Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Side 42
 13. apríl 2018KYNNINGARBLAÐVorverkin Sælandsgarðar: Liðsmenn þínir í vorverkunum Vorið er á næsta leiti og því ekki seinna vænna að huga að garðinum, hellulögn, hreinsun og fleiru,“ segir Eiríkur Sæland, garðyrkjufræðingur og stofnandi fyrirtækisins Sælands- garðar. Eiríkur er menntaður garð- yrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins og sótti sér frekari menntun í faginu til Noregs og Danmerkur. Hann hefur frá árinu 2008 rekið eigið fyrirtæki, Garðaþjónustuna E. Sæland, sem hefur skipt um nafn og heitir nú Sælandsgarðar ehf. Tilefni nafnbreytingarinnar er það að sonur Eiríks, Kolbeinn Sæland vélstjóri, er kominn inn í rekstur fyrirtækisins, en hann lýkur námi sem skrúðgarðyrkjufræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands í vor. Auk þeirra feðga starfa við fyrir- tækið skrúðgarðyrkjumeistari og fleiri mjög reyndir starfsmenn. Hellulögn og hleðslur Á þessum árstíma viðrar oft vel til að vinna í hellulögn og hleðslu. Til dæmis að rífa upp og endurnýja gamla hellulögn í heimkeyrslum, á bílastæðum og göngustígum, og leggja nýja. Oft þarf líka að endurnýja gamlar hleðslur eða gera nýjar, hvort heldur er með forsteyptum einingum eða nátt- úrulegu grjóti. Hellur og náttúru- grjót geta verið skemmtileg lausn í garðinum til að minnka garðslátt og gera ásýnd garðsins léttari, nútímalegri og flottari. Þarna þarf síðan líka að koma við sögu ráðgjöf og undirbúningur á borð við jarðvegsskipti og uppsetn- ingu snjóbræðslukerfa eftir því sem við á og óskað er eftir. Tímabært er einnig orðið að hreinsa beðin, kantskera og semja um garðslátt en um mánuður gæti nú verið í fyrsta slátt í garðinum. Sælandsgarðar ehf. tekur að sér öll þessi verk og hefur síðustu ár séð um garðslátt, beðahreinsun og alla umhirðu garða fyrir húsfélög, fjölbýlishús, stór og lítil fyrirtæki og stofnanir. Sælandsgarðar ehf. Starfsmenn Sælandsgarða mæta á svæðið, skoða umfang verksins, gera áætlanir um lausn með húseigendum og leysa í kjölfarið verkið af fag- mennsku, fljótt og örugg- lega, á hagkvæman hátt. Sælandsgarðar ehf. er vaxandi fyrirtæki sem tekur að sér verkefni allt árið um kring. Eiríkur og hans menn eru með öll nauðsynleg tæki og búnað í garðaþjónustu og hellulögn – eru fagmenn sem leggja áherslu á persónulega þjónustu og vand- aða vinnu. Hægt er að hafa samband við Eirík hjá Sælandsgörðum í síma 680-9903, með tölvupósti á net- fangið eirikur_omar@hotmail.com og á Facebook-síðunni Garðaþjón- usta E. Sæland ehf. Fyrir Fyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.