Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 92

Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 92
Þetta er bók um list-sköpun okkar Egg-erts þar sem ég stilli saman texta mínum og ljósmyndum hans og svo eru þarna líka nokkrar teikningar eftir mig,“ segir Þórunn Jarla Valdimarsdóttir um nýja ljóðabók sína, Villimaður í París. Ljóðin eru innblásin af dvöl Þórunnar og manns hennar, Egg- erts Þórs Bernharðssonar, í París vorið 2013. Eggert, sem var sagn- fræðingur og háskólaprófessor, lést ári síðar. „Þessi ljóðabók er saga um dvöl og Eggert skráði ferðina myndrænt. Það dýpkaði minninguna mikið að vinna með myndirnar hans,“ segir Þórunn. Hún er spurð hvort vinnan við bókina hafi að hluta til verið leið til að takast á við sorgina. „Já, þá voru nokkur misseri liðin og sárið byrjað að gróa,“ segir hún. „Ég fór að hugsa um það um daginn að ég hefði fyrst eftir missinn verið eins og hálf melóna, alveg húð- laus. Við Eggert vorum hjón í 34 ár og grerum auðvitað saman. Það stillti sjálfsmeðaumkun mína niður að líta til móðurömmu minnar, mömmu og fleiri náinna kvenna og sjá að þær höfðu hlotið miklu grimmari örlög en ég. Saman- burðurinn bjargaði mér. Þakklæti var mér efst í huga og sorg verður maður að þola. Sorgin gleymir engum, eins og segir í Þjóðvísu Tómasar Guðmundssonar.“ Auðmýkt í París Í Parísarferðinni árið 2013 dvöldu hjónin í Kjarvalsstofu í hjarta borg- arinnar. „Það var dásamlegt að fá að vera í tvo mánuði við Signubakka,“ segir Þórunn, „þótt við værum auð- vitað að vinna. Ég skrifaði hjá mér hughrif og gat seinna sest við að krota upp úr þeim brotum, endur- lifa atburði og baka og hnoða, með hjálp myndanna varð úr heilmikill pakki. Eggert tók ljósmyndir hvert sem hann fór og dundaði sér við það á kvöldin að búa til mynda- bækur sem Pixel prentaði. Það er óskaplega mikilvægt að hafa myndir þegar maður er að segja ferðasögu. Þórunn er spurð út í titil bókar- innar, Villimaður í París. „Í mennta- skóla sat ég í máladeild og lærði frönsku í fjögur ár og auðvitað dreymdi mig um að fara til Par- ísar. Við erum öll villimenn, miðað við siðfágun Parísar. Titillinn er grín með það,“ segir hún. „París er þessi gamla, fína menningarmiðja heimsins. Borg sem á sér mikla sögu. Maður fer auðmjúkur þangað því hún gaf okkur ótalmargt af því sem tilheyrir vestrænni menningu.“ Erlendir höfundar glóa Þórunn snýr talinu síðan að launa- sjóði rithöfunda og skálda hér á landi og segir: „Þvílík náð er það að fá laun til að skrifa. Erlendir kollegar góla þegar ég segi þeim að við fáum laun til að skrifa bækur. Gleymum ekki heldur að menntun hér er án teljandi skólagjalda og við höfum aðgang að námslánum. Það eru for- réttindi að búa í svona samfélagi, annars hefði ég ekki skrifað staf, ég er ekki ein þeirra sem ráða við að skapa að loknum vinnudegi. Núna ríkir fögnuður, því útgáfa örtungu berst í bökkum, og öllu skiptir fyrir budduna að afnema á bókaskattinn á næsta ári. Það eru bjartir tímar fram undan í bókheimum.“ Við getum létt undir Umönnun foreldra er gefandi en getur tekið á vegna annríkis í daglegu lífi. Við getum létt undir með sveigjanlegri aðstoð á heimilinu og ráðgjöf. Heimahreyfing – sérsniðin styrktarþjálfun Aðstoð við böðun Innlit Viðvera Aðstoð við heimilishald Útréttingar og bæjarferðir PO RT h ön nu n ( HEIMA Heilsa Vellíðan Daglegt líf NÁNARI UPPLÝSINGAR: Sími 563 1400 soltunheima@soltunheima.is www.soltunheima.is Hjúkrunarfræðingur kemur heim og saman finnum við þjónustuúrræði fyrir þínar þarfir. Fyrsta heimsókn án skuldbindingar og kostnaðar. Persónuleg og sveigjanleg þjónusta Kær leikur Þú ert koddinn milli fóta minna þú ert sængin sem faðmar mig tíminn er ekki til Við erum öll villimenn Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is Þora góni á mannsamlokur og stakar sneiðar hér í háborg rómantíkur hjartað býr ekki eitt í helli sínum heldur með öllum sem elska það gráðugt og einmana hoppar það í úlfagryfjuna óró sjatnar nýtt hjarta vex hjörtu fjölga sér – sem betur fer „Bók um listsköpun okkar Eggerts,“ segir Þórunn. FréttABlAðið/Sigtryggur Ari Ný ljóðabók Þór- unnar Jörlu Valdi- marsdóttur er innblásin af dvöl hennar og manns hennar í París vorið 2013. Ljóðum og myndum er stillt saman. 2 1 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r48 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 2 1 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 0 4 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 8 3 -D 4 E 4 1 F 8 3 -D 3 A 8 1 F 8 3 -D 2 6 C 1 F 8 3 -D 1 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.