Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 48
48 13. apríl 2018
79 ára var elsta fórnarlamb mexíkóska morðkvendisins Juönu Barraza. Juana leitaði fórnarlamba á meðal aldraðra kvenna í Mexíkó-borg á árunum 2002–2006. Ástæðan ku hafa verið
óviðráðanleg fyrirlitning hennar í garð móður sinnar. Þegar upp var staðið hafði
hún myrt í það minnsta ellefu konur. Fyrir vikið fékk Juana 759 ára fangelsis-
dóm árið 2008.SAKAMÁL
LÆKNIR GALT FYRIR GETULEYSIÐ
H
ans Peterson, banda
rískur/franskur pókerspil
ari búsettur í Chicago í
Illinois, var ekki sáttur. Í
of langan tíma hafði hann glímt
við svonefndar unglingabólur og
árið 2006 hafði hann fengið sig
fullsaddan. Hann fór til húðlækn
is, Davids Cornbleet, sem var með
stofu á 12. hæð í turni við Michig
an Avenue í Chicago.
Cornbleet læknir skrifaði upp á
nokkur lyf, þar á meðal Accutane,
sem áttu að vinna bug á bólunum
í andliti Peterson sem fór léttur í
lund til síns heima og innbyrti lyf
in eins og fyrir hann hafði verið
lagt.
Pantaði tíma hjá lækninum
Liðu nú nokkrir mánuðir og seg
ir svo sem ekki mikið af orrustu
Peterson við bólurnar. Hins vegar
ku hann hafa orðið var við veru
lega dvínandi kynhvöt og hugn
aðist lítt sú þróun. Var Peterson
sannfærður um að Accutane væri
um að kenna.
Nú hefðu sennilega flestir í
svipuðum sporum mælt sér mót
við lækninn og það var einmitt það
sem Peterson gerði, 24. október
2006. Í stað þess að kvarta og leita
ráða dró Peterson hníf úr pússi
sínu og rak hann ítrekað í bringu
hins grunlausa læknis. Síðan lagði
Peterson á flótta.
Peterson hugsar sinn gang
Að kvöldi þessa dags varð Aileen,
eiginkonu læknisins, ekki rótt.
Hvorki hafði eiginmaðurinn
hringt né svarað þegar hringt var í
hann. Aileen dreif sig á læknastof
una og sá þá að þar var allt opið.
Inni lá eiginmaður hennar í blóð
polli á gólfinu. Hann hafði verið
stunginn tuttugu sinnum.
Á sama tíma í öðrum bæjar
hluta velti Hans Peterson stöðu
sinni. Hann gerði sér grein fyrir
því að hann hafði skilið lífsýni eft
ir úti um allt á læknastofunni, að
ekki væri minnst á fingraför. Fund
ur hans og Cornbleet var einnig án
efa rækilega færður til bókar í dag
bók læknisins.
Evreka!
Velktist Peterson ekki í vafa um að
hann yrði fljótlega bendlaður við
morðið á lækninum – og Illinois
beitti dauðarefsingum. Peterson
sá í hendi sér að ef honum dytti
ekki snjallræði í hug hið fyrsta
þá biði hans sennilega ferð aðra
leiðina á dauðadeild.
Evreka! skyndilega laust niður
í huga hans þeirri staðreynd að
hann væri með tvöfaldan ríkis
borgararétt; fæddur í Bandaríkj
unum en átti franska móður.
n Pókerspilari missti kynhvötina og var ekki sáttur n Lét reiðina bitna á húðlækni„Fyrir ári, eða þar
um bil, varð ég
lækni í Chicago að bana.
Hans Peter-
son Tvöfaldur
ríkisborgara-
réttur bjargaði
honum fyrir
horn.
Fabrikant fannst hann bera skarðan hlut frá borði
Peterson beið ekki boðanna,
hafði samband við flugfélag, pakk
aði niður og dreif sig á O'Hare
flugvöllinn.
Gefur sig fram
Á meðan lögreglan leitaði læknis
morðingjans logandi ljósi í Illin
ois hafði Peterson það náðugt í
Frönsku VesturIndíum. Peterson
vissi þó sem var að þetta myndi
ekki vara að eilífu, fyrr eða síðar
myndu lögin ná í skottið á honum.
E
inu sinni var maður, og
er enn, að nafni Valery
Fabrikant. Fabrikant þessi
kom í heiminn árið 1940 í
borginni Minsk, sem þá tilheyrði
Sovétríkjunum sálugu en er nú
höfuðborg HvítaRússlands. Saga
Minsk kemur þó ekki meira við
sögu hér.
Fabrikant flutti til Kanada árið
1979 og varð aðstoðarprófess
or í verkfræðideild Concordia
háskólans í Montreal og hóf þar
kennslu árið 1980.
Ósáttur við kollegana
Svo virðist sem annaðhvort hafi
ýmislegt ekki verið sem skyldi í
Concordia eða að Fabrikant hafi
lítt verið friðarins maður. Fabrik
ant hafði ekki fengið fastráðningu
við háskólann þrátt fyrir að hafa
sótt um hana í fjórgang. Velktist
Fabrikant ekki í vafa um hverjir
bæru þar ábyrgð á og sakaði fé
laga sína um að hafa komið í veg
fyrir fastráðninguna. Hann bætti
reyndar um betur og sagði kolleg
ana að auki hafa róið að því öllum
árum að hann missti vinnuna.
Leitaði til dómstóla
Fabrikant bar yfirstjórn háskól
ans á brýn að umbera æði mikið
frjálsræði í höfundarréttarmál
um. Þannig stunduðu kennarar
kinnroðalaust að láta skrá sig sem
meðrithöfunda efnis þar sem þeir
höfðu ekkert lagt til málanna.
Árið 1992 fann Fabrikant sig
knúinn til að leita á náðir dóm
stóla til að fá nöfn nokkurra
kollega fjarlægð af efni sem hann
hafði skrifað á 9. áratugnum, þeir
ættu enda ekki einn stafkrók í
umræddum greinum.
Uppgjör á 9. hæð
Þetta ósætti Fabrikants og vinnu
félaga hans náði hámarki 24.
ágúst 1992. Á níundu hæð Henry
F. Hallbyggingar Concordiahá
skólans birtist Fabrikant og var
greinilega ekki hlátur í hug. Þrátt
fyrir að oft sé haft á orði að penn
inn sé máttugri en sverðið hafði
Fabrikant ákveðið að skipta því
fyrra út fyrir það síðarnefnda.
Reyndar var Fabrikant ekki
með sverð í fórum sínum heldur
skotvopn og skotfæri.
Dauðir prófessorar
Á hæðinni voru staddir nokkr
ir starfsmenn verkfræðideild
ar Concordiaháskólans og lét
Fabrikant kúlunum rigna yfir þá.
Í kúlnaregninu létu lífið prófess
orarnir Matthew Douglas, Mich
ael Hogben og Aaron Jaan Saber.
Ritarinn Elizabeth Horwood og
„Þrátt fyrir að oft
sé haft á orði að
penninn sé máttugri en
sverðið hafði Fabrikant
ákveðið að skipta því
fyrra út fyrir það síðar-
nefnda.