Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 60
60 13. apríl 2018lífsstíll - ferðalög
Samfélagsmiðlar loga af gagnrýni
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Í
langri færslu sem þær deildu á
Facebook segir meðal annars:
„Söfnunin verður í gangi til
10. maí næstkomandi og um
helgina verður opnaður Face-
book-hópur fyrir velunnara henn-
ar þar sem hægt verður að fylgjast
með framgangi hennar. Við mun-
um tilkynna vikulega hvernig söfn-
uninni fram vindur inni í þessum
hóp þar til styrkirnir verða greiddir
út til þeirra fjölskyldna og einstak-
linga sem misstu sínar eigur í
brunanum. Höfum við nú þegar
leitað til forsvarsmanna Geymsl-
ur.is til þess að fá nauðsynleg gögn
yfir þessa aðila svo við getum skipt
upphæðinni á milli þeirra á sann-
gjarnan hátt.“
Kristjana segir: „Ég var búin
að fylgjast með málinu í fréttum
og mig tók þetta sárt fyrir hönd
þeirra sem misstu búslóðir þarna.
Við þekkjum það eftir hrun hvern-
ig er að vera eignalaus eða íbúðar-
laus, ég fór sjálf illa út úr hruninu
á sínum tíma. Ég veit til þess að
einstaklingar sem áttu búslóðir
þarna voru með þær í geymslu, af
því að þeir eru á hrakhólum með
húsnæði. Svo heyrði ég að ein vin-
kona mín hefði misst búslóðina í
brunanum. Ég sá líka fréttina um
einstæðu móðurina í DV og fann
til með henni, enda einstæð móðir
sjálf. Ég skildi ekki af hverju engin
söfnun var farin af stað.“ Kristjana
ákvað því að setja sjálf söfnun af
stað, fékk Rannveigu í lið með sér
og stofnaði söfnunarreikning.
Söfnun sætir gagnrýni á
samfélagsmiðlum
Vægt til orða tekið fékk þessi hug-
mynd þeirra mjög misjöfn við-
brögð meðal notenda samfélags-
miðla. Meðan nokkrir dásömuðu
framtakið og náungakærleikann
voru fleiri sem settu spurningar-
merki við söfnunina, eins og til
dæmis hvernig þær hygðust deila
söfnunarfénu á réttlátan hátt.
Geymslur.is hefðu heldur enga
heimild til að láta af hendi lista
um leigjendur geymslna hjá þeim
og engin leið væri að færa sönnur
á verðmæti í hverri geymslu fyrir
sig, sumir hafi verið þar með mikil
verðmæti, á meðan aðrir hafi jafn-
vel geymt þar gamlar tuskur, ef svo
má segja.
Aðrir gerðu grín að því að
upphæðir mættu vera frá 1.000
krónum. „Þannig að ef maður getur
bara sett 500 kr. þá má maður ekki
vera með?“ skrifar einn netverji.
„Ég leigði geymslu þarna og
missti margt. Er mjög hissa á fram-
kvæmd þessarar söfnunar. Vilja
þau ekki fá mynd af okkur grátandi
líka til að sanna það að við misst-
um eitthvað í þessum bruna?? Svo
að hafa samband við Geymslur
til að fá afhentar persónuupplýs-
ingar fyllir alveg mælinn. Fallega
hugsað en algjörlega vanhugsað,“
skrifar annar.
„Fólkið er í neyð núna“
„Ég verð að viðurkenna að ég er
mjög svekkt yfir viðbrögðunum
og athugasemdum um að fólkið
muni jafnvel fá skaðabætur
seinna. Fólkið er í neyð núna, er
ekki frábært að þau fái skaðabæt-
ur seinna?“ segir Kristjana. „Ef
maður getur hjálpað með ein-
hverjum hundrað þúsund köllum
núna þá getur það skipt sköpum
fyrir fjölskyldufólk.“
Eftir mikla gagnrýni og
athugasemdir var færslan fjarlægð
úr hópnum Góða systir, þar sem
eru 50.606 meðlimir eða um 1/7
íslensku þjóðarinnar. „Ég dró mig
úr þeim hópi, mér finnst leitt að
sjá svona neikvæðar raddir þegar
maður er að reyna að hjálpa. Ég
hélt að við Íslendingar værum
með meiri samkennd, þetta er
ekki mannskaði en gífurlegt áfall
fyrir þá sem eiga í hlut. Ég spyr
mig hvar er samkenndin hjá Ís-
lendingum þegar svona gerist?“
segir Kristjana.
„Það er meira að segja varla
að fólk nenni að deila færslunni
okkar. Mér finnst ekki rétt að
safna bara fyrir einn einstakling.
Það er fjöldi fólks sem missti bú-
slóðina sína þarna og mér finnst
við þurfa að hjálpa öllum sem
þurfa. Þó að þetta séu veraldlegir
hlutir þá tengjumst við þeim, ég
á til dæmis kaffibolla heima sem
amma mín átti og ef hann myndi
brotna þá væri ég líklega mánuð
að jafna mig. Við elskum hlutina
okkar.“
Markmið söfnunarinnar
skilgreind og Facebook-hópur
stofnaður
Þrátt fyrir gagnrýni halda Krist-
jana og Rannveig samt ótrauð-
ar áfram og hafa stofnað Face-
book-hóp og skilgreint þar
markmið söfnunarinnar. Að-
spurð um hvernig söfnunarfé
yrði ráðstafað svarar Kristjana því
til að fólk yrði beðið um að koma
með staðfestingu á leigusamn-
ingi við Geymslur.is og skriflega
staðfestingu frá ættingjum og vin-
um um að þar hefði verið búslóð.
„Við viljum að fólk gefi sig fram
við okkur með þessi gögn. Þetta
er ekki formleg staðfesting, svo
þarf maður bara að treysta, það er
alltaf hægt að svindla á öllu.“
Lítið hefur safnast enn sem
komið er. „Kannski vill fólk sjá
betur hvernig við skilgreinum
söfnunina og vonandi kemur
meira þegar við deilum hópnum.
Við ætlum allavega að gefa þessu
mánuð og vonum að söfnunin fari
á flug. Við erum að vanda til verka
að halda vel utan um söfnunina
og hafa allt uppi á borðum,“ segir
Kristjana, en þær hafa ekki stað-
ið að slíkri söfnun áður. „Ef ekkert
kemur út úr söfnuninni, þá get-
um við allavega sagt að við höfum
reynt.
Við megum ekki gera upp á
milli fólks og við verðum að treysta
því að þeir sem gefi sig fram þurfi
á aðstoð að halda. Við höfum ekki
leyfi til að spila einhverja félags-
málafulltrúa.
Ég vonast til að þegar við póst-
um hópnum þá fáum við fleiri í
lið með okkur. Það er leiðinlegt
fyrir fólkið að Íslendingar taki ekki
betur í slíka söfnun. En ef einhver
vill taka hana yfir fyrir okkar hönd
þá er það í góðu lagi, ég vil bara sjá
að það sé eitthvað gert fyrir þetta
fólk.“
Ljóst er að þó að slokknað sé í
glæðum brunans í Miðhrauni, þá
logar enn glatt í athugasemda-
kerfum samfélagsmiðlanna yfir
þessu máli og ekki eru öll kurl
komin til grafar um hvort og að
hve miklu leyti fólk muni fá eigur
sínar bættar.
Fyrir þá sem vilja leggja söfnun
Kristjönu og Rannveigar lið þá er
reikningsnúmerið 0101-05-010074
og kennitala 201075-2979. n
Eins og alkunnugt er varð gríðarlegt fjárhagslegt og
tilfinningalegt tjón þegar eldur kom upp í Miðhrauni
í Garðabæ í síðustu viku. Yfir 300 geymslur brunnu
með eigum leigutaka þeirra og misstu sumir aleiguna
á örskömmum tíma. Af náungakærleik einum saman
ákváðu Kristjana Sveinsdóttir og Rannveig Tenchi að
bregðast við og auglýstu á eigin Facebook-veggjum
og í stórum hópum á Facebook, eins og Góða systir,
allsherjarsöfnun fyrir fórnarlömb brunans.
Settu á fót allsherjarsöfnun
vegna brunans í Miðhrauni:
Rannveig Tenchi Kristjana
Sveinsdóttir