Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 60
60 13. apríl 2018lífsstíll - ferðalög Samfélagsmiðlar loga af gagnrýni Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Í langri færslu sem þær deildu á Facebook segir meðal annars: „Söfnunin verður í gangi til 10. maí næstkomandi og um helgina verður opnaður Face- book-hópur fyrir velunnara henn- ar þar sem hægt verður að fylgjast með framgangi hennar. Við mun- um tilkynna vikulega hvernig söfn- uninni fram vindur inni í þessum hóp þar til styrkirnir verða greiddir út til þeirra fjölskyldna og einstak- linga sem misstu sínar eigur í brunanum. Höfum við nú þegar leitað til forsvarsmanna Geymsl- ur.is til þess að fá nauðsynleg gögn yfir þessa aðila svo við getum skipt upphæðinni á milli þeirra á sann- gjarnan hátt.“ Kristjana segir:  „Ég var búin að fylgjast með málinu í fréttum og mig tók þetta sárt fyrir hönd þeirra sem misstu búslóðir þarna. Við þekkjum það eftir hrun hvern- ig er að vera eignalaus eða íbúðar- laus, ég fór sjálf illa út úr hruninu á sínum tíma. Ég veit til þess að einstaklingar sem áttu búslóðir þarna voru með þær í geymslu, af því að þeir eru á hrakhólum með húsnæði. Svo heyrði ég að ein vin- kona mín hefði misst búslóðina í brunanum. Ég sá líka fréttina um einstæðu móðurina í DV og fann til með henni, enda einstæð móðir sjálf. Ég skildi ekki af hverju engin söfnun var farin af stað.“ Kristjana ákvað því að setja sjálf söfnun af stað, fékk Rannveigu í lið með sér og stofnaði söfnunarreikning. Söfnun sætir gagnrýni á samfélagsmiðlum Vægt til orða tekið fékk þessi hug- mynd þeirra mjög misjöfn við- brögð meðal notenda samfélags- miðla. Meðan nokkrir dásömuðu framtakið og náungakærleikann voru fleiri sem settu spurningar- merki við söfnunina, eins og til dæmis hvernig þær hygðust deila söfnunarfénu á réttlátan hátt. Geymslur.is hefðu heldur enga heimild til að láta af hendi lista um leigjendur geymslna hjá þeim og engin leið væri að færa sönnur á verðmæti í hverri geymslu fyrir sig, sumir hafi verið þar með mikil verðmæti, á meðan aðrir hafi jafn- vel geymt þar gamlar tuskur, ef svo má segja. Aðrir gerðu grín að því að upphæðir mættu vera frá 1.000 krónum. „Þannig að ef maður getur bara sett 500 kr. þá má maður ekki vera með?“ skrifar einn netverji. „Ég leigði geymslu þarna og missti margt. Er mjög hissa á fram- kvæmd þessarar söfnunar. Vilja þau ekki fá mynd af okkur grátandi líka til að sanna það að við misst- um eitthvað í þessum bruna?? Svo að hafa samband við Geymslur til að fá afhentar persónuupplýs- ingar fyllir alveg mælinn. Fallega hugsað en algjörlega vanhugsað,“ skrifar annar. „Fólkið er í neyð núna“ „Ég verð að viðurkenna að ég er mjög svekkt yfir viðbrögðunum og athugasemdum um að fólkið muni jafnvel fá skaðabætur seinna. Fólkið er í neyð núna, er ekki frábært að þau fái skaðabæt- ur seinna?“ segir Kristjana. „Ef maður getur hjálpað með ein- hverjum hundrað þúsund köllum núna þá getur það skipt sköpum fyrir fjölskyldufólk.“ Eftir mikla gagnrýni og athugasemdir var færslan fjarlægð úr hópnum Góða systir, þar sem eru 50.606 meðlimir eða um 1/7 íslensku þjóðarinnar. „Ég dró mig úr þeim hópi, mér finnst leitt að sjá svona neikvæðar raddir þegar maður er að reyna að hjálpa. Ég hélt að við Íslendingar værum með meiri samkennd, þetta er ekki mannskaði en gífurlegt áfall fyrir þá sem eiga í hlut. Ég spyr mig hvar er samkenndin hjá Ís- lendingum þegar svona gerist?“ segir Kristjana. „Það er meira að segja varla að fólk nenni að deila færslunni okkar. Mér finnst ekki rétt að safna bara fyrir einn einstakling. Það er fjöldi fólks sem missti bú- slóðina sína þarna og mér finnst við þurfa að hjálpa öllum sem þurfa. Þó að þetta séu veraldlegir hlutir þá tengjumst við þeim, ég á til dæmis kaffibolla heima sem amma mín átti og ef hann myndi brotna þá væri ég líklega mánuð að jafna mig. Við elskum hlutina okkar.“ Markmið söfnunarinnar skilgreind og Facebook-hópur stofnaður Þrátt fyrir gagnrýni halda Krist- jana og Rannveig samt ótrauð- ar áfram og hafa stofnað Face- book-hóp og skilgreint þar markmið söfnunarinnar. Að- spurð um hvernig söfnunarfé yrði ráðstafað svarar Kristjana því til að fólk yrði beðið um að koma með staðfestingu á leigusamn- ingi við Geymslur.is og skriflega staðfestingu frá ættingjum og vin- um um að þar hefði verið búslóð. „Við viljum að fólk gefi sig fram við okkur með þessi gögn. Þetta er ekki formleg staðfesting, svo þarf maður bara að treysta, það er alltaf hægt að svindla á öllu.“ Lítið hefur safnast enn sem komið er. „Kannski vill fólk sjá betur hvernig við skilgreinum söfnunina og vonandi kemur meira þegar við deilum hópnum. Við ætlum allavega að gefa þessu mánuð og vonum að söfnunin fari á flug. Við erum að vanda til verka að halda vel utan um söfnunina og hafa allt uppi á borðum,“ segir Kristjana, en þær hafa ekki stað- ið að slíkri söfnun áður. „Ef ekkert kemur út úr söfnuninni, þá get- um við allavega sagt að við höfum reynt. Við megum ekki gera upp á milli fólks og við verðum að treysta því að þeir sem gefi sig fram þurfi á aðstoð að halda. Við höfum ekki leyfi til að spila einhverja félags- málafulltrúa. Ég vonast til að þegar við póst- um hópnum þá fáum við fleiri í lið með okkur. Það er leiðinlegt fyrir fólkið að Íslendingar taki ekki betur í slíka söfnun. En ef einhver vill taka hana yfir fyrir okkar hönd þá er það í góðu lagi, ég vil bara sjá að það sé eitthvað gert fyrir þetta fólk.“ Ljóst er að þó að slokknað sé í glæðum brunans í Miðhrauni, þá logar enn glatt í athugasemda- kerfum samfélagsmiðlanna yfir þessu máli og ekki eru öll kurl komin til grafar um hvort og að hve miklu leyti fólk muni fá eigur sínar bættar. Fyrir þá sem vilja leggja söfnun Kristjönu og Rannveigar lið þá er reikningsnúmerið 0101-05-010074 og kennitala 201075-2979. n Eins og alkunnugt er varð gríðarlegt fjárhagslegt og tilfinningalegt tjón þegar eldur kom upp í Miðhrauni í Garðabæ í síðustu viku. Yfir 300 geymslur brunnu með eigum leigutaka þeirra og misstu sumir aleiguna á örskömmum tíma. Af náungakærleik einum saman ákváðu Kristjana Sveinsdóttir og Rannveig Tenchi að bregðast við og auglýstu á eigin Facebook-veggjum og í stórum hópum á Facebook, eins og Góða systir, allsherjarsöfnun fyrir fórnarlömb brunans. Settu á fót allsherjarsöfnun vegna brunans í Miðhrauni: Rannveig Tenchi Kristjana Sveinsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.