Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 51
LÍFSSTÍLL - BLEIKT 5113. apríl 2018
E
rla Kolbrún Óskarsdóttir
lenti í læknamistökum
árið 2012 þar sem laga
átti endaþarmssig sem
hún fékk í kjölfar fæðingar yngri
dóttur sinnar. Síðan þá hefur
Erla barist við mikla og óbæri-
lega verki sem ekki er hægt að
laga. Eftir aðgerðina varð Erla
afar þunglynd og sjálfsvígshugs-
anir herjuðu á hana daglega. Ný-
lega var Erla lögð inn á Klepp
vegna mikillar vanlíðunar og
ákvað hún að leyfa fólki að fylgj-
ast með meðferðinni í gegnum
Snapchat.
„Snapchat hjálpar mér á svo
marga vegu. Ég get talað beint
við símann og opnað mig með
allt án þess að þurfa horfa fram-
an í manneskju. Þótt ég viti að
það eru nokkur þúsund manns
að horfa, en það mætti segja að
Snapchat sé eitt af mínum með-
ferðarúrræðum,“ segir Erla í við-
tali við blaðakonu.
Áður legið inni á geðdeild
vegna sjálfsvígshugsana
Erla er gift Andrési Þór Helgasyni
og saman eiga þau tvær stelpur,
Alexöndru Ösp og Magdalenu
Eik.
„Ég er menntuð lyfjatæknir,
útskrifaðist árið 2013, en ég hef
aldrei geta unnið við það vegna
aðgerðarinnar. Læknirinn not-
aði úrelta aðferð og yfirlækn-
ir á kvennadeild staðfesti að
um læknamistök hefði verið að
ræða. Í sex ár hef ég barist við
mikla og óbærilega taugaverki
sem ekki er hægt að laga.“
Erla hefur áður legið inni á
geðdeild Landspítalans vegna
sjálfsvígshugsana og að hennar
sögn var sú lega ágæt.
„En þar fékk ég ekki hjálp-
ina sem ég þurfti. Ég reyndi sjálf
að fara til fagaðila eins og sál-
fræðinga út í bæ en fann mig
ekki og datt því út úr meðferðar-
rútínunni. Ég snappaði mikið í
gegnum þá reynslu og það hjálp-
aði mér mjög mikið. Að fá að
rausa um mína vanlíðan, og líka
vellíðan, og fá viðbrögð frá fylgj-
endunum mínum gaf mér svo
mikið.“
Var neitað um innlögn á
Reykjalund
Vanlíðan Erlu hefur farið stig-
vaxandi undanfarin ár og vegna
þess vildi geðlæknir hennar að
hún yrði lögð inn á endurhæf-
ingardeild á Reykjalundi.
„En þar var mér neitað á mjög
leiðinlegan hátt. Ástæða neitun-
arinnar var að ég væri of veik.“
Þá barst talið að því að sækja
um vist fyrir Erlu á Kleppi.
„Ég er í innlögn á svokallaðri
fimm daga deild. Ég fer heim
um helgar og nýt þess að
vera hjá fjölskyldunni minni
en á virkum dögum er ég í
prógrammi á Kleppi. Ég fæ að-
stoð við að komast í meðferðar-
rútínu eins og ég kalla það. Fæ
aðstoð við að byrja í hreyfingu
og kennslu í að slaka á. Því var
ég alveg búin að gleyma. Hér er
sálfræðiaðstoð og læknaþjón-
usta, prógrammið er mjög fjöl-
breytt og flott.“
Innlögnin á Klepp meðal
annars til þess að létta undir
með eiginmanninum
Erla segist njóta þess að liggja
inni á Kleppi þar sem hún fær
mikið utanumhald frá starfs-
fólki.
„Ég fékk til dæmis mjög slæmt
verkjakast í gær enda keyrði
ég mig aðeins út. Hjúkrunar-
fræðingurinn og sjúkraliðinn
sem voru á vakt voru yndislegir
og vildu allt fyrir mig gera. Ég er
ein í krúttlegu herbergi sem
er bara æði og það fer mjög
vel um mig hérna.“
Aðaltilgangur innlagn-
ar Erlu var að létta undir
með henni sjálfri við dag-
legt amstur lífsins en einnig til
þess að létta undir með eigin-
manni hennar.
„Hans hlutverk í mínu lífi
er rosalega stórt og er örugg-
lega mjög erfitt starf. Hann og
stelpurnar mínar eru búin að
upplifa mikið með mér undan-
farin sex ár og ég var komin svo
gjörsamlega á botninn að ég gat
horfst í augu við lífið. Þannig að
fyrir alla var innlögnin skynsam-
legust.“
Snappar frá Kleppi
Erla mun dvelja á Kleppi í að
lágmarki fjórar vikur en að þeim
tíma liðnum verður líðan henn-
ar skoðuð og ákvörðun tekin um
hvort hún þurfi lengri tíma.
„Að vera á Kleppi í dag er
allt annað en það var fyrir ein-
hverjum árum. Það eru margar
þjóðsögur um að það að vera á
Kleppi sé svakalega slæmt, en
það er bara ekki þannig. Kannski
var það þannig einhvern tímann
en í dag er það alls ekki slæmt.“
Erla þakkar fyrir Snapchat á
hverjum degi þar sem hún getur
í gegnum það forrit verið í mikl-
um samskiptum við fjölskyldu
sína.
„Snapchat hefur hjálpað mér
á svo marga vegu. Ég á svo yndis-
lega fylgjendur sem peppa mig
alltaf upp og senda mér yndis-
leg skilaboð. Það gefur mér svo
mikið að fá allan þennan stuðn-
ing.“ n
„Ég var komin á
botninn og gat
lífið ekki“
Erla Kolbrún snappar frá Kleppi:
Hægt er að fylgj-
ast með ferli
Erlu Kolbrúnar á
Snapchat undir
notandanafn-
inu: erlak85