhvers virði.“
Taka á vandanum af veikum mætti
Bharatiya Janata (BJP) er ráðandi
stjórnmálaflokkur á Indlandi. Staða
Narendra Modi forsætisráðherra er
afar sterk. Flokkurinn hefur verið
kenndur við hina umdeildu hindutva-
stefnu, eins konar hindúíska þjóð-
ernishyggju, og benti stjórnarand-
stæðingurinn Meira Kumar, sem laut
í lægra haldi fyrir Ram Nath Kovind í
forsetakjöri síðasta árs, á það að með
kjöri Kovind hefði komið bakslag í
baráttuna gegn kúgun minnihluta-
hópa.
Greint hefur verið frá því á undan-
förnum mánuðum að ofbeldi gegn
múslimum og hindúum af lægri
stéttum fari vaxandi í takt við uppgang
þjóðernishyggjunnar. Mannréttinda-
baráttusamtök hafa gagnrýnt stjórn-
völd harðlega fyrir þessa stefnu sína.
En þjóðernishyggjan er eins og áður
segir bara hluti málsins. Meint linkind
stjórnvalda í garð kynferðisbrota-
manna þykir einnig áhyggjuefni.
Þannig vakti það óhug þegar tveir
ráðherrar úr stjórn BJP mættu á fyrr-
nefnd mótmæli gegn handtöku átt-
menninganna sem sakaðir eru um
morðið á Asifu Bano. Ráðherrarnir
voru neyddir til að segja af sér og fyrst
þá fordæmdi Modi glæpinn á Twitter.
Og meint linkind nær út fyrir raðir
BJP. Singh Yadav, formaður Sósíalista-
flokksins, sagði árið 2014, þegar þrír
menn voru sakfelldir fyrir hópnauðg-
un á blaðamanni, að strákar gerðu iðu-
lega mistök. „Það ætti ekki að hengja
þá fyrir þetta, við þurfum að breyta
lögum um kynferðisofbeldi.“
Þá ber að nefna að Kuldeep Singh
Sengar, þingmaður BJP, var handtek-
inn fyrr í mánuðinum, grunaður um
að hafa rænt og nauðgað sextán ára
gamalli stelpu í Uttar Pradesh.
Ekki bólar á lokum langvarandi
nauðgunarkrísunnar á Indlandi
Nauðgunarmenning og múslimahatur kynda undir kynferðisofbeldi á Indlandi. Hópnauðganir eru tíðar. Tæpur
helmingur þolenda kynferðisbrota er stelpur undir lögaldri. Stjórnvöld ítrekað sökuð um linkind í málaflokknum.
Tilfellin mun fleiri
Þótt mál Jyoti og Asifu hafi vakið
einna mesta athygli eru tilfellin
mun fleiri. Fjórtán og fimmtán
ára stelpur voru hengdar í Uttar
Pradesh árið 2014. Indverskri
konu, sem nýkomin var úr keis-
araskurði, var nauðgað í sjúkra-
rúmi sínu árið 2016. Nokkrum
dögum síðar, á alþjóðlegum
baráttudegi kvenna, var fimm-
tán ára stelpu nauðgað áður en
borinn var eldur að henni.
Nú síðast í apríl fannst lík
óþekktrar stelpu, sem talin er á
bilinu níu til ellefu ára, í Surat-
borg í Gujarat-ríki. Limlest líkið
fannst í runna og á henni voru 86
skurðir og aðrir áverkar.
Krufning leiddi í ljós að
áverkarnir 86 hefðu verið veittir á
sjö dögum. Stelpunni hafði verið
nauðgað ítrekað. Ekki er enn
vitað hver hún var.
Asifa var átta ára þegar hún var myrt. Tugir þúsunda mótmælenda hafa krafist réttlætis. NoRdicphoTos/AFp
„Aldrei aftur“, sagði á skilti þessa mótmælanda eftir andlát Jyoti árið 2012. sú
ósk rættist ekki og hópnauðgunarfaraldur geisar enn. NoRdicphoTos/AFp
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
2 1 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r34 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
8
3
-F
2
8
4
1
F
8
3
-F
1
4
8
1
F
8
3
-F
0
0
C
1
F
8
3
-E
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K