Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 42
13. apríl 2018KYNNINGARBLAÐVorverkin
Sælandsgarðar:
Liðsmenn þínir
í vorverkunum
Vorið er á næsta leiti og því ekki seinna vænna að huga að garðinum, hellulögn,
hreinsun og fleiru,“ segir Eiríkur
Sæland, garðyrkjufræðingur og
stofnandi fyrirtækisins Sælands-
garðar. Eiríkur er menntaður garð-
yrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla
ríkisins og sótti sér frekari menntun
í faginu til Noregs og Danmerkur.
Hann hefur frá árinu 2008 rekið
eigið fyrirtæki, Garðaþjónustuna E.
Sæland, sem hefur skipt um nafn
og heitir nú Sælandsgarðar ehf.
Tilefni nafnbreytingarinnar er það
að sonur Eiríks, Kolbeinn Sæland
vélstjóri, er kominn inn í rekstur
fyrirtækisins, en hann lýkur námi
sem skrúðgarðyrkjufræðingur frá
Landbúnaðarháskóla Íslands í vor.
Auk þeirra feðga starfa við fyrir-
tækið skrúðgarðyrkjumeistari og
fleiri mjög reyndir starfsmenn.
Hellulögn og hleðslur
Á þessum árstíma viðrar oft vel til
að vinna í hellulögn og hleðslu. Til
dæmis að rífa upp og endurnýja
gamla hellulögn í heimkeyrslum,
á bílastæðum og göngustígum,
og leggja nýja. Oft þarf líka að
endurnýja gamlar hleðslur eða
gera nýjar, hvort heldur er með
forsteyptum einingum eða nátt-
úrulegu grjóti. Hellur og náttúru-
grjót geta verið skemmtileg lausn
í garðinum til að minnka garðslátt
og gera ásýnd garðsins léttari,
nútímalegri og flottari. Þarna þarf
síðan líka að koma við sögu ráðgjöf
og undirbúningur á borð við
jarðvegsskipti og uppsetn-
ingu snjóbræðslukerfa eftir
því sem við á og óskað er
eftir.
Tímabært er einnig
orðið að hreinsa beðin,
kantskera og semja um
garðslátt en um mánuður gæti
nú verið í fyrsta slátt í garðinum.
Sælandsgarðar ehf. tekur að sér
öll þessi verk og hefur síðustu ár
séð um garðslátt, beðahreinsun og
alla umhirðu garða fyrir húsfélög,
fjölbýlishús, stór og lítil fyrirtæki og
stofnanir.
Sælandsgarðar ehf.
Starfsmenn Sælandsgarða mæta
á svæðið, skoða umfang verksins,
gera áætlanir um lausn með
húseigendum og leysa í
kjölfarið verkið af fag-
mennsku, fljótt og örugg-
lega, á hagkvæman hátt.
Sælandsgarðar ehf.
er vaxandi fyrirtæki sem
tekur að sér verkefni allt árið
um kring. Eiríkur og hans menn
eru með öll nauðsynleg tæki og
búnað í garðaþjónustu og hellulögn
– eru fagmenn sem leggja áherslu
á persónulega þjónustu og vand-
aða vinnu.
Hægt er að hafa samband við
Eirík hjá Sælandsgörðum í síma
680-9903, með tölvupósti á net-
fangið eirikur_omar@hotmail.com
og á Facebook-síðunni Garðaþjón-
usta E. Sæland ehf.
Fyrir
Fyrir