Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 9
13. apríl 2018 fréttir 9 mörg atvik sem áttu sér öll stað árið 2015. Hann var dæmdur fyrir að hafa sunnudaginn 22. febrúar það ár áreitt Ingibjörgu með því að girða niður buxur hennar, rífa af henni nærbuxur og bol og svo strjúka ber kynfæri hennar. Ævar Freyr var enn fremur dæmdur fyrir að hafa þetta sama kvöld slegið hana þrisvar sinn- um með flötum lófa í andlitið og nokkru síðar sparkað þrisvar sinnum í bak hennar þar sem hún lá í rúmi í svefnherbergi. Hann herti svo peysu, sem Ingi- björg klæddist, að hálsi henn- ar. Að lokum ýtti hann henni á skáp í svefnherbergi og hótaði að brjóta á henni andlitið. Hann var líka ákærður fyrir nauðgun en var sýknaður af henni, þótt allt annað í frásögn Ingibjargar hafi verið samþykkt af dómara. Ólíkt öðrum liðum dómsins er mörgum orðum var- ið í að túlka það atriði og er sér- staklega talað um að Ævar Freyr hafi þurft að gera sér grein fyrir því að hún hafi ekki verið sam- þykk mökum. Með öðrum orð- um þá var dæmt honum í vil þar sem hann hafi mögulega haft réttmæta ástæðu til að halda að hún vildi eiga mök við hann. Slapp alltof vel Ævar Freyr var dæmdur fyrir fleiri brot en þau sem áttu sér stað 22. febrúar. Hann var dæmdur fyrir ólögmæta nauð- ung með því að hafa utan dyra þann 26. apríl árið 2015 tekið utan um Ingibjörgu, lyft henni upp, sett hana inn í bifreið og reynt að loka bíldyrunum en hún náði að koma í veg fyrir það með því að setja fót sinn fyrir hurðina.  Þá var hann dæmdur fyrir að hafa í júlí 2015 veist að Ingibjörgu utan dyra við Engi- hjalla í Kópavogi. Nokkrum mánuðum síðar, í september, réðst hann síðan inn á heimili þáverandi tengdamóður sinnar og veittist að Ingibjörgu. Hann hrækti framan í hana og sló hana með flötum lófa í andlitið. Í samtali við DV sagði Ingi- björg að henni þætti Ævar raun- ar sleppa ótrúlega vel frá mál- inu í ljósi þess sem hún gekk í gegnum yfir langt skeið. „Mér fannst hann sleppa afskaplega vel miðað við hvað hann lét mig ganga í gegnum trekk í trekk. Og svo fannst mér undarlegt að hann var sýknaður af nauðgun en dæmdur fyrir líkamsárás og kynferðisbrot.“ Þá sagði hún dóminn sýna að nokkru leyti brotalamir íslenska réttarkerfisins. „Mér finnst mjög mikilvægt að vekja athygli á því hvernig þetta kerfi er. Það er svo erfitt fyr- ir konur í minni stöðu að halda svona út til lengdar og verða svo fyrir vonbrigðum þegar svona dómur fellur.“ Leit á piltinn sem trúnaðarvin sinn Arna er í dag 17 ára gömul og búa þær mæðgur saman ásamt tveimur yngri bræðrum Örnu. Í maí 2015 kynntist Arna eldri pilti á Facebook. „Hann add- aði mér og við fórum að spjalla. Samband okkar byrjaði ágæt- lega, hann var rosalega góður en ég sá það strax á honum að hann vildi gera eitthvað kyn- ferðislegt. Til dæmis þegar það var eitthvert fjölskylduvanda- mál eða önnur vandamál í gangi hjá mér þá var hann voðalega góður við mig og sagði hluti eins og: Æ, elskan mín, ég verð alltaf til staðar fyrir þig krúttið mitt“.“ Fyrir dómnum sagði Arna að hún hefði sagt piltinum að hún væri „00 módel“.   Í niðurstöðu dómsins kemur fram að mann- inum hafi mátt vera ljóst að Arna væri fædd árið 2000 og því annaðhvort 14 eða 15 ára. Hann hafi hins vegar ekki spurt hana nánar um það og ekki gert ekki tilraun til þess að kynna sér það, til dæmis Facebook-síðu henn- ar. Hann skeytti því ekki um hvort hún hefði náð 15 ára aldri. Rúmlega tveimur vikum eftir að þau byrjuðu að spjalla vildi maðurinn hitta hana. Arna taldi að það væri eitthvað á milli þeirra og féllst því á það. „Við hittumst og ég bað hann um að við myndum bara vera úti í bíl hjá honum. Þegar við vorum að keyra út úr götunni minni þá missti ég það út úr að mamma mín væri ekki heima, þá snéri hann við og við fórum inn. Mér fannst það rosalega óþægilegt því ég vildi vera úti í bíl því mér fannst ólíklegra að hann myndi reyna eitthvað kynferðislegt ef við værum úti í bíl.“ Hún segir þó ekkert kynferðis- legt hafa sér stað á milli þeirra fyrr en tveimur dögum síðar. Þá hafi pilturinn verið mun ákaf- ari og suðað í henni um munn- mök. „Hann þrýsti mér úti í hluti og hélt mér. Ég náði ekki andan- um og leið svo illa meðan á öllu stóð. Þegar hann hafði klárað þurfti hann að fara.“ Hún segir piltinn aftur hafa mætt heim til hennar stuttu eftir þetta og reynt að þvinga hana til samfara með því að halda henni niðri og reyna að afklæða hana. Hún hafi á endanum náð að losa sig og skipað honum að hætta og pilturinn hafi brugðist illa við og rokið út. Í kjölfarið liðu rúm- lega tvær vikur þar sem piltur- inn hunsaði Örnu og vildi ekkert við hana tala. Rúmlega tveimur vikum síð- ar var Arna niðurdregin og bað piltinn um að koma til sín. „Mér leið illa og ég þurfti á einhverjum að halda. Ég var grátandi þegar hann kom en hann  sneri mér aftur við á sóf- anum. Á þessum tíma leið mér eins og að ef ég myndi neita honum aftur þá myndi hann fara frá mér og hætta að vera vinur minn. Þannig að ég sagði „Förum bara inn í herbergi,“ og var ennþá með tárin í augunum. Það sem kom eftir á var mjög vont bæði andlega og líkamlega. Hann fór strax á eftir og þá sá hvað ég hafði gert stór mistök.“ Hún lýsir tveimur öðrum skiptum þar sem hún hitti pilt- inn og segir hann hafa þrábeðið hana um að veita honum munn- gælur. Hún hafi upplifað mikinn þrýsting. Þegar hún neitaði hafi hann brugðist við með  því að hunsa hana algjörlega. Í ágúst byrjaði pilturinn með núverandi kærustu sinni og sagði Örnu að „láta sig vera“ sem hún gerði. Hún segir piltinn hafa haft samband aftur í janúar 2016 og beðið hana að hringja í sig. Þegar hún hafi svo gert það hafi hann og kærastan svarað bæði í símann og haft í hótun- um við hana ef hún myndi ekki láta þau vera. Arna kveðst hafa orðið hrædd en hún var þennan dag stödd heima hjá vinkonu sinni. „Ég fór að hágráta og bað mömmu um að sækja mig. Þá sagði ég henni allt sem hafði gerst.“ Kom grátandi út úr dómsalnum Í kjölfarið lagði Ingibjörg fram kæru á hendur piltinum. „Ég varð mikið sterkari og ákveðn- ari fyrir hennar hönd en mína. Ég varð hrikalega reið, sérstak- lega vegna þess að ég komst að þessu svolitlu eftir að hún lenti í þessu og útskýringar hennar á því hvernig hann kom fram við hana, hvernig hann notaði vin- áttu hennar og traust til þess að fá það sem hann vildi frá henni því annars myndi hann ekki tala við hana aftur. Arna Sjöfn var 14 ára, hafði orðið vitni að of- beldi í skilnaðarferli okkar for- eldranna og fann þarna trúnað- arvin sem henni fannst hún geta treyst.“ Hún tekur að hennar eig- in reynsla síðan á síðasta ári hafi í raun  gefið henni aukinn styrk til þess að vernda barnið sitt. „Ég gat þó allavega verið sterk fyrir hana.“ Fyrir dómnum lýsti Arna að sér hefði liðið misvel eftir sam- skiptin við piltinn, og eftir að samskiptum þeirra lauk hefði henni liðið illa og hún verið þunglynd. Hún sótti í kjölfar- ið viðtöl hjá Barnahúsi allt þar til sálfræðingurinn fór í veik- indaleyfi. Ákæra var gefin út í október 2017 og í febrúar síðastliðnum rataði málið fyrir dóm. Pilturinn neitaði sök fyrir dómi og sagðist hafa dregið þá ályktun að Arna væri „allavega 15 ára“ þar sem hún hefði sagt honum að hún væri fædd árið 2000. Þá sagði hann að honum hefði fund- ist orðalag „mjög þroskað“ og fullyrti jafnframt að hann hefði ekki stundað kynlíf með henni ef hann hefði hann vitað að hún væri 14 ára. Hann fékk að lokum 12 mánaða skilorðsbundinn dóm auk þess sem honum er gert að greiða Örnu miskabætur upp á 700 þúsund krónur. „Þegar niðurstöðurnar komu þá fannst mér þetta mjög skrít- ið. Þó svo að þetta sé fyrsta brot hans þá ætti að vera tekið al- veg jafn harkalega á þessu máli. Þó svo að þetta hafi verið fyrsta brot þá skilur hann eftir sig eina stelpu sem mun hafa þetta með sér alltaf, og þetta fylgir mér hvert sem er,“ segir Arna og bætir við að dómurinn sé alltof vægur. „Mér fannst mjög erfitt að það var skipt um saksóknara á síð- ustu stundu sem var ekki alveg inni í málinu. Ég fann mikið til með Örnu þegar hún kom grát- andi úr dómsal, henni fannst skuldinni vera skellt á sig og svo þegar dómurinn birtist kom ekkert af því sem hvorki Arna né ég sögðum fyrir dómi, bara það sem sakborningur og kærasta hans báru vitni um,“ segir Ingi- björg Helga. Ingibjörg Helga fordæmir enn fremur að þolendur þurfi að bíða mánuðum og jafnvel árum saman með hnútinn í magan- um eftir því að þurfa að rifja upp málið fyrir dómi „Fólk reyn- ir að halda áfram með lífið og leitar sér hjálpar svo er því gert að þurfa að rifja allt upp, ganga í gegnum allar þessar tilfinn- ingar aftur, mér finnst það verst. Svo virðist sem ekki skipti máli hversu stórt brotið er, ef þetta er fyrsta brot þá er eins og það sé óskrifuð regla að 12 mánuð- ir sé nóg refsing, sem mér finnst mjög furðulegt.“ Sárt og erfitt Aðspurð um líðan sína í dag seg- ir Arna: „Ef ég á að segja alveg satt þá veit ég það ekki, ég er ekki al- veg viss hvort ég eigi að brosa eða gráta. Þetta er, og hefur ver- ið erfitt frá fyrsta degi og verð- ur erfitt í einhvern tíma eftir á, þangað til ég vonandi næ að vinna úr þessu. Þetta verður alltaf partur af manni. Það er bæði partur af mér þar sem ég er stolt af því að hafa komist í gegnum þetta en mér líður líka illa yfir þessu. Að hafa komið mér í þessa stöðu, að hafa ekki gert meira og hafa ekki staðið með sjálfri mér. Og þetta er sárt og erfitt. Þó svo að flestallir sjái það ekki, þá hvíla svona hlutir alltaf á manni. Ég vildi óska að ég hefði stað- ið meira með sjálfri mér þegar þetta gerðist og reynt mitt besta til að koma í veg fyrir þetta. En maður getur ekki breytt fortíð- inni, aðeins lært af henni.“ Ingibjörg Helga segir: „Sem betur fer er sambandið á milli okkar mæðgna mjög sterkt.  Við erum báðar að vinna í því að komast yfir þetta allt, og sem betur fer er margt gott fólk sem stendur í kringum okkur. Starfs- fólk Barnaverndar hefur aðstoð- að og stutt okkur á allan þann hátt sem hægt er og svo eigum við sterka og góða fjölskyldu sem við getum alltaf leitað til. Ég veit ekki hvar við værum ef við hefðum ekki þetta góða stuðningsnet. Við reynum samt að halda jákvæðninni lifandi, við breytum ekki því sem hef- ur gerst en við munum komast í gegnum þetta sterkari fyrir vik- ið.“ n „Það sem kom eftir á var mjög vont bæði andlega og líkamlega. Hann fór strax á eftir og þá sá hvað ég hafði gert stór mistök. → Inni- og útimerkingar → Sandblástursfilmur → Striga- og ljósmyndaprentun → Bílamerkingar → Gluggamerkingar → Prentun á símahulstur → Frágangur ... og margt fleira Skoðaðu þjónustu okkar á Xprent.is SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.