Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 36
 13. apríl 2018KYNNINGARBLAÐVorverkin Matthías Pétursson húsgagna-smiður er með þrjátíu ára reynslu af smíði og vinnur með Matthíasi syni sínum, sem er að ljúka námi í húsasmíði, og mun taka við rekstri föður síns þegar fram líða stundir. Þeir feðgar taka að sér flest það sem lýtur að smíði, nýsmíði og lagfæringum. Matthías segist lengi vel hafa unnið við sérsmíði á innréttingum: „Undanfarin ár hefur sérsvið mitt hins vegar verið garðar og hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt verkefni eins og sumarhús, einka- lóðir, lóðir undir nýbyggingar og eins eldra húsnæði. Að auki sé ég um nýja garða og endurgerð eldri garða.“ Sólpallar, skjólveggir og hellulögn „Þegar líða fer að vori fara margir að huga að sólpöllum enda eru þeir ekki bara til þess að njóta sólarinn- ar heldur nýtast einnig sem frábær framlenging á sjálfri stofunni,“ segir Matti. „Það er einnig annatími í hellu- lögn og girðingum. Skjólveggir, bekkir, kofar og geymslur spretta upp eins og gorkúlur í görðum landsmanna með hækkandi sól,“ bætir hann við og nefnir að fátt sé skemmtilegra en vorverkin. Heitir pottar – framlenging á stofunni „Fjölmargir hafa fengið sér heitan pott í garðinn á undanförnum árum. Það skiptir meginmáli að pallurinn við pottinn sé vel úthugsaður og huga þarf vel að staðsetningu og umhverfi pottsins. Best er að pallurinn sé á tveimur hæðum og smíða tröppur á snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til þess að auka rýmið umhverfis pott- inn. Tröppurnar geta svo einnig nýst fyrir blómapotta og luktir sem gera umhverfið mun hlýlegra við pottinn. Á efri pallinum myndast þá líka rými fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar eru ekki stórir eins og í þessu tilfelli er mikið atriði að fella pottinn inn í um- hverfið til þess að skapa rými. Rýmið umhverfis pottinn er t.d. hægt að nota fyrir glös og diska þegar hann er í notkun.“ Finna einnig fallegar lausnir fyrir landsbyggðina „Við Mattarnir smíðum líka utan um sorptunnur á faglegan hátt og búum til falleg blómabeð til skrauts og ofan á hleðslur. Við notum ýmsar viðar- tegundir við smíðina eins og t.d. lerki, eik, furu og jafnvel tekk. Við tökum glaðir við verkum á landsbyggðinni og höfum sinnt verkefnum um land allt, eins og t.d. á Flúðum, Þingvöll- um, Snæfellsnesi og í Skorradal. Við Mattarnir smíðum í raun allt sem hugsast getur – innandyra sem utan. Við getum séð um parketlögn, park- etslípun, milliveggjasmíði, uppsetn- ingu innréttinga, uppsetningu hurða, þakviðgerðir og fleira,“ segir Matti. Matti smiður, netfang: mattismidur@mattismidur.is, sími: 893-3300 og 691-0621 www.mattismidur.is Flest sem lýtur að smíði og garðvinnu Þúsundþjalasmiður Matti er með yfir 30 ára reynslu í faginu og hefur í gegnum árin smíðað nokkur hundruð sólpalla með öllu tilheyrandi. MATTI SMIÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.