Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 10
10 13. apríl 2018FRÉTTIR Þ órdís Lóa Þórhallsdóttir er ekki mörgum kunn og margir klóruðu sér í höfð­ inu þegar hún steig fram í sviðsljósið fyrir stuttu sem borgar­ stjóraefni Viðreisnar. Sama dag og tilkynnt var um að hún myndi leiða listann í komandi borg­ arstjórnarkosningum í Reykja­ vík mætti hún í viðtal í frétta­ tíma Stöðvar 2 þar sem segja má að henni hafi verið ýtt út í póli­ tísku djúpu laugina strax á fyrsta degi. Þórdís hitti blaðamann DV á heimili sínu í Árbæ til að upplýsa hver hún er og hvers vegna hún vill verða borgarstjóri Reykjavíkur. Breiðhyltingur í húð og hár „Þetta borgarstjóraefni kemur úr báðum heimum, ég starfaði hjá Reykjavíkurborg í tuttugu ár áður en ég fór í viðskipti og hef öðlast reynslu sem stjórnandi hjá stórum fyrirtækj­ um í nærri tuttugu ár,“ segir Þórdís Lóa og tekur fram að hún sé ávallt kölluð Lóa. „Ég er borgarstelpa alla leið og Breiðhyltingur í húð og hár. Það má segja að ég hafi eytt fyrstu 25 árum ævi minnar í Breiðholti,“ segir hún, en út um stofuglugg­ ann hjá henni má einmitt sjá blokk­ irnar í Hólahverfinu. „Ég var ótrú­ lega heppin að fá búa þar þegar Breiðholt var að byggjast upp, þetta var ævintýralega skemmtilegt hverfi. Allt morandi í krökkum, byggingum og ævintýrum. Ég er mikill ÍR­ingur, æfði handbolta og skíði.“ Eftir stúdentspróf úr Fjöl­ brautaskólanum í Breiðholti fór hún að vinna með unglingum á vegum borgarinnar. „Ég var að vinna í Fellahelli og sem afleys­ ingakennari í Fellaskóla. Það sem mér finnst svo gaman við svona hverfi í Reykjavík er hverfisvitund­ in. Við sem borg erum ein heild og við byggjum þjónustu þvert yfir borgina. Svo förum við inn í hverfin þar sem fólk býr og á að fá sína þjónustu. Fólk á ekki að þurfa að keyra langar leiðir til að fá það sem það þarf. Það er einmitt svo skemmtilegt við þessa hverfisvit­ und, ef þú spyrð Reykvíking hvað­ an hann kemur þá nefnir hann hverfið sitt. Það segir manni að fólk vill þessar tengingar.“ Árið 2003 tóku Þórdís Lóa og eiginmaður hennar, Pétur Jóns­ son, yfir rekstur Pizza Hut á Ís­ landi og ráku þau þrjá veitinga­ staði á höfuðborgarsvæðinu og bættu við sig Pizza Hut í Finnlandi árið 2006. Tveir staðir hér á landi fóru í þrot eftir hrunið, þau Lóa og Pétur seldu svo Pizza Hut­staðinn í Smáralind árið 2015.   Árið 2013 varð Lóa formaður Félags kvenna í atvinnulífinu og árið 2016 varð hún forstjóri Grey Line á Íslandi. Kominn tími á breytingar Þórdís lærði fjölmiðlafræði í New Orleans í Bandaríkjunum og eftir að hún lauk félagsfræði með BA­gráðu fór hún í framhaldsnám í félagsráð­ gjöf. Hún starfaði síðan hjá Reykja­ víkurborg í tuttugu ár, fyrst með unglingum og síðan með öldruðum á velferðarsviði. „Ég stýrði öldrunar­ málum í Reykjavík í nokkur ár, síðan stýrði ég allri þjónustu á vegum vel­ ferðarsviðs borgarinnar áður en ég fór í viðskipti. Þetta var tímabil mik­ illa breytinga hjá borginni og ég er mjög ánægð með margt sem borgin er búin að vera að gera. Það voru Sjálfstæðismenn sem stýrðu borginni í sextíu ár og gerðu það ágætlega að mörgu leyti, þeir byggðu upp ákveðinn grunn sem er gott að byggja ofan ár. Núna hafa vinstriflokkar verið við völd í nán­ ast 24 ár og það er kannski kominn tími á breytingar hérna,“ segir Lóa og hlær. „Grunnur vinstriflokkanna er líka mjög góður, en nú er kom­ inn tími til að færa þetta áfram og við erum með sterkar skoðanir á hvernig eigi að gera það.“ Myndir þú vilja færa meirihlutann til hægri? „Ég vil halda stjórnmálunum í borginni á miðjunni. Grunnur­ inn að skilaboðunum okkar í Við­ reisn er að við staðsetjum okkur algjörlega á miðjunni. Við nálg­ umst borgarmálin út frá ákveðinni heildarhugsun, við ætlum að skapa góða borg fyrir atvinnulíf­ ið. Atvinnulífið byggist upp á litl­ um og meðalstórum fyrirtækjum, þar vinna Reykvíkingar. Það er grunnurinn að búa til skattfé fyrir samneysluna. Það er lykillinn að góðum leikskólum, grunnskólum, velferðarþjónustu og húsnæði.“ „No comment!“ Sem miðjuflokkur er markmiðið að nota það besta frá hægri og vinstri vængjum stjórnmálanna, hjá Viðreisn er það byggingar­ og samgöngustefna núverandi meirihluta, og að straumlínulaga stjórnkerfið. „Það er vegasalt að vera á miðjunni. Við erum mjög fylgjandi þéttingu byggðar innan borgarmarkanna eins og áætlan­ ir standa til um núna, en ekki síð­ ur að byggja þá líka upp þau hverfi sem byrjað hefur verið á, ég nefni þá sérstaklega Úlfarsárdalinn.“ Viðreisn styður núverandi samgönguáætlun sem Sjálf­ stæðismenn, Miðflokksmenn og fleiri hafa gagnrýnt. „Við styðjum borgar línuverkefnið og þéttingu byggðar. Fólk spyr hvers vegna, en svarið er einfalt, samgönguáætl­ unin er langtímaverkefni sem hef­ ur farið í gengum tvær kosningar og er samstarfsverkefni sveitarfé­ laga á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki okkar að koma inn í það samtal og skemma verkefnið.“ Hún segir hins vegar að tími sé til kominn að laga stjórnkerf­ ið í borginni. „Við þurfum að hafa allar gáttir einfaldari og aðgengi­ legri á netinu, en þeir eru auðvit­ að alltaf til sem vilja ekki hafa sam­ skiptin við borgina rafræn en þeir eru miklu færri en hinir. Þjónusta á vegum borgarinnar á ekki að vera neitt mál, þá á ekki að þurfa að taka lengri tíma en fimm mín­ útur að sækja um heimaþjónustu.“ Þarf að skera niður borgarkerfið? „Það finnst mér ekki sanngjörn nálgun. Kerfið er stórt, einföld­ um það og straumlínulögum það. Markmiðið er ekki að skera nið­ ur, borgin á að vera í heilbrigðum rekstri og ef það þarf að skera nið­ ur þá gerum við það. En að skera niður til að skera niður, það ætlum við ekki að gera.“ Svo ég skilji þig rétt, þú ætlar ekki að slást í lið með Vigdísi Hauksdóttur, oddvita Miðflokks- ins, og fara niður í skrifstofur borg- arinnar í Borgartúni og rýma skrif- stofurnar sem virðast ekki þjóna neinum tilgangi? „No comment!“ segir Lóa og hlær hátt. Ætlar að ganga lengra en að hækka launin Lóa forðast að koma með stóryrt­ ar yfirlýsingar um einstök atriði og er fljót að átta sig á að blaðamaður er að reyna að fá hana til að segja hvort hún hallist frekar að sam­ starfi með núverandi meirihluta eða Sjálfstæðisflokknum. „Við erum ekki flokkur sem kemur inn með skyndilausnir eða fyrirsagn­ ir eða eitthvert eitt mál. Það er enginn einn sem stýrir borginni, það er alltaf samstarf og samtal­ ið þarf að byggjast á virðingu og gagnkvæmum skilningi á sjónar­ miðum.“ Viðreisn hefur gefið sig út fyr­ ir að vilja jafna kjör kynjanna á landsvísu, því verkefni ætlar Þór­ dís Lóa að halda áfram á sveitar­ stjórnarstigi. „Það liggur þings­ ályktunartillaga frá okkur fyrir þinginu þar sem við viljum sátt um að leiðrétta kjör kvennastétta. Þarna göngum við miklu lengra en bæði hægri­ og vinstriflokkarnir. Þetta er hluti af heildarhugsuninni sem við erum alltaf að tala um.“ Ertu þá að tala um að eyða bil- inu á milli fæðingarorlofs og leik- skóla, og hækka laun leik- og grunnskólakennara? „Já. Það er algjörlega óásættan­ legt að árið 2018 sé ungt fólk með börn í sömu stöðu og ég var í fyr­ ir 24 árum þegar ég var að eignast börn. Það hefur vissulega eitthvað breyst í fæðingarorlofsmálum og með feðraorlof en það er algjör óvissa með þetta stóra bil. Það er ekki boðlegt að fólk sé að bíða í mörg ár eftir plássi og öll fjölskyld­ an sé í limbói á meðan. Auðvit­ að eru hindranir til að laga þetta en það einfaldlega verður að laga þetta og það sem fyrst.“ Varðandi launahækkanir kennara segir Þórdís Lóa að það þurfi að ganga lengra en að hækka launin. „Það þarf líka að laga vinnuaðstöðu barna og kennara, það er fyrir löngu búið að skoða hvað þarf að gera, það þarf bara að gera það og til þess þarf kjark og þor sem við höfum. Það er enginn hugmyndfræðilegur grundvöllur fyrir því að kvennastéttir séu með lægri laun en karlar og það þarf að laga það.“ Hressandi innkoma í pólitíkina Þórdís Lóa vakti mikla athygli þegar hún mætti í sjónvarpsal á Stöð 2 þann 20. mars síðastliðinn, daginn sem hún var kynnt sem oddviti Viðreisnar. Sindri Sindra­ son tók ekki á henni með silki­ hönskum og sakaði hana um að gefa óljós svör og segja lítið um hvað flokkurinn ætlaði að gera í borgarstjórn. Margir komu henni til varnar á meðan aðrir sögðu að þetta væri sönnun þess að hún ætti ekkert erindi í borgarstjórn. Hvernig blasti þetta við henni? „Ég var aldrei að koma í þetta viðtal til að henda inn einhverri reyksprengju. Þetta var tveggja mínútna innslag í fréttatíma og ég mætti þarna til að kynna listann og okkar sýn. Þannig vinnum við. Ég vildi reyndar ræða menntamál­ in en Sindri vildi ekki ræða þau, hann stoppaði mig,“ segir Lóa og hlær. „Mér leið nú bara vel þarna hjá Sindra en það fór ekki fram­ hjá mér að samfélagsmiðlar log­ uðu. Þetta var hressandi innkoma í pólitíkina.“ n Þórdís Lóa ætlar að eyða bilinu á milli fæðingarorlofs og leikskóla VERÐUR AÐ LAGA ÞETTA SEM FYRST Ari Brynjólfsson ari@dv.is „Sem miðjuflokk-ur er markmiðið að nota það besta frá hægri og vinstri vængjum stjórnmálanna. Breiðhyltingur alla leið Þórdís Lóa eyddi fyrstu 25 árum sínum í Breiðholti, fyrst í skóla og síðan starf- aði hún með unglingum. MYND HANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.